Morgunblaðið - 07.07.2017, Page 1

Morgunblaðið - 07.07.2017, Page 1
F Ö S T U D A G U R 7. J Ú L Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  162. tölublað  105. árgangur  MATTHILDUR SLÆR Í GEGN Í SKAGAFIRÐI VILJA NÝTA SEM MEST AF SKEPNUNNI VON Á HEIMSFRÆG- UM ÁSTRÖLSKUM UNGMENNAKÓR FRUMKVÖÐULLINN HILDUR 12 SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTI 30SYNGUR FYRIR ELDRI BORGARA 4 Hjalti Rúnar Oddsson verður einn starfsmanna í 18 manna starfs- liði KSÍ sem fylgja mun ís- lenska kvenna- landsliðinu á Evr- ópumótið í knattspyrnu í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalandslið Íslands er með styrktarþjálfara á sínum snærum en áður sinntu sjúkraþjálfararnir því hlutverki. Hjalti segir viðbót styrktarþjálf- ara við liðið hluta af bættri umgjörð í kringum kvennalandsliðið. „Mín inn- koma mun gera fólki kleift að ein- beita sér alfarið að sínu starfi og gera það betur. Auk þess er þetta liður í að bæta umgjörðina í kringum íslenska kvennalandsliðið,“ segir Hjalti. »14 Bætt um- gjörð hjá landsliðinu  Styrktarþjálfari í starfsliðinu á EM Hjalti Rúnar Oddsson Starfsmenn verktaka við lagningu háspennulína frá Þeistareykjavirkjun vinna í kappi við tímann. Miklar seinkanir hafa orðið, meðal annars vegna deilna um lagningu línunnar um Leirhnjúks- hraun í landi Reykjahlíðar í Mývatnssveit. Fram- kvæmdin er því á eftir áætlun. Bosnískir verka- menn leggja alla sína krafta í að festa niður 21 metra hátt háspennumastur við Bakka. Til að hægt sé að hefja prófanir á virkjuninni þarf hún að vera tengd landskerfinu við Kröflu. Línan þangað liggur um þrætulandið í Reykja- hlíð. Frá því Landsnet loksins fékk landið til um- ráða hafa verktakar unnið að gerð slóða í gegn- um hraunið og að grafa fyrir undirstöðum háspennumastra. Fulltrúar Landsnets og Um- hverfisstofnunar velja veglínuna. „Mér finnst vel hafa tekist til. Menn gera sitt allra besta til að fella slóðana að landinu og reyna að gera eins lít- ið rask og mögulegt er,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. Búið er að reisa möstur á meginhluta há- spennulínanna út frá Þeistareykjavirkjun. Í gær komst framkvæmdin á nýtt stig þegar byrjað var að hengja einangrara á möstrin í Kröflulínu og draga vír á þau. Línan verður spennusett í byrj- un september og eftir það eiga prófanir að geta hafist. „Eins og staðan er núna virðumst við ætla að ná að koma línunni í rekstur á réttum tíma, þrátt fyrir alla þá erfiðleika sem við höfum verið að glíma við,“ segir Guðmundur Ingi. »6 Samtaka við að staga 21 metra mastur Framkvæmdir við háspennulínur frá Þeistareykjastöð eru nú í hámarki  Byrjað að draga leiðara á möstur  Slóði kominn í gegn um Leirhnjúkshraun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bandarísk stjórnvöld hafa boðað breytingar á flugverndarráðstöf- unum sem fela í sér auknar kröfur um flugvernd á þeim flugvelli sem er síðasti viðkomustaður fyrir flug til Bandaríkjanna. Kröfur um aukið ör- yggi munu m.a. koma fram í því að kannaður verður betur en áður raf- búnaður sem farþegar hafa með- ferðis um borð í flugvélar en í til- kynningu frá samgönguráðuneytinu kemur fram að búast megi við aukn- um töfum á Keflavíkurflugvelli. Guðni Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi hjá ISAVIA, segir að flug- félögin muni sjálf þurfa að skanna rafbúnað hjá farþegum. „Við höfum fylgst vel með þessu og tökum þátt með flugfélögunum en þau bera ábyrgð á þessu sjálf,“ segir Guðni. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir enn óljóst hvernig þessu verði framfylgt, en flugfélagið muni tilkynna það sem fyrst. Flugvallar- og flugrekendur hafa þrjár vikur til að bregðast við breyttum aðstæðum. mhj@mbl.is Tafir gætu aukist í Banda- ríkjaflugi Morgunblaðið/Ómar Biðröð Eftirlit verður aukið.  Flugfélög þurfa að skanna raftæki sjálf Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að opna um 30 veitinga- hús í miðborg Reykjavíkur á næstu misserum. Samkvæmt upplýsingum frá veitingamönnum má ætla að stað- irnir rúmi minnst þúsund gesti. Verkefnin eru misjafnlega langt komin. Sumir staðir eru í hönnun en aðrir á hugmyndastigi. Miðað við upplýsingar frá húseigendum og veit- ingafólki er líklegt að flest verkefnin verði að veruleika. Það á einkum við staði sem tengjast hótelum. Starfs- leyfi hafa ekki verið tryggð á nokkr- um stöðum og er það í umsóknarferli. Sé miðað við að hvert sæti á fyrir- huguðum veitingahúsum skili 10 þús- und krónum í sölu á dag verður velta hvers dags alls 10 milljónir. Það gerir um 3,7 milljarða á ári. Þá mun fjöldi starfsmanna skipta hundruðum og afleidd áhrif verða mikil í gegnum vörukaup af birgjum og framleiðend- um. Of mikil áhersla á umbúðir Meðal þeirra sem undirbúa opnun veitingahúss er Jóhannes Steinn Jóhannesson, yfirkokkur á staðnum Jamie’s Italian á Hótel Borg. Hann segir markhópinn vera hinn dæmigerða Íslending sem veitinga- menn í miðborginni hafi vanrækt með áherslu á dýrar veitingar og umbún- að. Reynt verði að höfða til sem flestra með hóflegri álagningu. „Hinn dæmigerði Íslendingur fer aðeins fínt út að borða um helgar. Við ætlum að fá gesti til að koma líka á mánudegi og þriðjudegi. Veitinga- húsið okkar er vel staðsett og hentar því ferðamönnum. Þeir sækja alltaf í staði þar sem heimafólkið er.“ Þessi áhersla vekur athygli, t.d. í ljósi þess að eigendur Nostra, staðar sem verður senn opnaður í Kjörgarði, hyggjast höfða til efnaðra ferða- manna. Það er því róið á ýmis mið. Samantektin kann að vantelja veit- ingahús í bígerð. T.d. eru ekki tekin með veitingahús á áformuðum hótel- um í Vatnsmýri. Þá er það yfirlýst stefna borgarinnar að hafa þjónustu á jarðhæð sem víðast í miðborginni. Áforma tugi veitingahúsa  Um 30 ný veitingahús verða opnuð í miðborg Reykjavíkur á næstu misserum  Samanlögð ársvelta þessara veitingahúsa gæti hlaupið á milljörðum króna Morgunblaðið/Baldur Hótel Borg Stefnt er að því að opna Jamie’s Italian um miðjan júlí. MMinnst þúsund sæti »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.