Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Page 5
18.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5
íbúðir í sömu póstnúmerum. Öll
herbergin eru í útleigu.
Í húsinu í Seljahverfi eru her-
bergin átta talsins og geta þar
verið tíu manns sem deila tveimur
baðherbergjum með sturtuað-
stöðu, þvottahúsi og eldhúsi. Við
Nýbýlaveg í Kópavogi eru her-
bergin sjö á tveimur hæðum. Bað-
herbergi eru tvö, sitt á hvorri
hæðinni, og einnig er sameiginleg
eldhúsaðstaða og þvottaherbergi.
12 fermetrar á 180 þúsund
Í miðbæ Reykjavíkur er hægt að
leigja 12 fermetra herbergi með
sameiginlegu klósetti á 180 þús-
und krónur, eða á 15 þúsund krón-
ur fermetrann, að því er kemur
fram í leiguskrá Leigu.is. Í Graf-
arvogi er 13 fermetra íbúð boðin
til leigu á 80 þúsund krónur á
mánuði. Í Reykjanesbæ er 15 fer-
metra íbúð boðin á 80 þúsund
krónur.
Í síðasta mánuði greindi
Morgunblaðið frá því að leiguverð
á höfuðborgarsvæðinu hefði hækk-
að um 74 prósent frá því í janúar
2011. Þá greindi blaðið jafnframt
frá því að 17 prósent fólks byggju
í leiguhúsnæði en voru 12 prósent
árið 2008.
Myndi sjálfur
ekki vilja leigja
Ingimundur játar að leigan sé
há í húsunum þar sem herbergi
séu leigð út og segist sjálfur
leggja hart að sonum sínum að
spara og safna sér fyrir eigin hús-
næði. Hann segist sjálfur ekki
myndu vilja vera á leigumarkaði
en mikil þörf sé hins vegar á öll-
um stærðum af húsnæði.
Vill að heimilið sé öruggt
„Það er mikil eftirspurn eftir
herbergjum. Ég kann ekkert ann-
að eðlilegt svar [við leiguverðinu]
en að verðið ráðist af framboði og
eftirspurn,“ segir Ingimundur Þór.
Hann hefur leigt herbergin út
núna í á fjórða ár. Hann segir
verðið hjá sér hafa haldist óbreytt
í tvö ár og segir hann mikinn
fjölda fyrirspurna og umsókna
berast honum í hvert sinn sem
hann auglýsi herbergi til leigu.
Flestir leigjendurnir kjósi að vera
hjá honum til lengri tíma og tekur
hann sem dæmi að 75 prósent
þeirra sem leigðu hjá honum í
haust séu enn að leigja hjá honum.
Ingimundur tekur fram að þetta
sé ekki hans sérgrein, þ.e. útleiga
íbúða, heldur sé hann að leigja
húsin tímabundið út. „Ég er að
breyta húsum og bæta, teikna og
þess háttar, og leigi út til að láta
þau ekki standa auð á meðan,“
segir hann. „En ég hef lagt mikið
upp úr því að sinna fólkinu vel og
hafa alla hluti í lagi. Mér finnst ég
vera að gera eitthvað. Það er fólk
hérna sem þarf einhvern stað til
að búa á,“ segir Ingimundur.
Fjölbreytt flóra leigjenda
„Ég hef reynt að taka hingað fjöl-
breytta flóru. Ég reyni að hafa í
bland Íslendinga og útlendinga,
konur, karla, unga og eldri. Ég er
með öryrkja, flóttamenn frá
Rauða krossinum og ungt fólk að
hefja líf sitt. Maður kynnist þessu
fólki og veit eitthvað sem gengur
á í lífi þeirra,“ segir Ingimundur
og bætir við að sér beri skylda
sem leigusala til að passa upp á
að fólki líði eins og heima hjá sér.
Að þau hafi samastað þar sem
þau finni fyrir öryggi.
Spurður hvort hann viti af
mörgum að leigja út stök her-
bergi segist hann hafa rekist á
nokkra. „Það er eitthvað í Hafn-
arfirði, á þremur stöðum er þetta
bara bisness, þar sem einhverju
húsnæði er skipt niður í herbergi
og sett upp fyrir þetta. Í mínu til-
felli er þetta millibilsástand þar
sem ég leigi út herbergin á með-
an ég er að vinna í öðrum hlutum
og þess háttar,“ segir hann.
Með því að skipta húsum upp í herbergi og leigja þau út þannig í stað þess að
leigja í heilu lagi geta leigusalar fengið mun meira í sinn hlut.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirtækið Leiguherbergi
auglýsir á heimasíðu sinni
10, 15, 20 og 25 fermetra
herbergi til leigu á fjórum
stöðum á höfuðborgarsvæð-
inu.
Leiguverð tíu fermetra
herbergis er 90.500 kr. á
mánuði, sé viðkomandi einn
í herbergi en hækkar upp í
118 þúsund séu tveir í her-
berginu. Það gerir 11.800
krónur á fermetra. Innifalið í
leigunni er rafmagn, hiti og
aðgengi að þvottahúsi. Sam-
kvæmt upplýsingum á vef
Leiguherbergja eru íbúðirnar
84 talsins á Funahöfða. Í
Dalshrauni í Hafnarfirði eru
22 herbergi og leigan á tíu
fermetra herbergi 76 þús-
und kr. en fermetraverðið
lækkar eftir því sem stærri
íbúð er tekin á leigu. 25 fer-
metra herbergi er á 107
þúsund krónur. Séu tveir í
herbergi bætast ofan á leig-
una 27.500 krónur líkt og á
Funahöfða. Á Smiðjuvegi
eru í boði þrjár stærðir her-
bergja; „lítið“, „miðlungs“
eða „stórt“. Lítið á 75 þús-
und en stórt á 107 þúsund
krónur.
Með yfir 100 herbergi
„Með því að
greiða okurleigu
eru leigjendur
hluti af vandanum
á leigumarkaði.“
Þetta segir Jóhann
Már Sigurbjörns-
son, fráfarandi for-
maður Samtaka
leigjenda á Íslandi. „Ef það er
eftirspurn, þá kemur fram-
boðið,“ segir Jóhann. „Og ef
eftirspurnin er til staðar, er
sjálfsagt að menn geti gert það
sem þeir vilja. En það er ósið-
legt.“
Jóhann Már
Sigurbjörnsson
Ósiðleg
okurleiga
www.heild.issími 568 6787fyrirspurn@heild.is
HEILD
fasteignafélag
Bíldshöfðinn liggur sérstaklega vel að helstu samgönguæðum. Samkvæmt
vinningstillögu að rammaskipulagi rís íbúðabyggð fyrir 10 – 15.000 manns
á Ártúnshöfða á næstu árum og liggur Bíldshöfði við fyrirhugað byggingarsvæði.
ekarinn hafa hafið starfsemi í
en hefja starfsemi í sumar.
rslunarrými á neðri hæð hússins.
Heilsugæslan Höfða, Heilsuborg og Domus Röntgen hafa leigt efri hæðina á
Bíldshöfða 9. Að auki verður Apótekarinn á neðri hæðinni. Áætlað er að 1.500 -
2.000 viðskiptavinir sæki þjónustu þangað á hverjum degi.