Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 31
31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
Secret Solstice 2017
AF SECRET SOLSTICE
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Tónlistarveislan hélt áfram allahelgina á Secret Solstice íLaugardalnum. Fór hátíðin
vel fram og varð ég ekki vör við
skipulagsleysi sem mikið var fjallað
um eftir hátíðina í fyrra. Veðrið ým-
ist lék við hátíðargesti eða reyndi
sitt besta til að rigna þá niður, enda
ekki við öðru að búast helgina í
kringum þjóðhátíðardag Íslendinga.
Svo mikið úrval var af veit-
ingavögnum að hátíðin hefði þurft að
standa yfir í a.m.k. viku frá morgni
til kvölds hefði fólk viljað bragða á
öllu sem í boði var. Segja mætti að
skin og skúrir, góður matur og ís-
lenskt og erlent rapp hafi einkennt
hátíðina að þessu sinni.
Eftir sæmilega rólega byrjun á
fimmtudegi hátíðarinnar var tölu-
vert meira líf í tuskunum á föstudag.
Sjálf byrjaði ég á að sjá unga ís-
lenska rapparann GKR á Gimli-
sviðinu. Góð mæting var á tón-
leikana hans en hann kvaðst nokkuð
hissa á því í hve miklu stuði áhorf-
endur voru svo snemma kvölds.
Sjálfur var hann í góðum gír og
hoppaði stanslaust fram og til baka á
sviðinu meðan hann rappaði lög sín á
borð við „Tala um“ og „Meira“ við
góðar undirtektir.
Ég eyddi restinni af kvöldinu við
Valhöll þar sem íslenska sveitin Vin-
tage Caravan kom mörgum á óvart
með þéttu rokki. Hljómsveitin Agent
Fresco laðaði marga hátíðargesti að
sviðinu með lögum af plötu sinni
Destrier og var framkoma hennar
góð að vanda.
Klukkan 22 var svo komið að
sveitinni sem margir höfðu beðið
hvað spenntastir eftir á hátíðinni,
þegar Foo Fighters steig á svið. Mér
og líklega fleirum sem höfðu komið
sér fyrir heldur aftarlega í mann-
mergðinni til mikillar gleði var tón-
leikum sveitarinnar varpað á skjá
efst á sviðinu. Hljómsveitarmeðlimir
fluttu mörg sinna þekktustu laga við
mikinn fögnuð áhorfenda. Söngvari
sveitarinnar, Dave Grohl, hafði orð á
því að þeir ættu alltof mikið af lögum
sem þeir vildu spila og lofaði því að
næst þegar þeir kæmu myndu þeir
spila í þrjár klukkustundir.
Á þjóðhátíðardaginn sjálfan sýndi
sólin sitt besta andlit og hátíðar-
gestir nutu hennar til hins ýtrasta og
tylltu sér á grasið víðsvegar um há-
tíðarsvæðið, margir með kaldan
drykk í hendi. Ég hafði beðið spennt
eftir að sjá sveitina Cyber á sviði, en
hún samanstendur af fjórum ungum
stúlkum sem einnig eru Reykjavík-
urdætur en lýsa sér sem örlítið
myrkari sveit með meiri „daddy
issues“. Ég varð alls ekki fyrir von-
brigðum með sveitina og get ekki
beðið eftir að sjá þær gera stærri
hluti í framtíðinni.
Rappararnir í Úlfi Úlfi trekktu
marga að Gimli-sviðinu þegar þeir
fluttu lög af nýju plötunni sinni
Hefnið okkar þar sem lagið „Bróð-
ir“ bar hvað hæst. Fljótlega lá þó
leið aðdáenda íslensks rapps að
Valhallarsviðinu þar sem XXX
Rottweiler hundar tróðu upp. Þeir
gjörsamlega trylltu lýðinn með
eldri lögum á borð við „Þér er ekki
boðið“ og „Gemmér“ sem og nýrri
lögum eins og „Negla“, „Í næsta
lífi“ og „Kim Jong-un“.
