Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 16

Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 20. júní 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.7 101.18 100.94 Sterlingspund 128.62 129.24 128.93 Kanadadalur 76.01 76.45 76.23 Dönsk króna 15.132 15.22 15.176 Norsk króna 11.871 11.941 11.906 Sænsk króna 11.548 11.616 11.582 Svissn. franki 103.34 103.92 103.63 Japanskt jen 0.9047 0.9099 0.9073 SDR 138.98 139.8 139.39 Evra 112.54 113.16 112.85 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 138.1217 Hrávöruverð Gull 1251.1 ($/únsa) Ál 1859.0 ($/tonn) LME Hráolía 46.82 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Ómar Svavarsson hefur verið ráðinn forstjóri Securitas. Ómar var forstjóri Vodafone á ár- unum 2009-2014 en hefur frá árinu 2015 gegnt starfi framkvæmdastjóra sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá. Hann tekur við af Guðmundi Arasyni, sem lætur af störfum eftir að hafa starfað hjá Securitas um árabil. Í tilkynningu um ráðningu Ómars er haft eftir Guðlaugu Kristinsdóttur, stjórnarformanni Securitas, að starfsemin sé að taka miklum breytingum með auk- inni áherslu á upplýsingatækni og rafræna þjónustu við viðskiptavini. „Það er því mikill fengur fyrir félagið að fá Ómar til liðs við okkur sem hefur umfangsmikla reynslu af störfum á fjarskipta- og trygg- ingamarkaði þar sem þróunin í tækni og þjónustu hefur verið hvað örust.“ Ómar tekur við starfi forstjóra Securitas Ómar Svavarsson STUTT VIÐTAL Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Um það bil helmingur eigna sænska lífeyrissjóðsins Alecta er á erlendri grundu, segir Magnus Billing, for- stjóri lífeyrissjóðsins. Til saman- burðar eru um 23 prósent eigna ís- lenskra lífeyrissjóða erlendis. Fram hefur komið í ViðskiptaMogganum að almennt fjárfesti sænskir lífeyrissjóðir yfir 60% eigna sinna erlendis. „Í ljósi þess hve alþjóðleg mörg af þeim sænsku fyrirtækjum sem sjóðurinn hefur fjárfest í eru má færa rök fyrir því að stærri hluti eignanna sé erlendis,“ segir Billing í samtali við Morgunblaðið. Hann var staddur hér á landi vegna ráð- stefnu fyrir fagfjárfesta á vegum Fossa markaða um fjárfestingar sænskra lífeyrissjóða erlendis. Fyrirferðarmeiri á Íslandi Billing, sem eitt sinn var forstjóri Nasdaq Nordic, vekur athygli á því að sænskir lífeyrissjóðir eigi ekki nærri jafn hátt hlutfall af sænska hlutabréfamarkaðnum og íslenskir lífeyrissjóðir eiga á íslenska mark- aðnum. Honum þykir æskilegt að hlut- hafahópur fyrirtækja sé blandaður af lífeyrissjóðum og einkafjárfest- um. „Við erum fagfjárfestir en við munum aldrei skipta okkur af rekstri einstakra fyrirtækja. Upp- bygging sjóðsins er ekki með þeim hætti að við getum sinnt því hlut- verki. Alecta getur verið góður hluthafi með stóra stöðu, en það þarf líka einkafjárfesta. Ég á samt erfitt með að segja til um hve hátt hlutfall af markaðnum lífeyrissjóðir ættu að eiga.“ Hann segir að Alecta sé virkur fjárfestir sem greiði atkvæði á aðal- fundum og þegar bjóðist að tilnefna fólk í nefndir sem leggur til hvaða stjórnarmenn sitja í stjórnum fyr- irtækja geri sjóðurinn það. „Við höfum tekið þátt í 17 slíkum tilnefn- ingum í ár. Með þeim hætti getum við lagt okkar af mörkum að fyrir- tækin hafi sterka stjórn,“ segir Bill- ing. Spurður hve langan tíma það taki að skapa þekkingu á nýjum erlendum mörkuðum segir hann að það taki sinn tíma, og æskilegt sé að sýna því skilning. Alecta fjárfesti ekki háum fjárhæðum fyrst um sinn þegar lagt sé fé á nýja markaði. „Það þarf að læra af vegferðinni.