Fréttablaðið - 23.12.2017, Side 92

Fréttablaðið - 23.12.2017, Side 92
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 17.12.17- 23.12.17 Umvafinn jóLaseríUm Hjólagarpurinn Óskar Sæmunds- son, sem hjólar í vinnuna allan ársins hring, sagði frá og sýndi lesendum hvernig hann lýsir sig upp í skammdeginu með því að vefja um sig jólaseríum. Gjafir í takt við stjörnUmerki Lífið gaf góð ráð um hvernig á að kaupa jólagjafir fyrir vini og vandamenn eftir stjörnumerkjum viðkomandi. Þar kom í ljós að Hrútar ættu að fá glitrandi skart, Vogin ætti að fá eitthvert fínerí, helst hönnun, á meðan Sporð- drekinn væri sáttur við eitthvað kúl og töff. sóLrún DieGo skóLUð tiL Margrét Sig- fúsdóttir, skólastýra Hússtjórnar- skólans, segir nýja þrifbók Sól- rúnar Diego ágæta en sum ráðin í bókinni fá hana til að hrista hausinn. „Kaflinn um þvottinn á handklæðum fer fyrir brjóstið á mér. Ég myndi ekki vilja nota þá þvottapoka eða það handklæði sem er þvegið á 30°C.“ eftirminniLeGir kjóLar ársins 2017 Í vikunni rifjaði Lífið upp eftirminnilega kjóla sem sáust á rauðum dreglum árið 2017. Dakota Johnson í Gucci-kjól, Zoe Kravitz í kjól frá Dior og Janelle Monae í Elie Saab voru meðal þeirra sem náðu á listann. The Icelandic World Championship Ginger Cookie Competition er risa piparköku-keppni sem haldin verður 28. desember af Niceland í samvinnu við Sigur Rós og hátíð hljómsveitarinnar, Norður og niður. Heilinn bak við keppnina er Oliver Luckett og segir hann að sagan bak við þessa keppni sé nokkuð góð. „Þetta byrjaði þegar við Scott komum fyrst til Íslands árið 2011, þá tókum við þátt í piparköku- keppni sem var haldin af Jóni Gnarr, Björk og fleirum þegar Jón Gnarr var borgarstjóri. Þetta var einhvers konar sambland af afmælisboði, brúðkaupsafmæli og einhverju, ég er ekki alveg viss. Við mættum með risastórt piparkökuhús sem Disney Imagineering hafði aðstoðað okkur við að byggja. Við vorum ansi sigur- vissir – en við unnum alls ekki. Við vorum í raun úr leik vegna þess að þeir frá Disney mættu ekki með okkur í keppnina. Björk sagðist skammast sín og flautaði keppnina af.“ Eftir að Oliver Luckett og Scott Guinn, eiginmaður hans, fluttu til landsins ákváðu þeir að halda keppnina aftur enda fannst þeim fyrri keppnin frábær þrátt fyrir allt. Húsgögnin þeirra voru ekki komin til landsins á þessum tímapunkti og húsið þeirra, Kjarvalshúsið svo- kallaða, á Seltjarnarnesi því nokkuð tómt og alveg tilvalið til að halda þessa keppni í. Um 20 manns tóku þátt í það skiptið og tókst vel til. „Fólk tekur þessu alvarlega,“ segir Oliver hlæjandi, „við byggðum Trump-turninn til að mynda, það var rosalegt. Í ár stefnir í að keppnin verði tekin ansi alvarlega – við vitum að þeir hjá GAMMA eru búnir að ráða bakara, við erum líka búnir að ráða bakara … við erum að reyna að breyta þessu í eitthvað klikkað. Við erum með fullt af karlmennskuegó- um í samkeppni þarna, það endar alltaf vel. Jólaandinn verður ekki til staðar í þessari keppni.