Morgunblaðið - 07.07.2017, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Helga fæddist íReykjavík og ólstupp við Snorra-
brautina. Hún lauk próf-
um frá Íþróttaskólanum á
Laugarvatni, framhalds-
námi fyrir hreyfihamlaða
við Íþróttaháskólann í
Osló og síðan kennara-
prófi í myndmennt. Hún
kenndi íþróttir við Lang-
holtsskóla í 30 ár og í
Kópavogi. Hún hefur sótt
fjölda námskeiða við
myndlistarskóla og haldið
fjölmargar einkasýn-
ingar. Hún er gift Agli
Gústafssyni, býr í Hvera-
gerði, og á frá fyrra
hjónabandi Björgu og
Harald Snjólfsbörn.
Helga var hin óum-
deilda sunddrottning Ís-
lendinga um og eftir
miðja síðustu öld. Hún
æfði sund hjá KR, keppti
fyrir félagið frá því
skömmu fyrir miðja síð-
ustu öld og fram yfir 1960
með glæsilegum árangri,
en hún setti 38 Íslandsmet
í ýmsum sundgreinum.
„Pabbi var lögreglu-
þjónn og þeir urðu að
vera vel syndir. Hann fór
því oft í gömlu laugarnar
í Laugardalnum þar sem
kollegar hans æfðu sund
og kepptu. Þá tók hann
mig oft með og kenndi mér að synda er ég var fimm ára. Eftir það
synti ég látlaust og byrjaði ung að æfa með KR sem var alltaf mitt fé-
lag.“
Ýmsir halda að sjósund sé nýtt af nálinni, en þú syntir mikið í sjó?
„Já, já. Við fluttum í Kópavoginn og á unglingsárunum langaði mig
oft í Nauthólsvíkina, en strætóferðir voru stopular. Ég fór því í sund-
bolinn heima og synti yfir Skerjafjörðinn, enda var það stysta leiðin.
Ég lá svo í sólbaði í Nauthólsvíkinni sem var vinsæll sjó- og sólbaðs-
staður, og synti aftur heim. Svo synti ég Viðeyjarsund, úr Viðey og að
Ingólfsgarði, og úr Geirshólma í Hvalfirði og í land, eins og alnafna
mín forðum, eins og segir í Harðar sögu og Hólmverja.“
Frækin sunddrottning
Helga Haraldsdóttir er áttræð
Sunddrottningin Helga Haraldsdóttir. Ó
lafur G. Einarsson er
fæddur 7.7. 1932 á
Siglufirði og ólst þar
upp:
„Ég lít á mig sem
Siglfirðing, er þar fæddur og átti þar
mín glöðu æskuár. Óskar J. Þorláks-
son fermdi mig í Siglufjarðarkirkju
árið 1946, en hún var vígð fæðingar-
árið okkar. Foreldrar mínir fluttu
svo inn á Akureyri 1948. Faðir minn
vann í apótekinu á Siglufirði og síðar
við efnagerð. Hann varð svo forstjóri
Efnagerðar Akureyrar, Sana hf., og
bjó á Akureyri fram til 1958 en þá
fluttust foreldrar mínir til Reykja-
víkur. Það lá því beint við að ég færi
í Menntaskólann á Akureyri.“
Ólafur lauk stúdentsprófi 1953,
var um tíma í læknisfræði við Há-
skóla Íslands en söðlaði svo um yfir í
lagadeildina og lauk lagaprófi 1960:
„Þegar ég kom frá prófborði var
mér boðið starf sveitarstjóra í
Garðahreppi, sem síðar varð Garða-
bær. Ég var í því starfi í 12 ár, á
mesta uppbyggingarskeiði sveitarfé-
lagsins, það var allt ævintýri líkast.“
Ólafur var gerður að heiðursborgara
Garðabæjar 2010, hálfri öld eftir að
hann tók við sveitarstjórastarfinu.
Ólafur var kosinn alþingismaður
1971 og lét ári síðar af starfi sveitar-
stjóra en sat í bæjarstjórninni til
1978, fyrst sem oddviti og síðar for-
seti bæjarstjórnar.
Ólafur varð strax athafnasamur
sem þingmaður, sat í stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins, í stjórn
Lánasjóðs sveitarfélaga, í stjórn
Brunamálastofnunar ríkisins, Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins, síðar
Byggðastofnunar, var varaformaður
stjórnar Hitaveitu Suðurnesja, for-
maður tryggingaráðs og í stjórn Sjó-
minjasafns Íslands.
„Já, ég hef víða komið við! En ég
hafði sérstaka ánægju af því að
starfa í Þingvallanefnd en þar var ég
formaður 1988-91.“
Ólafur varð formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins 1979 og gegndi
því fram til þess að hann varð ráð-
herra, árið 1991: „Fyrstu árin voru
erfið, en þá var Sjálfstæðisflokk-
urinn klofinn, en úr því rættist síðar
og það allvel.“ Þegar Davíð Oddsson
myndaði sína fyrstu ríkisstjórn varð
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra, 1991-95: „Stærstu málin
voru LÍN, sá sjóður var eiginlega á
hausnum þegar ég tók við, en sú
lausn sem við náðum hefur í megin-
dráttum dugað fram á þennan dag.
Það var líka gaman að vígja Þjóðar-
bókhlöðuna, ganga frá húsnæðis-
málum Háskólans á Akureyri og
margt annað var skemmtilegt, en
annað miður, eins og gengur.“
Árið 1995 varð Ólafur svo forseti
Alþingis og gegndi því embætti þar
Ólafur G. Einarsson, fyrrv. alþm. og ráðherra – 85 ára
Morgunblaðið/Billi
Glæsileg hjón Ólafur og Ragna, er Ólafur var sæmdur hinni konunglegu norsku heiðursorðu, árið 2001.
Vísna- og veiðimaður
Hlutavelta Emma Østensen og Ísabella Ósk Egilsdóttir héldu tombólu við versl-
unina Rangá í Efstasundi og söfnuðu 4.126 kr. sem þær færðu Rauða krossinum
á Íslandi að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI
VERÐ FRÁ 3.650.-
Lau egi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.isgav
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16