Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
Hólmsheiði Ekki þarf að fara langt frá malbikinu til þess að sjá litadýrð náttúrunnar og mönnum á fisvélum eru ekki aðeins allar leiðir færar heldur hafa þeir góða yfirsýn.
Árni Sæberg
„Lengi tekur sjór-
inn við“ er orðtæki
sem okkur Íslend-
ingum hefur verið
tamt og við höfum
lengi notað í sam-
skiptum við hafið um-
hverfis landið. Svipað
hefur því verið háttað
með aðrar strand-
þjóðir. Nú er þessi
draumur á enda eins
og svo margar blekk-
ingar sem lokuðu sýn manna til
umhverfisins, sjávarins og and-
rúmsloftsins. Það hefur tekið
mannsaldur fyrir alþjóða-
samfélagið að komast skref fyrir
skref að niðurstöðu um ástand og
horfur. Eitt er að öðlast skilning
og sameinast um mat á aðstæðum,
annað að ná saman um lausnir sem
eru líklegar til úrbóta. Sameinuðu
þjóðirnar, sem oft er gert lítið úr,
hafa gegnt lykilhlutverki í að opna
augu manna fyrir hvert stefnir í
umhverfismálum, fyrst með Stokk-
hólmsráðstefnunni 1972 og nú síð-
ast á nýafstaðinni ráðstefnu í New
York um sjálfbæra nýtingu og
verndun heimshafanna. Svipað
Parísarsamkomulaginu um lofts-
lagsmál 2015 var þar
verið að leita sam-
stöðu þjóða heims um
aðgerðir til bjargar
heimshöfunum. Hér
má ekki sitja við orðin
tóm og ætti Ísland að
keppa að því að vera í
fararbroddi við að
hrinda samþykktum
þessa fundar í fram-
kvæmd eins og frek-
ast er unnt.
Súrnun hafsins
og olíumengun
Losun gróðurhúsalofts út í and-
rúmsloftið veldur ekki aðeins
hækkun hitastigs og sjávarborðs
vegna bráðnunar jökla, heldur
jafnframt súrnun heimshafanna.
Ástæðan er sú að sjórinn tekur til
sín um þriðjung gróðurhúsaloftsins
sem veldur efnabreytingum og
hækkandi sýrustigi sjávar með al-
varlegum afleiðingum fyrir lífverur
sem byggja stoðkerfi sín á kalki,
svo sem skeljar, kórallar og kalk-
þörungar. Áhrifin valda keðjuverk-
un, einnig fyrir fiska, og geta
þannig gripið inn í alla lífkeðju
hafsins og afrakstur manna af
sjávarauðlindum. Hér eru öll
heimsins höf og strandsvæði undir.
Samdráttur í losun gróðurhúsalofts
af mannavöldum er því lífsnauðsyn
eins og viðurkennt var með Par-
ísarsamkomulaginu, en sem banda-
rísk stjórnvöld hóta nú að draga
sig út úr. – Notkun jarðefnaelds-
neytis, kola og olíu, er það sem
mestu veldur um losun gróð-
urhúsalofts með afleiðingum fyrir
lofthjúpinn og heimshöfin. Þar við
bætast bein óhöpp við vinnslu olíu
af sjávarbotni. Ísland jók við losun
gróðurhúsalofts um 28% á tíma-
bilinu 1990-2015. Samkvæmt Par-
ísarsamkomulaginu hyggjast ís-
lensk stjórnvöld ná 40% samdrætti
fram til ársins 2030, en það er
sýnd veiði en ekki gefin. Þannig
gætum við staðið í svipuðum spor-
um um losun árið 2030 og fyrir
fjörutíu árum síðan, sem er allt
annað en viðunandi. Olíumengun
sjávar er einnig í nokkrum mæli
frá landstöðvum, en alvarlegra er
að opinberlega stefna íslensk
stjórnvöld enn að olíuvinnslu á
Drekasvæðinu.
Háskaleg plastmengun
Á síðustu árum hefur komið í
ljós að mengun af plasti er einn al-
varlegasti þátturinn í mengun hafs
og sjávarlífvera. Plastnotkun í
heiminum er nú talin vera um 300
milljónir tonna ár hvert og hefur
árlega vaxið um 4% undanfarið.
Plastpokar eru drjúgur hluti af því
sem skilar sér í hafið, en plastefni
eru líka þáttur í fjölmörgum fram-
leiðsluvörum sem berast beint og
óbeint til sjávar. Plast brotnar
mjög hægt niður í hafinu og eftir
sitja örsmáar agnir sem berast inn
í fæðukeðjuna með alvarlegum af-
leiðingum fyrir sjávarlífverur og
vistkerfi sjávar. Þaðan berst plast-
ið í sjófugla og önnur dýr sem
nærast á fæðu úr hafinu, maðurinn
þar ekki undanskilinn. Risastórar
plasthvirfingar mynda nú eins-
konar eylönd á úthöfunum sem
viðbjóðslegur vitnisburður um
þessa handhægu en háskalegu af-
urð neyslusamfélagsins, eins og
skilmerkilega var rakið nýlega í
leiðara Morgunblaðsins (20. maí
2017). Ráðstefnan í New York um
hafið hvatti m.a. til markvissra að-
gerða gegn einnota plastumbúðum.
Athygli vekur að franska þingið
setti sl. haust lögbann á notkun
plastpoka í verslunum og boðar
frekari löggjöf til að taka á öðrum
einnota plastumbúðum ekki síðar
en árið 2020. Á Norðurlöndum hef-
ur hreyfing áhugamanna hvatt til
svipaðra aðgerða, og hérlendis
hafa Landvernd og einstaklingar
beitt sér fyrir hreinsunarátaki með
ströndum fram, en þar fer mest
mest fyrir plastúrgangi.
Ísland geri hreint fyrir
sínum dyrum
Sem eyland og fiskveiðiþjóð þarf
Ísland að taka föstum tökum allt
það sem varðar mengun hafsins
innan sinnar víðáttumiklu
efnahagslögsögu. Við áttum góðan
þátt í því á seinnihluta 20. aldar að
knýja fram Hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna um fiskveiði-
réttindi og höfum náð betri ár-
angri en flestir aðrir í að tryggja
sjálfbæra nýtingu helstu fiski-
stofna, þótt deilt sé um skiptingu
arðsins. Nú þurfum við að einbeita
okkur að mengunarþættinum af
miklu meiri þrótti en hingað til.
Þar til heyrir að vinna gegn upp-
skrúfaðri neysluhyggju og sóun
sem er einn mesti löstur vest-
rænna samfélaga.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Plast brotnar mjög
hægt niður í hafinu
og eftir sitja örsmáar
agnir sem berast inn í
fæðukeðjuna með alvar-
legum afleiðingum
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Mengun hafsins – sjórinn tekur ekki lengur við