Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 15
Hvernig reynsla var það? „Í fyrra skiptið stökk ég svolítið út í djúpu laugina og allt gerðist mjög hratt. Ég var með tvö lög í keppninni og fékk plötusamning í kjöl- farið hjá Senu og var að syngja úti um allt. Þetta var æðislegt en líka svolítið strembið. Ég skil- greindi mig sem tónlistarkonu upp á nýtt og mjög hratt. Tónlistin sem ég gerði fyrir Euro- vision 2012 er mjög ólík tónlistinni sem ég er að gera í dag, og einnig ólík tónlistinni sem ég hafði verið að gera fram að því. Það tók mig langan tíma að komast frá því og inn á mitt sánd. Ég sagði að ég ætlaði aldrei aftur að fara í Eurovisi- on eftir þetta fyrsta skipti. Það var engin löngun í mér að fara aftur. En svo fór ég að vinna fyrir Disney á skemmtiferðaskipum í eitt og hálft ár og kom svo heim og var búin að semja þetta lag. Ég hugsaði bara, af hverju ekki! Þá kom upp í mér spennufíkillinn og ég sendi lagið inn og endaði á að fara út,“ segir hún. „En í það skiptið var það einhvern veginn allt önnur upplifun og ég naut þess í botn allan tím- ann. Þetta var svo ótrúlega mögnuð reynsla og það eru nokkur augnablik sem ég mun muna alla ævi,“ segir hún. Hvað augnablik? „Eins og á undanúrslitakvöldinu þegar verið var að lesa upp úr umslögunum og við endum á að komast ekki áfram, en okkur hafði verið spáð í einu af toppsætunum í þessum riðli. Og öll höll- in öskraði: Ísland, Ísland. Það var augnablik sem ég gleymi aldrei,“ segir Greta. „Persónu- lega finnst mér að ég hafi átt minn besta per- formans þetta kvöld. Og þótt við hefðum ekki komist áfram, og auðvitað var það svekkelsi, hefði ég ekki viljað missa af því augnabliki þeg- ar höllin öskraði. Þetta var ljúfsárt.“ Ég elska Tobmobile Todmobile á þrjátíu ára starfsafmæli á næsta ári, nánast jafngömul Gretu, en hún er nýjasti meðlimur hljómsveitarinnar. „Ég lærði hjá Þor- valdi Bjarna árið 2008-9 og fór svo að vinna með honum árið 2011. Það hefur verið samstarf síð- an, í Eurovision og í sinfóníuhljómsveitinni og ég er búin að syngja mikið með þeim. Svo þró- aðist það þannig að þau buðu mér í fyrra að ganga til liðs við hljómsveitina,“ segir hún. „Ég elska Todmobile. Það er svo mikið í þess- um lögum, þetta eru svo flóknar útsetningar og miklar hljómasúpur og ekki hefðbundin tónlist. Ég er algjör rokkari í mér og geggjað að geta bæði notað fiðluna og sungið. Þetta eru lög sem eru sum jafngömul og ég,“ segir hún og skelli- hlær. Hún er samt sem áður ekki yngst í band- inu, því Eyþór Ingi er yngri en hún. „Það er líka það sem er svo skemmtilegt við Todmobile, þau eru algjörlega óhrædd við að halda þessu fersku og prófa eitthvað nýtt. Það kemur ný plata á næsta ári,“ segir Greta sem spilaði síðast með bandinu síðastliðið föstudagskvöld. Syngjandi í fljótandi Disney-heimi Greta hefur ferðast víða um heim með skemmti- ferðaskipum í eigu Disney. Þar er hún með stóra sýningu í sal á stærð við Eldborg. „Þetta ævintýri byrjaði 2014. Ég var fyrst ráðin í fimm vikur á stærsta skipið þeirra sem tekur fjögur þúsund manns, tvisvar í viku, þannig að átta þúsund manns fara þar í gegn í hverri viku. Þar eru tvö þúsund manna leikhús,“ segir Greta og útskýrir að Disney-þema sé í gangi á öllum víg- stöðvum á skipunum. „Þetta er eins og að labba inn í Disney World. Þar eru Broadway-sýningar í gangi í risaleikhúsum,“ segir Greta. „Ég endaði á að vera í fimm mánuði, þeir framlengdu alltaf. Svo buðu þeir mér svokall- aðan „headliner“ samning árið 2015 og við sett- um upp heilt „show“ með dönsurum og söngv- urum. Ég er að syngja, dansa og fljúga,“ segir hún. „Ég er samt ekkert í Frozen-kjól eða neitt svoleiðis; það eru margir sem halda það,“ segir hún og hlær. „Þetta eru tónleikar með Gretu Salóme, þótt ég taki nokkur Disney-lög með. Þetta er núna búið að vera í gangi í tvö ár en ég er að fara aftur núna í lok júní og fer aftur á næsta ári líka.“ Greta segist á næstunni vera einungis með eina sýningu á viku á skipinu. Blaðamaður spyr hvort hún geti þá nýtt tímann til að vera í fríi og sóla sig en það er öðru nær. Hún segist nýta tímann til að semja og útsetja lög því margt sé á döfinni á næstunni og engan tíma megi missa. Halloween-sýning er í bígerð í október og margt annað kallar á þrotlausa vinnu. „Frítími er mjög afstætt hugtak hjá mér,“ segir hún hlæjandi. „Mér leiðist aldrei, ég finn mér alltaf eitthvað að gera. Ég er aldrei búin í vinnunni. En ég þrífst á því líka.