Morgunblaðið - 20.06.2017, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 20.06.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt allt virðist ganga þér í haginn skaltu hafa það bak við eyrað hversu fljótt veður skipast í lofti. Taktu við þessu nýja verkefni því þú ferð létt með það. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú nýtur þess að vera í hópi góðra vina í dag. Skjallaðu sjálfan þig, slappaðu af og njóttu heilsunnar sem er sífellt að verða betri. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt á hættu að kaupa eitthvað af fljótfærni í dag. Fáðu hlutlausan aðila til aðstoðar því hann sér málið öðrum aug- um. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ef þú ert í atvinnuleit farðu þá á staði þar sem þú hefur sótt um vinnu áð- ur. Ekki vera hræddur við að ýta á eftir fólki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samskipti þín við fólk eru svo ná- kvæm og næm að þú þarft næstum aldrei að hækka röddina til að leggja áherslu á mál þitt. Veltu þér ekki upp úr því þótt eitthvað fari úr skorðum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að blanda þér ekki um of í málefni annarra því það gæti orðið til þess að þér yrði kennt um annarra mistök. Gerðu þér svo far um að umgangast að- eins þá sem eru á jákvæðu nótunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur verið kúnst að græða sem mest á samstarfi við aðra. Vilji til sam- vinnu og að ná raunsæju samkomulagi hentar þér vel. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Stundum er sannleikurinn miklu tilþrifaminni en þú áttir von á. Fólk hefur tekið eftir því hvað þú hefur lagt hart að þér að undanförnu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gerðu greinarmun á skoðunum og staðreyndum. Settu því ekki upp hundshaus þótt þér líki þær ekki allar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Auðlegð og kraftur annarra kemur þér að góðum notum í dag. Varastu að senda öðrum misvísandi skilaboð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú býrð yfir mikilli orku í dag sem gerir þér kleift að koma mörgum hlut- um í verk. Einvera í fallegu umhverfi mun koma friði á hugann. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki kvíða samningum. Ekki vera með neitt á heilanum í millitíðinni, það dregur bara athyglina frá fegurðinni sem blasir við þér. Menn munu sjá þegar mál skýrast að þú hefur rétt fyrir þér. Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn. (Lúk. 1:68) Mér þykir hlýða að byrja áþessari hringhendu á Leir eftir Pétur Stefánsson: Frónskur lýður fagnar ör. Fánar prýða bæinn. Það er blíða, það er fjör, þjóðhátíðardaginn. Á föstudaginn vakti Sigurlín Hermannsdóttir athygli á því að menn hefðu áhyggjur, og með réttu, af því hvort íslenskan myndi lifa af í stafrænum heimi: – „Einu sinni höfðu menn miklar áhyggjur af dönskum áhrifum en þar er ólíku saman að jafna. Í fyrsta lagi bendir ekkert til þess að danska stefni að heims- yfirráðum og í öðru lagi held ég að dönskuslettur séu lokaður hóp- ur sem ekki muni bætast í. Því legg ég til að þær verði friðaðar.