“ Fyrir um átta árum hóf lífeyrissjóð- urinn að fjárfesta í Bandaríkjunum og hlutfall eigna þar í landi hefur hægt og bítandi orðið umtalsvert. Billing nefnir að þrátt fyrir að Alecta sé virkur fjárfestir hafi sjóð- urinn fjárfest í vísitölusjóðum í þeim nýmarkaðsríkjum sem sjóð- urinn hafi litla reynslu af. Alecta hefur ekki fjárfest á Ís- landi. Spurður hvers vegna ekki segir Billing að nýverið hafi fjár- magnshöftum verið aflétt hér á landi. „Þið hafið verið læst úti í nokkur ár,“ segir hann. Sænskir lífeyrissjóðir fjár- festa mun meira erlendis Morgunblaðið/Ófeigur Forstjóri Magnus Billing segir að æskilegt sé að lífeyrissjóðir og einkafjárfestar eigi í skráðum fyrirtækjum. Yfir 9.000 milljarðar króna í stýringu » Alecta stýrir um 800 millj- örðum sænskra króna, sem svarar til um 9.350 milljarða króna. » Til samanburðar námu eign- ir íslenska lífeyriskerfisins í heild 3.726 milljörðum króna árið 2016. » Alecta hefur ekki enn fjár- fest á Íslandi.  Sænskur forstjóri segir að afla þurfi þekkingar áður en fjárfest sé á nýjum mörkuðum Rangt var farið með tölur í línuriti um hve mikið erlendir ferðamenn aka hér á landi sem fylgdi viðtali við forstjóra Sjóvár í Viðskipta- Mogganum á fimmtudag. Því er lag- fært súlurit birt hér til hliðar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Upp- lýsingarnar sem grafið byggir á má finna í skýrslunni Akstur og öryggi erlendra ferðamanna 2016, sem Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónust- unnar ehf. tók saman. Akstur erlendra ferðamanna Heimild: Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar Milljónir ekinna kílómetra á bílaleigubílum árið 2016 J F M A M J J Á S O N D 100 75 50 25 0 107 9 37 17 Mun betri nýting bílaleigubíla á sumrin LEIÐRÉTT Pólska símafyrirtækið Play hefur ráðið fjárfestingarbankana J.P. Morgan, BofA Merrill Lynch og UBS, auk tveggja pólskra banka, til þess að leiða skráningu félagsins í Kauphöllinni í Varsjá. Samkvæmt Financial Times verður þetta stærsta frumútboð símafélags í Evrópu í fimm ár. Samkvæmt FT vænta markaðs- greinendur þess að Play verði met- ið á yfir 3,5 milljarða evra með skuldum, jafngildi tæplega 400 milljarða króna. Play er í helmings- eigu Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, á móti gríska fjárfestingarfélaginu Olympia Development. Greint var frá því í Morgun- blaðinu í lok apr- íl að eigendur Play væru að kanna möguleika á skráningu fé- lagsins. Play er næststærsta far- símafélagið í Pól- landi, með yfir 14,3 milljónir viðskiptavina. Saga Play spannar um áratug og hefur markaðshlutdeild félagsins vaxið úr 4,6% árið 2008 í 27,6% í lok mars. Tekjur á síðasta ári námu liðlega 6 milljörðum pólskra slota, eða um 165 milljörðum króna. Björgólfur Thor Björgólfsson Pólskt símfélag Novators komið í skráningarferli Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is STURTUKLEFAR Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.