“ Að fylgja sannfæringu sinni Aðspurð segir Greta vissulega að hún finni að hún sé þekkt á Íslandi en sér ekkert neikvætt við frægðina. „Það er hringt dálítið oft bjöllunni hérna og krakkarnir í hverfinu koma með blóm eða bréf, en það eru forréttindi. Það sem er skemmtilegast við þetta er að hafa einhvern möguleika á að vera fyrirmynd, sérstaklega fyr- ir stelpur sem vilja gera sína eigin hluti í tónlist- inni, semja eða fara í viðburðahald. Það er því miður erfiðara fyrir stelpur að komast áfram í þessum bransa þannig að mér finnst eiginlega frábært að það eru stelpur sem líta upp til mín og hugsa kannski að þær geti samið sína eigin tónlist,“ segir hún. „Ég get hjálpað til og nýtt frægðina til góðs, sérstaklega þegar kemur að því að sýna að maður getur fylgt draumunun sínum. Verið duglegur og unnið fyrir hlutunum. Og trúað á sjálfan sig,“ segir Greta. „Ég trúi því að vinnan hafi meira vægi en hæfileikar; ef þú ætlar að koma þér áfram verður þú að vinna og vera duglegur. Það er 99% af þessu og maður fær engan afslátt,“ segir hún. „Mín mantra í líf- inu er: „Get shit done““, segir hún og hlær. „Mér finnst oft bara best að demba sér í hlut- ina og klára þá. Ég er líka að verða alltaf betri og betri í því að vera algjörlega sama um hvað öðrum finnst. Það er lexía sem hefur verið mér dýrmætust. Það er erfitt, en það fylgir þessu starfi og maður þarf að vera tilbúinn að æfa sig í því að láta ekki gagnrýni setja sig út af laginu. Þannig ég hef verið að æfa mig í því að vera sama um hvað fólki finnst og fara mínar eigin leiðir. Það hefur aldrei brugðist mér að fylgja sannfæringunni. Hún er það sem drífur mann áfram,“ segir Greta. „Ég hef verið að leggja áherslu á að loka á þessa neikvæðu raddir og líka vera jákvæð rödd fyrir aðra. Það hefur verið mjög lærdómsríkt af því að neikvæðu raddirnar eru oft svo ótrúlega háværar. Þær eru alls staðar, eins og á netinu og ég vil vekja athygli á að orð hafa áhrif.“ Pepsi Max beint í æð Við förum að slá botninn í samtalið enda er dag- urinn hennar Gretu þéttbókaður. Ekkert sum- arfrí er framundan og verður hún á ferð og flugi í allt sumar. Hún segir að ef hún myndi finna tíma myndi hún velja að fara í sumarbústað með fjölskyldu og vinum og helst að elda mat ofan í alla. „Það væri draumahelgi. Ég finn kannski tíma árið 2019, mögulega ef ég byrja að skipu- leggja það núna,“ segir hún og hlær. Greta heldur áfram að semja, spila, syngja og útsetja en aðspurð segir hún sér líða best uppi á sviði. „Þar er minn heimavöllur og allt sem ég geri tengist því. Þetta vinnur allt saman.“ Ein spurning að lokum, ertu með einhverja galla? „Ég á fullt af göllum, spurðu bara manninn minn,“ segir hún og skellihlær. „Nei, ég held að minn stærsti galli sé hvað ég er eirðarlaus, en það getur verið bæði kostur og galli. Ég á rosa- lega erfitt með að vera í núinu en ég er alltaf að æfa mig. Ég er líka dálítið óþolinmóð. Mjög. Ég vil að hlutirnir gerist hratt og örugglega, annars er ég alveg ómöguleg. En minn helsti áunni galli er að ég drekk allt of mikið Pepsi Max! Við erum að tala um helst beint í æð á morgnana og það er stríðsástand á heimilinu ef það er ekki til, þá þarf ég að anda í poka. Þetta heldur mér gang- andi, ég drekk alveg tvo lítra plús á dag. Ég fékk einu sinni gefins ársbirgðir og ég kláraði þær á þremur mánuðum!“ segir hún og hlær dátt. Greta Salóme gaf sér tíma í miðri myndatöku til að klappa kelinni kisu á göngustíg í hverfinu. Greta frumflutti lagið My Blues á sviði í Laugardals- höllinni í mars. Ljósmyndir úr einkasafni Að sögn Gretu er fiðlan framlenging handanna á henni og man hún ekki eftir sér öðruvísi en með fiðluna í höndunum. Hún tók ekki fiðluna með í frí til Taílands og var farin að sakna hennar mikið. Í Eurovision-keppninni í Sví- þjóð í fyrra flutti Greta lagið Hear them calling. Áhorf- endur í salnum voru ákaflega vonsviknir þegar ljóst var að það kæmist ekki áfram í að- alkeppnina og öskruðu Ís- land, Ísland þegar þau úrslit lágu fyrir. Greta segist aldrei gleyma því augnabliki. ’ Ég veit alveg að þú geturspilað á fiðluna, það er eng-inn vafi á því. En hvað langarþig að gera í tónlist?“ Ég man að ég fattaði að ég væri búin með tuttugu ára nám í tónlist, og ég hafði aldrei verið spurð að þessu. Og ég hafði aldrei spurt sjálfa mig að þessu heldur! Greta nýtur þess að standa á sviði. 18.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.