Fréttablaðið - 23.12.2017, Page 28
Björgvin Páll Gústavsson flutti heim til Íslands síðasta sumar með eiginkonu sinni Karen Einarsdóttur og dóttur þeirra sem er fjögurra
ára gömul. Hjónin eignuðust tví
bura í nóvember. Þau stefndu á að
búa fjölskyldunni heimili á Íslandi
þar til Björgvin fékk gott tilboð frá
liðinu Skjern í Danmörku. Hann
skrifaði undir hjá félaginu í vikunni.
Eiginkonan á skilið fálkaorðu
Það er þó enginn asi á þeim að flytja
aftur út. Tvíburarnir eru nú um fjög
urra vikna gamlir og fjölskyldan vill
vera heima á Íslandi fyrstu mánuð
ina í lífi þeirra. Jólin eru fram undan
og það er í mörgu að snúast. „Við
nýja fjölskyldan ætlum að eyða jól
unum saman og hafa það eins kósí
og við mögulega getum. Þetta eru
búnar að vera alvöru vikur síðan
tvíburarnir komu í heiminn, þau
eru enn föst í því að vaka á nóttunni
og svo er stelpan okkar búin að vera
slöpp á sama tíma, fá gat á hausinn
og fleira. Ég á magnaða konu sem
er búin að vera eins og ofurmenni
síðustu fjórar vikur. Hún hefur séð
um að heimilið haldi velli og er sjálf
búin að vera veik ofan í allt saman.
Guðni hlýtur að mæta með fálka
orðuna handa henni á aðfangadag,“
segir hann.
Björgvin heldur út með fjölskyld
unni næsta sumar. Í Skjern er lögð
rík áhersla á að liðsmenn fái tíma til
að sinna fjölskyldunni. Feður taki
virkan þátt í uppeldi barna sinna
þrátt fyrir að vera í atvinnumennsku.
Nokkuð sem skiptir Björgvin miklu
máli og var því veigamikið í ákvörð
un hans.
„Ég taldi mig vera kominn heim til
að vera en þegar mér bauðst að spila
í Danmörku frá og með næsta sumri í
liði sem heitir Skjern gat ég ekki sagt
nei þótt ég hefði íhugað alvarlega að
vera um kyrrt á Íslandi. Ástæða þess
er hreinlega sú að þetta er mögulega
besti klúbbur í heiminum þegar
kemur að því að ala upp börn en allt
umhverfið er þannig uppbyggt að
fjölskyldunni líði vel og að feður geti
tekið þátt í að sinna uppeldi barna
sinna,“ segir Björgvin.
Hann segir þá ákvörðun að koma
heim til Íslands síðasta sumar hafa
verið þá einu réttu. „Við fjölskyldan
þurfum á allri þeirri hjálp sem við
getum fengið frá okkar nánasta fólki
að halda,“ segir Björgvin.
Handboltinn bjargaði
Hann rifjar upp grein sem Kári Stef
ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða
greiningar, skrifaði á dögunum um
foreldrahlutverkið. Í henni sagðist
Kári hafa vanrækt börnin sín. Metn
aður hans í vísindum hefði verið
hans villuljós. Greinin var öðrum
þræði um íslenskt samfélag og
stjórnmál og Kári brýndi fyrir nýrri
ríkisstjórn að setja hagsmuni barna
í forgang.
Metnaður Björgvins í handbolta
hefur aldrei verið villuljós. Meira
eins og ljós í myrkri.
„Ég ætla ekki að vera drullusokkur
og ég trúi Kára Stefánssyni vel, að það
sé vond tilfinning að hafa verið lélegt
foreldri, en ég lofaði sjálfum mér því
frá því að fyrsta barnið mitt kom í
heiminn að allar mínar ákvarðanir
yrðu teknar með hag barnanna að
leiðarljósi. Ég á handboltanum bæði
mitt líf og barnanna minna að þakka
en handboltinn bjargaði mér út úr
stormasamri æsku því ég fann stað
þar sem ég gat notið mín og fundið
sjálfan mig. Atvinnumennskan í
handbolta gerði svo það að verkum
að ég og konan gátum búið til fjöl
skyldu en við þurftum á hjálp að
halda til þess að búa til okkar þrjú
yndislegu börn. Það kostaðu mikla
peninga, styrk, tíma og þolinmæði,“
segir Björgvin.
Afþakkaði næstum tilboðið
Björgvin á að baki brotna barnæsku.
Hann glímdi við mikla vanlíðan
og hegðunarörðugleika sem hann
braust út úr á fullorðinsárum. Frá
því að hann kom til Íslands síðasta
sumar hefur hann haft að markmiði
að hjálpa krökkum í vanda. Hann
kynntist fyrirtækinu Vinakoti og
lagði starfsemi þess lið. Starfið í fyrir
tækinu varð næstum til þess að hann
afþakkaði tilboðið frá Skjern.