Auðvitað gat ekki verið að dag-
urinn myndi haldast alveg þurr
hinn 17. júní. Um það leyti sem The
Prodigy var að stíga á svið byrjaði
að rigna hressilega á tryllt mann-
hafið sem hoppaði og dansaði við
lög á borð við „Smack My Bitch
Up“, „Voodoo People“ og
„Breathe“. Áhorfendur héldu því
rennandi blautir en sáttir út af há-
tíðarsvæðinu eftir frammistöðu
undrabarnanna. Einhverjir héldu
beint inn í Hel þar sem danspartíið
hélt áfram langt fram eftir nóttu á
meðan aðrir héldu heim til sín í
hlýjuna.
Skemmtanahald helgarinnar var
augljóslega farið að taka sinn toll af
hressleika hátíðargesta þegar þeir
mættu til leiks á sunnudag, síðasta
degi hátíðarinnar. Dagskráin gaf þó
undanförnum dögum ekkert eftir.
Töluvert kaldara var í veðri en fólk
lét ekkert stoppa sig í að sjá marga
vinsælustu rappara landsins í Val-
höll. Þar stigu á svið, meðal ann-
arra, Herra Hnetusmjör, Emmsjé
Gauti og Gísli Pálmi en óhætt er að
segja að þeir séu stærstu nöfnin í
íslensku rappsenu dagsins í dag.
Af erlendum nöfnum sunnudags-
kvöldsins ber helst að nefna Young
M.A., Big Sean og Rick Ross sem
lokaði kvöldinu á stærsta sviðinu.
Örlítið rólegri stemning var á
minni sviðum hátíðarinnar en
hljómsveitin Kiriyama Family sem
hefur verið að auka vinsældir sínar
síðan 2012 steig á svið á Gimli og
var til fyrirmyndar í hljómleik og
söng. Ég var sérstaklega hrifin af
frammistöðu söngkonu sveit-
arinnar, Huldu Kristínar Kolbrún-
ardóttur.
Í Fenri var það svo hljómsveitin
Amabadama sem spilaði fyrir troð-
fullu tjaldi af börnum jafnt sem full-
orðnum sem dilluðu sér við lög eins
og „Gaia“ og „Ai Ai Ai“.
Hápunktur sunnudagsins og
jafnvel hátíðarinnar allrar fyrir
mér var svo þegar hinn auðmjúki
Daði Freyr sem vann hug og hjörtu
þjóðarinnar í Söngvakeppni sjón-
varpsins nú í vor steig á svið í Gimli.
Ég hafði reglulega séð honum
bregða fyrir í áhorfendaskara há-
tíðarinnar, enda er hann höfðinu
hærri en flestir. Honum þótti þó
viturlegast að fara úr svarta jakk-
anum sem hann klæddist yfir
grænu einkennispeysunni eftir
fyrsta lagið svo fólk myndi örugg-
lega þekkja hann. Daði Freyr spil-
aði meðal annars „Hvað með það?“,
sínar útgáfur af Eurovisionlög-
unum „Gleðibankinn“ og „Paper“
auk nokkurra eldri laga úr hljóm-
sveit sinni RetRoBot. Einnig flutti
hann nokkur óútgefin lög sem lof-
uðu góðu og ljóst er að Daði Freyr
er upprennandi stjarna. Ég ákvað
allavega eftir tónleikana hans að ég
skyldi fjárfesta í einni grænni
peysu með andlitinu á honum.
Flestir hátíðargestir hafa líklega
haldið sáttir en þreyttir út í líðandi
vinnuviku eftir langa og stranga
tónlistarhelgi.
Gulir Rapparinn GKR teygir sig til að „klessa“ samlita aðdáanda sinn.
Morgunblaðið/Hanna
Innlifun Söngvarar sveitarinnar Kiriyama Family, Karl og Hulda Kristín, lifa sig inn í flutninginn á sviðinu í Gimli.
Löng og ströng tónlistarveisla
Hundar Erpur og Bent eru meðlimir sveitarinnar XXX Rottweiler hunda.
» Veðrið ýmist lék við hátíðargesti eða reyndi sittbesta til að rigna þá niður. Segja mætti að skin
og skúrir, góður matur og íslenskt og erlent rapp
hafi einkennt hátíðina að þessu sinni.