Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 19

Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Hólmsheiði Ekki þarf að fara langt frá malbikinu til þess að sjá litadýrð náttúrunnar og mönnum á fisvélum eru ekki aðeins allar leiðir færar heldur hafa þeir góða yfirsýn. Árni Sæberg „Lengi tekur sjór- inn við“ er orðtæki sem okkur Íslend- ingum hefur verið tamt og við höfum lengi notað í sam- skiptum við hafið um- hverfis landið. Svipað hefur því verið háttað með aðrar strand- þjóðir. Nú er þessi draumur á enda eins og svo margar blekk- ingar sem lokuðu sýn manna til umhverfisins, sjávarins og and- rúmsloftsins. Það hefur tekið mannsaldur fyrir alþjóða- samfélagið að komast skref fyrir skref að niðurstöðu um ástand og horfur. Eitt er að öðlast skilning og sameinast um mat á aðstæðum, annað að ná saman um lausnir sem eru líklegar til úrbóta. Sameinuðu þjóðirnar, sem oft er gert lítið úr, hafa gegnt lykilhlutverki í að opna augu manna fyrir hvert stefnir í umhverfismálum, fyrst með Stokk- hólmsráðstefnunni 1972 og nú síð- ast á nýafstaðinni ráðstefnu í New York um sjálfbæra nýtingu og verndun heimshafanna. Svipað Parísarsamkomulaginu um lofts- lagsmál 2015 var þar verið að leita sam- stöðu þjóða heims um aðgerðir til bjargar heimshöfunum. Hér má ekki sitja við orðin tóm og ætti Ísland að keppa að því að vera í fararbroddi við að hrinda samþykktum þessa fundar í fram- kvæmd eins og frek- ast er unnt. Súrnun hafsins og olíumengun Losun gróðurhúsalofts út í and- rúmsloftið veldur ekki aðeins hækkun hitastigs og sjávarborðs vegna bráðnunar jökla, heldur jafnframt súrnun heimshafanna. Ástæðan er sú að sjórinn tekur til sín um þriðjung gróðurhúsaloftsins sem veldur efnabreytingum og hækkandi sýrustigi sjávar með al- varlegum afleiðingum fyrir lífverur sem byggja stoðkerfi sín á kalki, svo sem skeljar, kórallar og kalk- þörungar. Áhrifin valda keðjuverk- un, einnig fyrir fiska, og geta þannig gripið inn í alla lífkeðju hafsins og afrakstur manna af sjávarauðlindum. Hér eru öll heimsins höf og strandsvæði undir. Samdráttur í losun gróðurhúsalofts af mannavöldum er því lífsnauðsyn eins og viðurkennt var með Par- ísarsamkomulaginu, en sem banda- rísk stjórnvöld hóta nú að draga sig út úr. – Notkun jarðefnaelds- neytis, kola og olíu, er það sem mestu veldur um losun gróð- urhúsalofts með afleiðingum fyrir lofthjúpinn og heimshöfin. Þar við bætast bein óhöpp við vinnslu olíu af sjávarbotni. Ísland jók við losun gróðurhúsalofts um 28% á tíma- bilinu 1990-2015. Samkvæmt Par- ísarsamkomulaginu hyggjast ís- lensk stjórnvöld ná 40% samdrætti fram til ársins 2030, en það er sýnd veiði en ekki gefin. Þannig gætum við staðið í svipuðum spor- um um losun árið 2030 og fyrir fjörutíu árum síðan, sem er allt annað en viðunandi. Olíumengun sjávar er einnig í nokkrum mæli frá landstöðvum, en alvarlegra er að opinberlega stefna íslensk stjórnvöld enn að olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Háskaleg plastmengun Á síðustu árum hefur komið í ljós að mengun af plasti er einn al- varlegasti þátturinn í mengun hafs og sjávarlífvera. Plastnotkun í heiminum er nú talin vera um 300 milljónir tonna ár hvert og hefur árlega vaxið um 4% undanfarið. Plastpokar eru drjúgur hluti af því sem skilar sér í hafið, en plastefni eru líka þáttur í fjölmörgum fram- leiðsluvörum sem berast beint og óbeint til sjávar. Plast brotnar mjög hægt niður í hafinu og eftir sitja örsmáar agnir sem berast inn í fæðukeðjuna með alvarlegum af- leiðingum fyrir sjávarlífverur og vistkerfi sjávar. Þaðan berst plast- ið í sjófugla og önnur dýr sem nærast á fæðu úr hafinu, maðurinn þar ekki undanskilinn. Risastórar plasthvirfingar mynda nú eins- konar eylönd á úthöfunum sem viðbjóðslegur vitnisburður um þessa handhægu en háskalegu af- urð neyslusamfélagsins, eins og skilmerkilega var rakið nýlega í leiðara Morgunblaðsins (20. maí 2017). Ráðstefnan í New York um hafið hvatti m.a. til markvissra að- gerða gegn einnota plastumbúðum. Athygli vekur að franska þingið setti sl. haust lögbann á notkun plastpoka í verslunum og boðar frekari löggjöf til að taka á öðrum einnota plastumbúðum ekki síðar en árið 2020. Á Norðurlöndum hef- ur hreyfing áhugamanna hvatt til svipaðra aðgerða, og hérlendis hafa Landvernd og einstaklingar beitt sér fyrir hreinsunarátaki með ströndum fram, en þar fer mest mest fyrir plastúrgangi. Ísland geri hreint fyrir sínum dyrum Sem eyland og fiskveiðiþjóð þarf Ísland að taka föstum tökum allt það sem varðar mengun hafsins innan sinnar víðáttumiklu efnahagslögsögu. Við áttum góðan þátt í því á seinnihluta 20. aldar að knýja fram Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna um fiskveiði- réttindi og höfum náð betri ár- angri en flestir aðrir í að tryggja sjálfbæra nýtingu helstu fiski- stofna, þótt deilt sé um skiptingu arðsins. Nú þurfum við að einbeita okkur að mengunarþættinum af miklu meiri þrótti en hingað til. Þar til heyrir að vinna gegn upp- skrúfaðri neysluhyggju og sóun sem er einn mesti löstur vest- rænna samfélaga. Eftir Hjörleif Guttormsson » Plast brotnar mjög hægt niður í hafinu og eftir sitja örsmáar agnir sem berast inn í fæðukeðjuna með alvar- legum afleiðingum Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Mengun hafsins – sjórinn tekur ekki lengur við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.