Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 66
Ungur sölumaður, Mads A n d e r s e n - S k j e r n , kemur til smábæjarins Korsbæk árið 1929, þar sem gamlar valda-ættir ráða ríkjum
og athafnalífið er í dvala. Aðkomu-
maðurinn ákveður að setjast að í
bænum og leggur grunn að miklu við-
skiptaveldi með góðri hjálp vinveittra
heimamanna. Að lokum verður hann
ríkasti maðurinn í Korsbæk og búinn
að velta gamla fyrirfólkinu úr sessi, en
svíkur um leið mörg af sínum gömlu
lífsgildum.
Eitthvað á þessa leið mætti lýsa
hinum geysivinsælu dönsku sjónvarps-
þáttum Matador, sem gerðir voru á
árunum 1978 til 1981. Nafnið vísar
ekki í spænska nautabana, heldur nota
Danir þetta orð stundum í merking-
unni „efnahagsveldi“ eða álíka. Ástæð-
an er samnefnt borðspil sem Danir og
Íslendingar þekkja einir þjóða.
Það er raunar örlítil söguskekkja
að láta sögu sem hefst árið 1929 heita
Matador, því það var ekki fyrr en sjö
árum síðar sem spilaframleiðandinn C.
Drechsler Papirvarefabrik sendi spilið
á markað í Danmörku. Þremur árum
síðar kom út íslensk útgáfa af Matador.
Var það lofsungið í dagblöðum og stað-
hæfði Morgunblaðið að í Danmörku
væru jafnvel bridsklúbbar farnir að láta
undan síga fyrir Matadorgildunum sem
spryttu upp eins og gorkúlur. Spilið
sjálft var annars auglýst með vísunni:
„Matador er yndis afl. / Allir spila Mata-
dor. / Matador er tigið tafl; / teflum
bara Matador!“
Ekki voru stjórnendur C. Drechsler
svo ósvífnir að láta eins og Matador-
spilið væri þeirra eigin hugarsmíð. Í
öllum meginatriðum byggði spilið á
Monopoly, sem bandaríski spilarisinn
Parker Brothers hóf að selja í stórum
stíl árið áður. Í báðum tilvikum er um
að ræða spil þar sem keppendur fara
milli reita sem bera götunöfn, kaupa
viðkomandi götur og rukka því næst
keppinauta sína sem álpast til að lenda
á sama reit. Helsti sýnilegi munurinn á
Monopoly og Matador er sá að í fyrr-
nefnda spilinu mynda reitirnir fjörutíu
ferning, en í því síðarnefnda er þeim
raðað í hring. Þá eru leikpeðin í Mata-
dor litlir, mislitir bílar en í Monopoly
velja keppendur á milli ólíkra hluta, s.s.
herskips, fallbyssu og lúðurs.
Þeir ríku verða ríkari
Það varð samstundis ljóst að Parker
Brothers hefðu uppgötvað gullnámu
Óðurinn til
græðginnar
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um borðspil
með fortíð.
um Monopoly, sem lætur þess getið að
fyrsta Evrópumeistaramótið hafi farið
fram í Laugardalshöll – á sama stað og
þeir Fischer og Spassky höfðu att kappi
um heimsmeistaratitilinn í skák.
Annað og raunverulegra dæmi um
áhrif Monopoly á sögulega atburði,
tengist lestarráninu mikla í Bretlandi
árið 1963. Freistuðust ræningjarnir til
að spila spilið með hluta af ránsfeng
sínum og áttu fingraför á spilakass-
anum þátt í sakfellingu þeirra.
Monopoly er táknmynd græðgi
og hefur boðskapur þess farið í taug-
arnar á mörgum siðapostulanum sem
og hagfræðingnum – ekki hvað síst
sú staðreynd að nafn spilsins merkir
„einokun“. Telja gagnrýnendur að það
sé ótækt að lofsyngja með þessum
hætti jafn skaðlegt afl í hagkerfinu og
einokun. Lokatakmark Monopoly er
jú að einn keppandi sitji eftir með allar
eignirnar og fjármunina en hinir verði
gjaldþrota – slíkt eigi þó ekki að vera
markmið hins frjálsa markaðar.
