Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 40
Listafólkið Ólafur Elíasson, Marina Abramovic og Jeff Koons sýnir ný sýndarveruleikaverk hjá Acute Art en verkin voru forsýnd á ráðstefnunni Brilliant Minds í Stokkhólmi. Sýnd voru myndbönd frá Koons, Abramovic og Ólafi til að varpa ljósi á hvernig listaverkin urðu til í sýndarveruleikaformi. Þetta sýndarveruleikagallerí ætlar að rannsaka og hvetja til þess að list verði ekki aðeins til í efnislegu formi heldur líka á netinu. Galleríið verður opnað í haust og ætlar að hampa bæði ungum og upprennandi listamönnum sem og virtum listamönnum. Acute Art ætl- ar að skapa gallerí án veggja sem verður opið áhorf- endum hvar sem er í heiminum með notkun sýnd- arveruleikatækni. Sýndarveruleikaverkefni Ólafs heitir „Regn- bogi“ og geta einn eða fleiri skoðað hann í einu. „Ég hef alltaf haft áhuga á hvernig við sköp- um raunveruleikann saman. Þegar ég bý til sýningu hugsa ég um hana sem vél sem býr til veruleika. Sýndarveruleiki hefur möguleika á því að búa til vettvang fyrir nýjar leiðir til upplifunar,“ sagði Ólafur í samtali við dazeddigital.com. Þar útskýrir hann að hann hafi haft sérstakan áhuga á því að þróa þetta verk þannig að margir geti upplifað verkið í einu. „Fyrir mér er þessi félagslegi hluti ómissandi þáttur; hann kemur í ljós með því að viðurkenna nærveru annarra og með því að skoða hvernig aðrir hafa áhrif á rými. Það að fara inn í „Regnboga“ er ekki að fara úr heim- inum og skilja líkamann eftir. Verkið treystir á hreyfiskynjun og -þekkingu okkar og tilfinn- ingu fyrir rými til að koma fólki saman óháð landa- mærum.“ Ólafur Elíasson Nýjar leiðir til upplifunar Ólafur Elíasson, Marina Abramovic og Jeff Koons sýna sýndarveruleikaverk hjá nýju galleríi án veggja sem verður opið áhorfendum um allan heim Jeff Koons Ljósmyndir/Acute Art Marina Abramovic SUNNUDAGUR 18. JÚNÍ 2017 Skemmtigarður var opnaður í Vatnsmýrinni í júlí 1946 og skrif- aði Víkverji um þennan viðburð skömmu eftir opnun: „Það þótti heldur en ekki ný- lunda í fyrradag er nýjasti skemmtistaður Reykvíkinga, Ti- voli í Vatnsmýrinni, var opnað almenningi til afnota. — Þarna verður einhverntíma ös, maður, sagði pattaralegur strákhnokki við fjelaga sinn og benti á Par- ísarhjólið, hringekjuna og bíla- brautina. Þessi athugasemd Reykjavík- urpiltsins segir raunverulega það, sem segja þarf um þennan nýja skemmtistað, en trúað gæti jeg því, að ekki liði á löngu þar til menn fari að undrast hvernig bærinn skuli hafa getað verið án staðar sem þessa. Það hefur ver- ið svo hjer í bænum, að lítið hef- ur verið um góðar skemmtanir fyrir börn og unglinga. Foreldrar og aðstandendur hafa farið um bæinn í gönguferðir með börn sín á góðviðrisdögum, en hvergi hefur verið neitt afdrep. Tivoli bætir ábyggilega úr og það er enginn efi á að þar verður ein- hverntíma ös.“ GAMLA FRÉTTIN Afdrep fyrir fjölskyldur Hringekja í skemmtigarðinum í Vatnsmýrinni var nýjung. ÞRÍFARAR Elijah Wood leikari Daniel Radcliffe leikari Höskuldur Ólafsson rappari URBAN Outdoor eru sérstaklega valin sumarhúsgögn í hæsta gæðaflokki. Hönnun húsgagnanna er falleg og stílhrein, en á sama tíma eru þau einstaklega þægileg. Serían er gerð úr sterkum efnivið og þolir vel hið óútreiknanlega íslenska veður, útihúsgögn sem endast. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Circle-borð.Ø150 cm. Svart eða natur borð meðmarmaraplötu í miðju. 84.900 kr. Nú 59.900 kr. Click-stóll. Ýmsir litir. 17.900 kr. Nú 12.900 kr. ÚTSALAN ER Í FULLUM GANGI 25-35% AF ÖLLUM SUMARVÖRUM Click-stóll Nú 12.900 SPARAÐU 5.000 Circle-borð Ø150 cm Nú 59.900 SPARAÐU 25.000 Click-stóll. Ýmsir litir. 17.900 kr. Nú 12.900 kr. Click-legubekkur. Svartur eða grár. 34.900 kr. Nú 24.900 kr. Nú 27.900 kr. Click-ruggustóll. Svartur. 37.900 kr. Eyelet-bakkaborð. Ýmsir litir. Lítið. 19.900 kr. Nú 12.900 kr. Mið. 29.900 kr. Nú 18.900 kr. Stórt. 39.900 kr. Nú 25.900 kr. 35%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.