Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 62

Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 62
Andsetni klarinettuleikarinn“ var fyrirsögn greinar sem ég skrifaði um stórfenglega tón-leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í janúar. Fyrirsögnin vísaði til einleikarans, Kari Kriikku, í verki eftir samtímatónskáldið Kajiu Saariaho. Hann var ekki bara kyrr á meðan hann var að leika eins og langoftast tíðkast, heldur dansaði spilandi um salinn. Það var svo dramatískt og spúkí að hann virtist vera andsetinn. En dulúð var líka yfir tónlistinni í heild sinni. Hún fjallaði um skilningarvitin, og í síðasta kaflanum, um sjötta skilningarvitið, gengu allmargir hljóð- færaleikarar Sinfóníunnar löturhægt út úr salnum, leikandi ofurveikt á hljóðfærin sín. Þeir liðu framhjá áheyrendum líkt og upp- vakningar úr þáttaröðinni Walking Dead. Þetta hljómar eins og tónleikarnir hafi verið einhvers konar viðundrasýning, en svo var ekki. Verkið var innblásið af veggteppum frá miðöldum sem tákna skilningarvitin, og í því sjötta hverfur skynjun ytri veruleika, athyglin beinist inn á við. Það var þá sem hljóm- sveitin breyttist í uppvakninga, hina lifandi dauðu, líkt og þeir væru horfnir frá veröldinni í anda og sæju aðeins hið ósýnilega. Það var mögnuð upplifun. Einfaldleikinn rokkar Tónlist Saariaho er flókin. Annað sam- tímatónskáld, sem hefur verið nokkuð áberandi í tónlistar- lífinu á árinu, Philip Glass, er þekkt fyrir hið gagn- stæða. Tónleikar Víkings Heið- ars Ólafssonar píanóleikara, þar sem hann flutti etýður eftir Glass, voru skemmtilegir. Tónlistin var mínímal- ísk, sem þýðir að sama tónahendingin var yfirleitt endurtekin í sífellu en þó með smá- vægilegum breytingum. Framvindan var því afar hæg. Einfaldleikinn var í fyrirrúmi. Aðferðin er frá- brugðin fagurtónlist- inni sem áður þekktist. Hún byggðist yfirleitt á flókinni úrvinnslu hugmyndanna sem teflt var fram í upphafi viðkomandi tónsmíð- ar. Framvindan var þá aðalatriðið, tónlistin var eins og skáldsaga þar sem sífellt var eitthvað á seyði. Ein- föld endurtekning var fyrirlitin, hún þótti svo banal. Gaman er hve þetta hefur breyst. Í dag er nútímatón- list fjölbreytt, hún lýtur ekki neinni sér- stakri form- úlu. Maður veit aldrei á hverju er von þegar slík músík er á efnis- skránni. Óhætt er að segja að áheyrendur hafi hrifist mjög af verkunum eftir Glass sem Víkingur Heiðar flutti, sem og af öðrum eftir Glass á fjölmörg- um tónleikum ársins. Súperman sem enginn þekkti Undirritaður var svo heppinn að sjá og heyra tvær frábærar erlendar kammer- sveitir sem sóttu okkur heim. Annars vegar var það Kammersveit Vínar og Berlínar, sem samanstendur af rjómanum af tveimur frábærum sinfóníu- hljómsveitum sömu borga. Hins vegar Aca- demy of St. Martin in the Fields. Mjög sér- stakt er að upplifa leik svo framúrskarandi hljóðfæraleikara í lif- andi flutningi. Það er eins og ef Súperman stigi niður af himnum og stæði fyrir framan mann, hnyklandi vöðvana. Með síðarnefndu hljómsveitinni lék einleik einn færasti fiðluleikari heims, Joshua Bell. Hann vakti gríðarlega athygli þegar hann tók þátt í athyglis- v e r ð r i t i l r a u n fyrir tíu árum. Þremur dögum eftir að hann sló í gegn á tónleikum í Washing- ton, setti hann á sig derhúfu eins og hver annar götuspilari og lék sömu dagskrána í neðanjarðar- lestarstöð. Hjá honum var baukur sem fólk gat sett peninga í. Nánast enginn þekkti hann, fæstir virtu hann viðlits. Gangandi vegfarend- ur voru eins og uppvakningarnir sem nefndir voru í byrjun þessarar greinar. Snillingurinn hafði aðeins 37 dollara upp úr krafsinu. Bell lék hér m.a. einleik í fiðlu- konsertinum eftir