Flestir létu hagfræðingarnir nægja
að tuða yfir spilinu á kaffistofum, en
Ralph Anspach, prófessor við San
Francisco-háskóla lét ekki sitja við
orðin tóm. Átið 1973 útbjó hann
borðspilið Anti-Monopoly, sem
hermdi í öllu eftir fyrirmyndinni í útliti
en sneri reglunum á haus á þann hátt
að í upphafi spilsins ríkir einokun og
fákeppni sem þátttakendur leitast við
að brjóta niður til að koma á frjálsum
markaði.
Sem vænta mátti kunnu Parker
Brothers illa að meta uppátæki prófess-
orsins og drógu hann fyrir dómstóla
fyrir brot á höfundarétti. Við tóku lang-
vinn málaferli, sem áttu eftir að varpa
ljósi á sérkennilega sögu borðspilsins.
Fræðsluspil um pólitík
Hin opinbera saga Monopoly-spilsins
hafði fram að þessu verið á þá leið að
maður að nafni Charles Darrow, fyrr-
verandi sölumaður sem misst hafði
vinnuna í kreppunni, hafi búið til
spilið. Darrow fékk að sönnu einka-
leyfi á borðspili af þessu tagi árið 1935
sem hann seldi um hæl til Parker
Brothers gegn hlutdeild í hagnað-
inum. Hann varð milljónamæringur
á augabragði, fyrstur borðspilahöf-
unda.
Málsvörn prófessors Anspachs
byggðist hins vegar á því að Darrow
hefði alls ekki verið hinn eiginlegi
höfundur, að spil af þessu tagi hefðu
verið útbreidd löngu fyrir 1935 og því
gæti spilafyrirtækið ekki eignað sér
hugverkaréttinn. Í ljós kom að Parker
Brothers höfðu í raun áttað sig á þessu
löngu fyrr og meðal annars keypt upp
önnur og eldri einkaleyfi á sambæri-
legum spilum, til að tryggja sig fyrir
málaferlum. Gafst fyrirtækið því að
miklu leyti upp fyrir rökum Anspachs
og náðu málsaðilar sáttum utan dóms-
salar.
Þegar farið var að grafa dýpra ofan
í forsögu Monopoly-spilsins kom
heillandi saga í ljós. Grunnfyrirmyndin
var spil sem hugsjónakonan Elizabeth
Magie hannaði árið 1903 og kallaði
Leigusalaleikinn (e. The Landlord’s
Game). Tilgangurinn spilsins var að
leiða fólki fyrir sjónir hvernig leigu-
salar sem eiga margar húseignir gætu
skrúfað upp leiguverðið og þannig
hlunnfarið leigjendur sína. Í nútíma-
útgáfu spilsins birtist það með þeim
hætti að keppandi sem eignast götur
í sama lit, getur sett „hús“ eða „hótel“
á viðkomandi reiti og þar með rukkað
meðspilara sína um margfalda leigu
fyrir að stoppa á þeim reitum.
Taldi höfundurinn að keppendum
hlyti að renna til rifja ósanngirnin í
þessu fyrirkomulagi og að barnungir
spilarar yrðu þannig varkárari í að
treysta kapítalistum og gylliboðum
þeirra þegar fram liðu stundir. Til að
koma boðskapnum enn betur til skila
var unnt að spila leikinn með annars
konar reglum, þar sem auðurinn safn-
aðist ekki á hendur eins keppandans,
heldur högnuðust allir eftir því sem
spilinu vatt fram.
Elizabeth Magie var eldheit stuðn-
ingskona Georgismans og það voru
hugsjónir þeirrar hugmyndastefnu
sem hún vildi kynna með borðspili
sínu. Georgisminn er flestum gleymdur
í dag, en um aldamótin 1900 var það
afar áhrifamikil stjórnmálakenning
sem margir töldu raunhæfan valkost
við kapítalisma og sósíalisma.
Georgisminn, sem sumir fylgjendur
kusu þó að kalla „geoisma“ til að stefnan
hefði síður á sér blæ persónudýrkunar,
dró nafn sitt af bandaríska blaðamann-
inum og sjálfmenntaða hagfræðingn-
um Henry George. Hann fæddist árið
1839 og fluttist ungur til Kaliforníu
þar sem hann hugðist græða á gull-
greftri. Lítið varð úr þeim áformum og
þess í stað sneri George sér að blaða-
mennskunni. Hann snerist til liðs við
Demókrata og gerðist sífellt pólitískari
í skrifum sínum.