“ Oliver segir að eftir keppnina sé húsunum yfirleitt rústað, aðallega vegna þess að það er skemmtilegt en að einhverjir þeirra sem vinna ekki rústi húsum sínum í reiði. „Í fyrra byggði umboðsmaður Bjarkar kastalann úr Galdrakarl- inum í Oz og varð svo tapsár þegar hann vann ekki að hann kastaði kastalanum út í sjó,“ segir Oliver. Það má því segja að í keppninni ríki ákveðinn keppnisandi. Eru þetta bara gömlu góðu pipar- kökuhúsin eða má byggja hvað sem er? „Já, það má bara byggja hvað sem er, úr piparkökum – og öðru nammi. Eina skilyrðið er að útveggirnir verði ætir. Byggingarnar eru dæmdar á hönnun, frumleika og síðast en ekki síst bragði – þannig að þú getur ekki sprautað lími yfir allt saman eða bara byggt hús úr Legói og smurt kremi á það.“ Keppnin verður ekki dæmd af neinum aukvisum. Meðlimir Sigur Rósar verða dómarar ásamt tón- listarkonunni Peaches, Nonni Gnarr, sonur Jóns, verður sérstakur krakkadómari og er víst gríðarlega spenntur fyrir að verða loksins frægur og svo verður líklega Ásgeir Sandholt á svæðinu til að halda uppi fagmennskunni. Scott Guinn verður kynnir. Eliza Reid dæmdi í keppn- inni í fyrra og vonast Oliver til að fá hana til leiks aftur í ár. „Við Scott erum aðallega að gera þetta til að hafa gaman. Við eigum líka engin börn svo það er gaman að fá eins og einn dag þar sem við tökum að okkur börn í svona klukku- tíma, fyllum þau af sykri og sendum þau heim,“ segir Oliver kíminn. Keppnin er öllum opin og til þess að taka þátt er best að senda póst á gingercookies@niceland.com fyrir 26. desember. Fólk er hvatt til að koma með börnin sín til að horfa á keppnina – á staðnum verður sér- stakt barnahorn þar sem krakkarnir geta leikið sér að því að byggja pipar- kökuhús. stefanthor@frettabladid.is Búnir að ráða bakara Hjónin Oliver Luckett og Scott Guinn halda piparkökukeppni í Hörpu milli jóla og nýárs. Hún er opin öllum sem hafa metnað fyrir bakstri. Undirbúningur fyrir keppnina er kominn á fullt, allavega hjá Oliver og Scott sem eru í miklu keppnisskapi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÚNSÆNGUR Mikið úrval Einbreiðar, tvíbreiðar og barnasængur. Nú aðeins 17.925 kr. JÓLA- TILBOÐ DORMA DELUX DÚNSÆNG Sérlega hlý og mjúk 600 gr. dúnsæng, 140x200 cm · 90% dúnn · 10% smáfiður Fullt verð: 23.900 kr. 25% AFSLÁTTUR af DORMA LUXE Aðeins 9.900 kr. Notalegar og hlýjar jólagjafir Komdu í Dorma TVENNUTILBOÐ Dúnsæng og dúnkoddi Sæng 140 x 200 cm. 85% smáfiður og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver. Fullt verð: 9.900 kr Koddi 50x70 cm. 70% smáfiður og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver. Fullt verð: 4.900 kr. Fullt verð samtals: 14.800 kr. ÓTRÚLEGT jólatilboð Dúnsæng + dúnkoddi OPNUNARTÍMI Lau. 23. des. 11–22 | Sun. 24. des. 10–13 Jóladagur og annar í jólum LOKAÐ 27.–29. des. 10–18 | Lau. 30. des. 11–17 Gamlársdagur og nýársdagur LOKAÐ Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði www.dorma.is Ný og betri vefverslun ALLTAF OPIN í fyrra ByGGði UmBoðsmaðUr Bjarkar kastaLann úr GaLDrakarLinUm í oz oG varð svo tapsár þeGar hann vann ekki að hann kastaði kastaLanUm út í sjó. 2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r72 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 8 -7 D 8 4 1 E 9 8 -7 C 4 8 1 E 9 8 -7 B 0 C 1 E 9 8 -7 9 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.