“ Og síðan yrkir hún um „Mál- vöndun“: Hún má ekki vera neitt moj því er magnað hve oft virðumst sloj en danskan er kekk og ef drifin er vekk þá verð ég sko ferlega foj. Það stóð ekki á athugasemd frá Páli Imsland „undir helgina og í aðdraganda Álftavatnsreiðar“: „Rétt hjá þér Sigurlín. Ég tek undir tillögu þína um friðun dönskuslettanna, og legg sérstaka áherslu í því sambandi á prent- smiðjudönskuna. Það er fallegasta danska sem ég hef heyrt, fallegri en jóska. Merkilegast var þó í þessu sam- bandi, að þessi herferð gegn dönskuslettunum bar árangur, en menn lærðu ekki af því að gera slíkt hið sama varðandi ensku- áhrifin: Þá Magga varð mannbær og bomm varð mamma’ hennar ferlega domm, því pabbinn var brun, beruset og lun og „brennivín í flasken da vi kom“.“ Út í aðra sálma: Þetta er „eilífð- arvandamál“ segir Helgi R. Ein- arsson: Um staurinn og rembing hjá rjúpunni og risann, sem endaði’ á kúpunni, segin er saga, sem seint tekst að laga, því setið er ennþá í súpunni. Og „þessir finnast“: Þótt talandi Lalla sé lipur og laglegur frekar hans svipur er eðli hans brotið, brenglað og rotið. Ljómandi gallagripur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Dönskuslettur og rjúpan við staurinn Í klípu „EN, EF ÞIÐ HORFIÐ Á ÞETTA FRÁ ÞESSUM SJÓNARHÓLI, ÞÁ LÍTUR STAÐ- AN EKKI SVO ILLA ÚT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG KOM MEÐ ÞIG HINGAÐ, SVO ÉG GÆTI BEÐIÐ ÞIG UM AÐ GIFTAST MÉR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann heldur upp á fimmtugsafmælið þitt, en segir að þú sért enn eins og þú sért tvítug. ÉG ER STOLTUR MAÐUR! EKKI SPYRJA MIG AF HVERJU ÉG ÆTLAÐI EKKI AÐ GERA ÞAÐ MJÖG STOLTUR MAÐUR ÞÚ ÆTTIR AÐ PANTA ÞAÐ SEM ÞJÓNNINN MÆLIR MEÐ… HLJÓMAR VEL! HVERJU MÆLIRÐU MEÐ? ÞETTA VAR ÞÍN HUGMYND!! ÉG GET MÆLT MEÐ ÖLLU Á MATSEÐLINUM! ALMANNATENGSL GRÓÐI SNARL Víkverji hefur áður haft orð á þvíhve þjónusta Reykjavíkurborgar getur verið döpur, þó að margt sé ágætlega gert. Eitt laugardags- síðdegi þurfti Víkverji að komast í sund og fyrst og fremst í heitan pott til að láta líða úr sér þreytu í baki eft- ir golfhring dagsins og aðra útivist. x x x Fyrst var stefnan tekin á SundhöllReykjavíkur, en þar er ein- staklega góður nuddpottur fyrir ba- kveika. Þegar þangað var komið reyndist sundhöllin lokuð vegna framkvæmda. Um það hafði Víkverji ekki vitneskju, enda svo sem ekki daglegur gestur, en í sjálfu sér eðli- legt að búið sé að loka vegna fram- kvæmda við nýju laugina. Víkverji bíður spenntur eftir að hún verði opnuð. x x x En jæja, þá varð að finna næstulaug. Næstbestu pottarnir að mati Víkverja eru í Árbæjarlaug og þangað lá leiðin, þó að löng væri. Er inn var komið voru starfsmenn komnir á fullt við að skúra og Vík- verja tilkynnt að lauginni yrði lokað eftir korter, eða kl. 18. Það var alltof stuttur tími fyrir slökun og furðaði Víkverji sig á þessum tíðindum. Laugardagur og hálf þjóðin búin að vera úti í góða veðrinu, og því kær- komið að komast í sund og heita potta. Víkverji ákvað að fara á vefinn og kanna hvenær Grafarvogslaug væri opin, sem er hin ágætasta laug, en þar var sama staða uppi, lokað kl. 18 á laugardögum. x x x Ekki vildi Víkverji fara í mann-mergðina í Laugardalslaug og of langt að aka í Vesturbæjarlaug, þannig að niðurstaðan var að aka í næsta bæjarfélag og fara í Kópa- vogslaug, sem opin er til kl. 20 á laug- ardögum. Það er mun gáfulegri þjón- usta en að loka sundlaugum kl. 18 um helgar, þegar fólk er á ferð og flugi yfir daginn og þarf síðan að þrífa sig og slaka á undir kvöld. Þarna mætti borgin gyrða sig í brók, eins og á svo mörgum öðrum sviðum, blessunin. vikverji@mbl.is Víkverji Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.