Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 42

Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 42
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Vel fer um gesti í rúmgóðu og fallegu rými veitingastaðarins. Fallegar innréttingar og notalegt andrúmsloft einkenna m.a. Mathús Garðabæjar. Mathús Garðabæjar býður upp á gott úrval ljúffengra rétta fyrir alla aldurs- hópa auk úrvals drykkja fyrir alla aldurshópa. Garðar Aron Guðbrandsson er annar mat- reiðslumeistara á Mathúsi Garðabæjar. Mathús Garðabæjar er fjölskylduvænn veitinga-staður sem hefur slegið rækilega í gegn frá því hann var opnaður í hjarta Garðabæjar árið 2016. Staðurinn býður vandaðan og fjölbreyttan mat úr fyrsta flokks hráefni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi allt árið um kring. Aðsóknin í desember hefur verið mjög góð, svo góð að starfsmenn Mathúss Garðabæjar eru í skýjun- um yfir móttökunum undanfarnar vikur, að sögn Stefáns Magnús- sonar, eiganda veitingastaðarins. „Nú í desember höfum við m.a. boðið upp á vinsælan jólabrunch þar sem við höfum boðið upp á gott úrval rétta fyrir alla fjölskylduna, ekki síst yngstu kynslóðina. Vegna góðrar aðsóknar og mikillar eftir- spurnar ætlum við að bjóða upp á auka jólabrunch annan í jólum frá 11.30 til 15 en verðum með léttan matseðil um kvöldið.“ Úrvals kokkar Matreiðslumeistarar Mathúss Garðabæjar eru þeir Fannar Vern- harðsson, fyrrverandi yfirkokkur á Vox og meðlimur kokkalandsliðsins, og Garðar Aron Guðbrandsson, sem einnig starfaði á Vox um tíma. „Þessir tveir meistarakokkar stjórna eldhúsinu okkar og sjá um að mat- reiða, ásamt öðru frábæru starfsfólki okkar, sívinsæla rétti okkar á borð ánægðra viðskiptavina. Milli jóla og nýárs munum þeir bjóða upp á léttan seðil sem inniheldur m.a. lambafillet, þorsk og vinsælu anda- lærin okkar. Að sjálfsögðu munum við bjóða áfram upp á hina marg- rómuðu og vinsælu þriggja rétta veislu þar sem matreiðslumennirnir velja það besta af matseðlinum.“ Nýr matseðill Starfsfólk Mathúss Garðabæjar horfir til næsta árs með mikilli til- hlökkun, segir Stefán. „Fannar og Garðar eru að leggja lokahönd á glæsilegan nýjan matseðil sem við byrjum með strax í janúar á næsta ári. Við hlökkum til að taka vel á móti öllum á nýju ári og að sjálf- sögðu munum við halda áfram með steikarhlaðborðið og brunch um helgar en ekki síður koma fram með ýmsar spennandi nýjungar. Mathús Garðabæjar hefur einnig tekið að sér veislur úr húsi sem slegið hafa í gegn. Við munum enn frekar leggja áherslu á þær á nýju ári eftir frá- bærar viðtökur.“ Mathús Garðabæjar leggur mikla áherslu á að börnum líði vel. Því er sérstakt barnaherbergi á staðnum þar sem börn geta dundað sér í ró og næði þegar þeim hentar. „Við bjóðum því upp á flest allt sem þarf fyrir glaðan dag með fjölskyldunni; frábæran mat og drykk, góða aðstöðu fyrir börnin og að sjálfsögðu næg bílastæði.“ Nánari upplýsingar á mathus.is og á Facebook og Instagram (@mat- hus210). Opnunartími um jól og áramót Laugardaginn 23. desember (Þor- láksmessa) Jólabrunch frá kl. 11.30 til 14 Jólahlaðborð frá kl. 18 til 21 Örfá borð laus. Sunnudaginn og mánudaginn 24.- 25. desember er lokað Þriðjudaginn 26. desember (Annar í jólum) Jólabrunch frá kl. 11.30 til 14 A la carte matseðill frá kl. 17 til 22 Örfá borð laus. Miðvikudaginn 27. desember til föstudagsins 29. desember er opið frá kl. 11.30 til 22.30. Boðið upp á bistro-seðil. Laugardaginn 30. desember Jólabrunch frá kl. 11.30 til 14.30 A la carte matseðill frá kl. 17 til 22 Sunnudaginn 31. desember og mánudaginn 1. janúar verður lokað. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . d E S E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 8 -B 3 D 4 1 E 9 8 -B 2 9 8 1 E 9 8 -B 1 5 C 1 E 9 8 -B 0 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.