Fréttablaðið - 23.12.2017, Page 18
Tæpum tveimur og hálfum mánuði eftir alþingis-kosningarnar 2016 var nýr
stjórnar sáttmáli Sjálfstæðisflokks-
ins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar
kynntur. Bjarni Benediktsson tók
við lyklunum að forsætisráðuneyt-
inu af Sigurði Inga Jóhannssyni hinn
11. janúar síðastliðinn. Benedikt
Jóhannesson, þáverandi formaður
Viðreisnar, varð fjármála- og efna-
hagsráðherra og Óttarr Proppé, for-
maður Bjartrar framtíðar, varð heil-
brigðisráðherra. Ellefu ráðherrar
sátu í ríkisstjórninni. Þar af sex frá
Sjálfstæðisflokki, þrír frá Viðreisn
og tveir frá Bjartri framtíð. Í júní
var Sigríður Andersen dómsmála-
ráðherra gagnrýnd harðlega fyrir
að neita að veita bæði þolendum
Róberts Downey og fjölmiðlum
gögn er vörðuðu uppreist æru hans.
Synjunin var kærð til úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál.
Bjarni leiðir ríkisstjórn
Hinn 14. september upplýsti fréttavefurinn Vísir svo að Benedikt Sveinsson, faðir
Bjarna Benediktssonar forsætis-
ráðherra, hefði veitt dæmdum kyn-
ferðisbrotamanni, Hjalta Sigurjóni
Haukssyni, umsögn þegar Hjalti
sótti um uppreist æru. Sigríður
Andersen dómsmálaráðherra viður-
kenndi þann sama dag að hafa veitt
Bjarna upplýsingar um málið um
sumarið. Samstundis var boðað til
fundar í stjórn Bjartrar framtíðar
vegna trúnaðarbrests sem forystu-
menn flokksins töldu að væri kom-
inn upp. Á fundinum var ákveðið
að slíta stjórnarsamstarfinu. Gengið
var til kosninga 28. október. Niður-
staðan varð sú að Björt framtíð
fékk engan þingmann kjörinn.
Miðflokkurinn og Flokkur fólksins
fengu hins vegar kjörna menn. Þar
með höfðu átta stjórnmálaflokkar
fulltrúa á þingi, fleiri en nokkru
sinni fyrr. Stjórnarmyndunarvið-
ræður VG, Framsóknarflokksins,
Samfylkingarinnar og Pírata skiluðu
ekki árangri og hófust þá viðræður
milli VG, Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins. Ný ríkisstjórn
undir forystu Katrínar Jakobsdóttur
tók svo við 30. nóvember.
Skammlífasta ríkisstjórn lýðveldisins
24. júní Barnsmóðir Hafþórs Júlíus-
ar Björnssonar vaxtarræktarmanns
sakar hann um alvarlegt ofbeldi í
opnuviðtali í Fréttablaðinu.
Júlí
5. júlí Markaðurinn greinir frá því að
fjórir stjórnendur LBI fá að meðaltali
um 90 milljónir á mann vegna fyrir-
framgreiðslu frá Landsbankanum.
10. júlí Ólafur Arnarson segir af
sér sem formaður Neytendasam-
takanna eftir deilur við stjórnina.
19. júlí Erlendur ferðamaður fellur í
Gullfoss. Leit hefst.
28. júlí John Snorri Sigurjónsson
nær á topp K2.
Ágúst
2. ágúst Afmælisveisla haldin fyrir
afganska hælisleitandann Haniye
sem til stóð að vísa brott.
16. ágúst Vogunarsjóðir og Gold-
man Sachs ætla ekki að nýta sér
kaupréttinn í Arion banka.
22. ágúst Réttað í máli Thomas
Møller Olsen vegna morðsins á
Birnu Brjánsdóttur.
23. ágúst Umhverfisstofnun sendir
United Silicon bréf og segir að
slökkt verði á kísilverksmiðjunni.
September
14. september Björt framtíð
ákveður að ganga út úr stjórnar-
samstarfinu vegna upplýsinga um
að faðir forsætisráðherrans hafi
mælt með því að Hjalti Sigurjón
Hauksson fengi uppreist æru.
21. september Greint frá því
að biskup Íslands hafi sent Ólaf
Jóhannsson sóknarprest í Grensás-
kirkju í leyfi vegna ásakana um
kynferðislega áreitni.
29. september Thomas Møller
Olsen dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir
að myrða Birnu Brjánsdóttur.
Október
9. október Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu tryggir sér þátttökurétt
á HM 2018.
11. október Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir verður formaður
Viðreisnar.
28. október Kosið til Alþingis. Átta
flokkar fá kjörna þingmenn, fleiri en
nokkru sinni fyrr.
Nóvember
21. nóvember Stjórnmálakonur
tjá sig opinskátt um kynferðislega
áreitni og birta áskorun þar sem
stjórnmálaflokkar eru hvattir til að
taka á málum. Konur í fjölda starfs-
stétta fylgja á eftir.
22. nóvember Miklir skjálftar í
Öræfajökli. Sóknarprestur í Öræfum
segir íbúa þó rólega.
30. nóvember Stjórnarsáttmáli
ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins kynntur
opinberlega.
Desember
1. desember Katrín Jakobsdóttir
tekur við forsætisráðuneytinu.
17. desember Flugvirkjar Icelandair
leggja niður störf í tæpa tvo sólar-
hringa í baráttu sinni fyrir betri
kjörum.
18. desember Lögregluyfirvöld á
Íslandi og í Evrópu greina frá því
að stór fíkniefnasmyglhringur hafi
verið upprættur. Hald lagt á um 200
milljónir króna.
Bjarni tók við lyklum að forsætisráðuneytinu úr hendi Sigurðar Inga. Þeir áttu
eftir að mynda ríkisstjórn saman síðar á árinu. FréttaBlaðIð/VIlhelm
Bjarni Benediktsson sagði frá því á blaðamannafundi í Valhöll að hann teldi
ekki unnt að mynda nýja ríkisstjórn. Því þyrfti að boða til nýrra kosninga.
FréttaBlaðIð/ernIr
Þrjár stjórnmálakonur, þær Heiða Björg Hilmisdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir og Hanna María Sigmunds-
dóttir, sögðu frá valdbeitingu karla
í stjórnmálum í opinskáum fjöl-
miðlaviðtölum hinn 21. nóvem-
ber. Skoruðu þær á forystumenn
stjórnmálaflokkanna að bregðast
við. Konur úr fjölmörgum starfs-
stéttum fylgdu í kjölfarið. Með
hverri áskorun hafa fylgt lýsingar
á óviðurkvæmilegri hegðun karl-
manna gagnvart konum og í mörg-
um tilfellum alvarlegu ofbeldi sem
karlmenn eru sakaðir um að hafa
beitt konur. Eftir að byltingin sem
fékk heitið #metoo – Í skugga
valdsins hófst hér á landi eru dæmi
um að karlmenn hafi sagt upp
störfum eða verið vikið úr störfum
vegna framkomu sinnar.
Í skugga valdsins Katrín Jakobsdóttir var ein þeirra kvenna sem lásu upp #metoo sögur í Borgarleik-húsinu. FréttaBlaðIð/SteFán
innlendar fréttir ársins 2017
2 3 . D e S e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-6
4
D
4
1
E
9
8
-6
3
9
8
1
E
9
8
-6
2
5
C
1
E
9
8
-6
1
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K