Morgunblaðið - 20.06.2017, Page 36

Morgunblaðið - 20.06.2017, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Eiður og Ragnhildur skilin 2. „Lokkuð inn á flugvöll og …“ 3. Íris Arna greip vöndinn 4. Ökumanni bíls bjargað úr Ölfusá »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sólveig Guðmundsdóttir, sem ný- verið hlaut Grímuna sem besta leikkonan í aðalhlutverki, þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári. Hún leikur í verkinu Efa eftir John Patrick Shanley sem frumsýnt verður í Kassanum í jan- úar 2018. Leikstjóri uppfærslunnar er Stefán Baldursson og ný þýðing er eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Í öðrum hlutverkum eru Hilmir Snær Guðnason, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem snýr aftur á svið Þjóðleikhúss- ins eftir 13 ára hlé. Leikritið Efi er margverðlaunað og fjallar um mörkin í mannlegum samskiptum, tortryggni og nístandi óvissu. Dag einn tjáir skólastýra í kaþólskum barnaskóla í New York ungri kennslukonu að sig gruni að prest- ur í kennarahópnum eigi í óeðlileg- um samskiptum við einn skólapilt- anna. Presturinn neitar öllum ásökunum. Kvikmynd byggð á leik- ritinu frá árinu 2008 skartaði Me- ryl Streep, Philip Seymour Hoff- man og Amy Adams í lykilhlutverkum. Steinunn Ólína og Sólveig leika í Efa  Kvartett Carioca leikur á Kex hos- teli í kvöld kl. 20.30. Kvartettinn skipa Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á fiðlu og básúnu, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þórður Högnason á kontrabassa og Rodr- igo Lopes á slagverk. Carioca er heiti þeirra sem búa í borginni Rio de Janeiro í Bras- ilíu og verður tón- list kvöldsins sú sem þar má finna. Kvartett Carioca á Kex hosteli í kvöld Á miðvikudag Suðaustan 5-15, hvassast SV-til framan af degi. Rigning S- og V-lands, en þurrt að kalla norðan heiða fram til kvölds. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á NA-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu, fyrst SV-til, en mun hægari og þurrt A-til fram undir hádegi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast nyrðra. VEÐUR Tvö neðstu liðin í Pepsi- deild karla í knattspyrnu, Víkingur frá Ólafsvík og ÍA, unnu bæði leiki sína í gær- kvöld og galopnuðu með því botnbaráttu deildarinnar. Þau eru nú aðeins stigi á eftir KR og Fjölni. Ólafsvík- ingar unnu Stjörnuna óvænt og Skagamenn lögðu Fjölni. KR slapp við að lenda í fall- sæti þegar Óskar Örn Hauksson jafnaði gegn Breiðabliki í blálokin. »2-4 Botnbaráttan galopnaðist Öll íslensku liðin eiga ágæta möguleika „Mig langar að keppa á heimsmeist- aramótinu í Ungverjalandi í lok ágúst og ætla mér það eins og staðan er núna. Ég er að skrifa ritgerð í sumar í mastersnáminu mínu og er ekki bara fínt að skrifa ritgerð og fara á heims- meistaramót?“ segir fremsti júdó- maður landsins, Þormóður Árni Jóns- son, sem hyggst halda áfram af krafti í íþróttinni enn um sinn. » 1 Fínt að skrifa ritgerð og fara á HM ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja@mbl.is Sverrir Ingi Garðarsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til þess að standast svokallað Class 1 dómarapróf í snóker. Slíkt próf gefur honum réttindi til þess að dæma á alþjóðlegum stórmótum, en enginn Íslendingur hefur áður náð þeim árangri. Allt hófst þetta árið 2010 þegar Sverrir hélt til Möltu, þá lítt kunn- ugur snókerheiminum. „Ég var á þeim tíma alveg grænn í þessu og vissi nánast varla út á hvað þetta gekk. Síðan heillaðist ég bara af íþróttinni og fólkinu sem er bæði að stunda hana og dæma,“sagði Sverrir í samtali við Morgunblaðið. Úti á Möltu tók hann hið svokall- aða Class 3 próf eftir að hafa feng- ið kennslu í almennum grunn- reglum í dómgæslu, t.d. hvernig á að undirbúa snókerborð fyrir keppni og hvernig dómari á að klæðast. Í kjölfar þess að hafa staðist Class 3 prófið fór Sverrir að dæma í snóker við hvert tækifæri sem gafst. „Það er mikið um það að það vanti dómara á bæði Evrópumótum og alþjóðlegum mótum. Þetta er sjálfboðavinna svo að maður þarf svolítið að fórna sér í þetta. En það er alveg þess virði“ segir Sverrir. Íhugar að fá kennararéttindi. Árið 2014 tók Sverrir svo Class 2 próf í Lettlandi, en það próf er fyr- ir lengri komna. Í kjölfarið dæmdi hann undanúrslitaleik í snóker á Evrópumóti. Loks ákvað hann svo að taka slaginn við Class 1 prófið. Það fór fram á Evrópumótinu í liðakeppni í Albaníu á dög- unum, en að sögn Sverris áttu Íslendingar tvær af fjórum deildum í þeirri keppni. Prófið stóðst hann með glans og dæmdi því úrslitaleikinn á mótinu. „Núna er ég kominn með æðstu gráðuna svo að það eina sem er eftir fyrir mig væri að taka kenn- araréttindi. Þá get ég farið að þjálfa upp verðandi dómara og veita þeim réttindi til þess að þjálfa“ segir Sverrir. Að hans sögn eru afar fáir á Norðurlöndunum sem hafa farið svo langt að ná sér í kennararétt- indin í snóker. Á nýafstöðnu Nordi- cup móti var fenginn kennari frá Bretlandi sem hélt námskeið. Seg- ist Sverrir finna fyrir miklum þrýstingi frá evrópska sambandinu að taka kennararéttindin. Að- spurður segist hann hins vegar ekki vera búinn að gera upp hug sinn varðandi það. Þarf svolítið að fórna sér  Fékk dómara- réttindi í snóker fyrstur Íslendinga Dómari Sverrir Ingi Garðarsson tók próf á Möltu og er hér við dómgæslu á snókermóti í Lettlandi. Enginn Íslendingur hefur áður hlotið dómararéttindi í snóker svo vitað sé. Þó eru Íslendingar ekki alveg ókunnugir íþróttinni. Hér á landi hafa meðal annars verið haldin Íslandsmót í snóker lengi. Þann 21. maí síðastliðinn var haldið Íslandsmót meistaraflokks í snóker og fór það fram á Billiardbarnum í Faxafeni. Núverandi Íslandsmeistari í flokknum 40+ er Jón Ingi Ægisson, en hann varði titil sinn í byrjun apríl á þessu ári. Þá hafa Íslendingar átt góðu gengi að fagna á ýmsum stórmótum, auk þess sem lengi hefur verið vinsælt að skella sér í snóker- og pool- stofuna í Lágmúla þar sem enginn þarf að vera fag- maður til þess að fá að spreyta sig á sportinu og hafa gaman af. Íslendingar þekkja íþróttina vel SNÓKER Á ÍSLANDI Sverrir Ingi Garðarsson Íslensku liðin fjögur sem taka þátt í Evrópumótum karla í knattspyrnu í sumar eiga öll ágæta möguleika á að komast áfram gegn mótherjum sín- um. FH situr hjá í fyrstu umferð og fer síðan annaðhvort til Færeyja eða Kósóvó, Stjörnumenn fengu írska andstæðinga, KR-ingar finnska og Valsmenn mæta lettneskum mótherj- um. »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.