„Þegar ég kom til Íslands í sumar
var mitt fyrsta markmið að hjálpa
krökkum sem voru í svipuðum
málum og ég þegar ég var yngri og
ég kynntist þá fyrirtæki sem heitir
Vinakot sem er í raun ástæðan fyrir
því að ég var næstum því búinn
að hafna tilboðinu frá Skjern. Hjá
Vinakoti er verið að þjóna börnum
með fjölþættan vanda. Ég hef verið í
mörgum frábærum liðum í gegnum
tíðina en ég held að ég hafi aldrei
verið í eins öflugu liði og Vinakoti
sem er orðin mín önnur fjölskylda,
fjölskylda líkt og mín eigin, sem er
hlaðin fallegum gildum og tilbúin
að gera allt til þess að börnunum líði
vel,“ segir Björgvin.
Viljinn ristir djúpt
Björgvin hefur áður rætt opinberlega
um barnæsku sína. Hann glímdi við
ýmsa hegðunarörðugleika og dvaldi
um tíma á BUGL til að ná áttum.
Heimilisaðstæður hans áttu ríkan
þátt í hegðunarvandanum.
Það er ekki langt síðan hann sótti
skjöl um sig úr kerfinu. „Þessi vilji til
að hjálpa ristir djúpt,“ segir hann og
deilir broti úr skýrslu frá umsjónar
kennara í grunnskóla.
15. maí 1993:
Brot úr skýrslu frá um
sjónar kennara í grunnskóla
„Björgvin kemur mér fyrir
sjónir, sem efnilegur, vel gef-
inn drengur, sem vill standa
sig, en ræður ekki við það
vegna ýmissa uppeldisatriða.
Hann er mjög órólegur og
fyrirferðarmikill í skólanum
og sýnir börnunum í bekknum
mikinn yfirgang. Hann beitir
þau fantabrögðum t.d. kýlir í
maga, tekur hálstaki, beygir
uppá handleggi til þess að ná
völdum og þau hlýði honum.
Börnin eru flest hrædd við
hann, en gefa honum þó tæki-
færi og fyrirgefa honum ótrú-
lega oft og vilja hafa hann með.
Hann á þó sína góðu daga og
er mjög metnaðargjarn og vill
vera bestur. Hann þarf mikla
þolinmæði og hlýju.“
„Þarna er ég ekki orðinn átta ára
gamall. Þetta sama ár er ég tekinn
með hníf í skólanum og vistaður á
BUGL,“ segir Björgvin og deilir öðru
broti úr gömlu skjali um sig. Sem eru
lokaorð í viðtali við húsráðendur
eftir vistun hans í sveit. Þá er hann
tíu ára gamall.
29. september 1995:
Lokaorð í viðtali við hús
ráðendur eftir vistun í sveit
„Þegar húsráðandi var
aðspurð að því hvort hún gæti
hugsað sér að taka Björgvin
aftur í sveit einhvern tíma
seinna, saup hún hveljur og
sagðist aldrei geta lagt það
á sitt heimilisfólk. Sagði hún
Björgvin vera þannig að erfitt
væri að þykja vænt um hann
og vissulega væri erfitt að horfa
upp á þetta vanrækta barn.“
„Þetta gefur ágætis mynd af minni
æsku þó svo að ekkert sé sagt um þau
áföll sem dundu á mér. Móðir mín
var gríðarlega veik andlega þegar
ég var að alast upp en hún gerði
sína fyrstu sjálfsvígstilraun þegar ég
var aðeins þriggja ára gamall,“ segir
Björgvin frá.
Varð vitni að sjálfsvígstilraun
Hann varð svo vitni að sjálfsvígs
tilraun móður sinnar þegar hann
var tólf ára. Hann segist ekki hafa
getað tekist á við áfallið en þurft að
harka af sér. Yngri systir hans hafi
þurft á honum að halda.
„Það að móðir mín skuli enn vera
á lífi er kraftaverk og ekki margir sem
myndu standa af sér það sem hún
hefur gengið í gegnum en í seinni
tíð hafa dauðsföll tveggja unnusta
bæst ofan á þunglyndi, kvíðaröskun,
félagsfælni. Mamma er nú nýorðin
fimmtug og á fjögur ömmubörn.
Hún er á ótrúlega góðum stað þrátt
fyrir allt,“ segir Björgvin. „Hér eru
skilaboð til þín mamma: Ég elska
þig.“
Týndu börnin
í kerfinu
Það er ekki langt síðan Björgvin Páll Gústavsson sótti gömul skjöl
um sig úr kerfinu. Hann á að baki brotna barnæsku og glímdi
við vanlíðan og hegðunarörðugleika sem hann braust út úr á
fullorðinsárum. „Kerfið er fullt af götum,“ segir Björgvin en í vetur
hefur hann liðsinnt börnum í vanda og málstaðurinn er honum svo
hugfólginn að hann íhugaði að hafna tilboði danska liðsins Skjern.
Björgvin Páll Gústavsson taldi sig vera kominn heim til að vera en flytur til Danmerkur næsta sumar. FréttABLAðið/Ernir
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Móðir Mín var gríðar-
lega veik andlega
þegar ég var að alast
upp en hún gerði sína
fyrstu sjálfsvígs-
tilraun þegar ég var
aðeins þriggja ára
gaMall.
↣
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-8
7
6
4
1
E
9
8
-8
6
2
8
1
E
9
8
-8
4
E
C
1
E
9
8
-8
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K