Á sjöunda áratug nítjándu aldar var
mikil uppbygging í járnbrautarkerfum
Bandaríkjanna. Landeigendur sem
voru svo lánsamir að fá járnbraut um
lendur sínar duttu í lukkupottinn, þar
sem verðmæti þeirra rauk upp úr öllu
valdi. Þetta taldi Henry George augljóst
ranglæti. Hvers vegna ættu sumir land-
eigendur að græða á tá og fingri án þess
að hafa gert neitt sjálfir til að auka verð-
mæti jarða sinna?
Næstu árin skrifaði George talsvert
um misskiptingu jarðnæðis í Banda-
ríkjunum og árið 1879 tók hann
hugmyndir sínar saman í bókinni
„Framfarir og fátækt“ (e. Progress and
Poverty). Í henni reyndi hann að sam-
eina kosti samkeppni kapítalismans og
félagslegs réttlætis sósíalismans. Georg-
isminn leggur höfuðáherslu á mikilvægi
þess að allir borgarar samfélagsins hafi
aðgang að jarðnæði og að hagnaður af
hvers kyns náttúruauðlindum skyldi
skattlagður.
Markmiðið með þessu var tvíþætt:
annars vegar að tryggja hámarks-
nýtingu alls lands, sem George áleit að
einkaeignarfyrirkomulagið gerði ekki,
en hins vegar að skapa ríkinu tekjur
sem duga myndu til að útrýma fátækt
og byggja trausta innviði samfélagsins.
Töldu Georgistar raunar að auðlinda-
skatturinn yrði svo drjúg tekjulind að
hið opinbera gæti lagt niður alla aðra
skattheimtu.
Hugmyndir þessar hlutu mikinn
hljómgrunn víða um lönd. Þannig
skiptust róttækir íslenskir stúdentar í
Kaupmannahöfn um aldamótin 1900
í tvær fylkingar – þá sem hneigðust
til jafnaðarstefnu og hina sem töldu
sig Georgista. Jónas Jónsson frá Hriflu
heillaðist einnig af Georgismanum á
námsárum sínum í Evrópu á árunum
fyrir fyrri heimsstyrjöldina en komst
loks að þeirri niðurstöðu að stefnan
myndi ekki höfða til íslenskra kjósenda.
Fáir munu til að fylla flokk Georgista
í dag, enda álíta fæstir að skattur á
jarðnæði og náttúruauðlindir myndi
einn og sér duga til að standa undir
rekstri nútímaríkja. En eftir stendur þó
kennslutækið Monopoly í spilaskápum
flestra fjölskyldna, þótt upphafleg
merking þess sé öllum gleymd.
þegar Monopoly kom á markað. Á
þeim rúmu áttatíu árum sem liðin
eru frá útgáfunni, hefur spilið haldið
vinsældum sínum og er vafalítið það
mest selda í borðspilasögunni. Útgef-
endurnir hafa einnig verið iðnir við að
senda frá sér aðrar útgáfur, svo sem ætl-
aðar börnum. Landskeppnir og jafnvel
heimsmeistaramót hafa verið haldin í
Monopoly.
Ýmsir eiga þó bágt með að taka
spilamennsku þessa alvarlega sem
keppnisíþrótt. Þannig ritaði blaða-
maður breska blaðsins The Guardian
mikinn grínpistil árið 1975 um Evr-
ópumeistaramót í Monopoly sem
átti að hafa farið fram í Reykjavík, en
endað með ósköpum þar sem ásakanir
um svindl gengu á milli keppenda, á
meðan blaðamenn sem fylgdust með
mótinu liðu vítiskvalir á áfengislaus-
um miðvikudagskvöldum íslenskra
öldurhúsa. Þótt greinin væri grínaktug,
virðist henni hafa tekist að sannfæra
höfund ensku Wikipediugreinarinnar
Matador
er tigið
tafl;
tefluM
bara Mata-
dor!
Vitamix TNC er stórkostlegur.
Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka
og nánast hvað sem er.
Býr til heita súpu og ís.
Til í þremur litum, svörtum,
hvítum og rauðum
KKælitækni ehf. Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Besti vinurinn í
eldhúsinu
Jólatilboðsverð
kr. 79.527,-
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r46 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
8
-6
4
D
4
1
E
9
8
-6
3
9
8
1
E
9
8
-6
2
5
C
1
E
9
8
-6
1
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K