Beethoven. Túlkun hans var svo fersk og sannfærandi að það var eins og að heyra verkið í fyrsta sinn. Þetta var ofurmannlegur flutningur. Eins og á AA-fundi Annar erlendur snillingur spilaði allt öðru vísi tónlist, djasspíanó- leikarinn og tónskáldið Herbie Hancock. Ef Joshua Bell var Súp- erman, þá var Hancock Batman. Það var þannig stemning á tón- leikunum, hún var svo myrk. Byrjun tónleikanna var reyndar eins og á AA-fundi. Hancock sagði áheyrendunum á tónleikunum að hann hefði komið til Íslands áður og skemmt sér afar vel. Mikið hefði verið drukkið. Núna væri hann hins vegar hættur því. Og eins gott; ef honum hefði ekki tekist það væri hann ekkert hér. Ljóst var að Hancock var alveg bláedrú! Hann lék af ótrúlegri fimi bæði á píanó en einnig ýmiss konar hljómborð. Það voru slíkar flugeldasýningar að maður fékk gæsahúð. Tónlistin kom stöðugt á óvart, spun- inn var með eindæmum djarfur, ímyndunaraflið var endalaust og tæknin fullkomin. Útkoman var einstök og ógleym- anleg skemmtun. Álfakór og ólíkir þræðir Fleiri ofurhetjur komu við sögu í tónleikalífinu. Þar á meðal var Gand- álfur grái. Í ágúst voru stór- t ó n l e i k a r þar sem tónlistin eftir Howard Shore við Hringadróttinssögu var flutt um leið og fyrsta kvik- myndin, Föruneyti hringsins, var sýnd. Það var tilkomumikil upplifun. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands lék meistaralega, og tveir kórar, Fílharmónía og Hljómeyki, voru pottþéttir. Kór- söngurinn er mjög fyrirferðar- mikill í myndinni og þar má ekkert bregðast. Kórsenurnar með álfunum voru seiðandi, ekki síst í Lothlorien hjá skógar- álfunum. Aðrir stórkostlegir tónleikar voru haldnir nýverið, en þar kom fram sænski djasspíanist- inn Jan Lundgren ásamt Bar- börukórnum, Sigríði Thorlacius og kontrabassaleikaranum Hans Backenroth. Ef Bell var Súper- man og Hancock Batman, þá var Lundgren Spiderman. Hann var afar fimur á hljómborðinu, sveiflaði sér upp og niður, af óviðjafnanlegri mýkt og þokka, rétt eins og Köngulóarmaður- inn. Meginuppistaða dag- skrárinnar var samansafn verka eftir Monteverdi, Gabrieli, Gaff- urio, Morales, Byrd og Victoria. Djassinn rann saman við endur- reisnartónlistina og útkoman var sterkur og heilsteyptur vefur ólíkra þráða tónlistarsögunnar. Þetta var frábær skemmtun, kannski tónleikar ársins – ef hægt er að tala um slíkt. Í það heila var árið afar gott á tónlistarsviðinu. Margt frábært bar þar fyrir augu og eyru, flottir einleikarar og einsöngvarar, stór- glæsileg Tosca og fleira sem ekki er pláss til að tíunda hér sérstaklega. Ég þakka lesendum mínum sam- fylgdina á árinu og óska öllum gleðilegs nýs árs. Jónas Sen Mjög sérstakt er að upplifa leik svo fraMúrskar- andi hljóðfæra- leikara í lifandi flutningi. Það er eins og ef súperMan stigi niður af hiMnuM og stæði fyrir fraMan Mann, hnyklandi vöðvana. annar erlendur snillingur spil- aði allt öðru vísi tónlist, djass - píanóleikarinn og tónskáldið herbie hancock. ef joshua bell var súperMan, Þá var hancock batMan. Þá riðu ofurhetjur um héruð tónlistarárið 2017 er að renna sitt skeið á enda og Jónas Sen tónlistargagnrýnandi horfir um öxl og rifjar upp það sem flaug hæst og lýsti upp árið með leiftrandi tónaflóði. í ágúst voru stór- tónleikar Þar seM tónlistin eftir howard shore við hringa- dróttinssögu var flutt uM leið og fyrsta kvikMyndin, föruneyti hringsins, var sýnd. Það var tilkoMuMikil upplifun. 2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r42 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 9 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 8 -B 8 C 4 1 E 9 8 -B 7 8 8 1 E 9 8 -B 6 4 C 1 E 9 8 -B 5 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.