Morgunblaðið - 07.07.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Buxur á útsölu
40-50% afsláttur
Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook
Str. 36-56
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Ármúla 40, 108 Reykjavík • Sími 534 2727 • alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
af öllum fatnaði
30% AFSLÁTTUR
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Knattspyrnufélagið Fram og Reykja-
víkurborg hafa komist að sam-
komulagi um uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja fyrir félagið í Úlfarsárdal.
Að fengnu samþykki aðalfundar
Fram mun félagið því flytja höf-
uðstöðvar sínar í Úlfarsárdal árið
2021, þegar áætlað er að fram-
kvæmdum ljúki.
Áform í þessa veru, um flutning
knattspyrnufélagsins, hafa verið í far-
vatninu frá árinu 2004, en síðustu ár
hafa aðilar deilt um málið.
Fullkomin aðstaða rísi
Í samkomulaginu felst að byggð
verður íþróttaaðstaða í Úlfarsárdal á
kostnað borgarinnar og í hlut borg-
arinnar koma þær eignir sem Fram á
nú í Safamýri.
Niðurstaðan er sú að byggt verður
fjölnota íþróttahús með áhorf-
endaaðstöðu, en þar munu rúmast
tveir handknattleiksvellir í fullri
stærð. Einnig verða byggð áhorf-
endaaðstaða, búningsklefar og minni
íþróttasalir við aðalleikvang sem þeg-
ar hefur verið byggður að miklu leyti.
Þá verða byggð félags- og þjónust-
aðstaða, samkomusalur auk sund-
laugar, skóla og leikskóla.
Kostnaður er um fjórir milljarðar,
en þegar hefur um fimm hundruð
milljónum verið varið í leikvang Fram
í Úlfarsárdal. Samanlagður kostnaður
þjónustumannvirkja og íþrótta-
aðstöðu Fram er tíu milljarðar.
Lúðvík Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Fram, segir það létti að
samningar hafi tekist. Að hans sögn
gengur félagið út frá því að byggð
muni stækka enn frekar, en í dalnum
er ráðgerð 9.500 manna byggð sam-
kvæmt aðalskipulagi. Árið 2004 var
gert ráð fyrir 25 þúsund manna
byggð í aðalskipulagi.
„Það sem við sjáum fram á er að
þarna séu allar forsendur til að
stækka byggð. Við höldum í þá von að
þarna verði stærri byggð en gert er
ráð fyrir af því það er búið að byggja
þarna upp alla innviði,“ segir hann og
bætir við að nýbyggingar Fram muni
geta þjónað mun stærri byggð-
arkjarna en ráðgerður er.
Spurður hvað hafi orðið til þess að
samningar náðust segir Lúðvík að
samþykkt hafi verið að fresta til-
teknum hluta framkvæmdanna.
„Það er hálft knatthús inni í þessu.
Í staðinn frestum við ákveðnum að-
gerðum um tíu ár, sem eru grasvellir
við Reynisvatnsás,“ segir hann, en
deiliskipulag gerir ráð fyrir að Fram
geti stækkað húsið í framtíðinni.
Aðalskipulagið gildir
„Þetta er langþráð af beggja
hálfu,“ segir Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri um samkomulagið.
„Það er búið að liggja töluvert lengi
yfir þessu, en það hefur verið kallað
eftir því af hálfu barna og fjölskyldna
í hverfinu að það verði framgangur í
þessum framkvæmdum. Það er gleði-
efni að nú hafi náðst saman, að það sé
hægt að ljúka hönnun og hefjast
handa við þessa uppbyggingu,“ segir
hann.
Dagur segir að stærsta breytingin
frá fyrri áformum sé frestun bygg-
ingar tveggja grasvalla við Reynis-
vatnsás.
„Í staðinn kemur hálft knatthús til
æfinga við svæðið þar sem þetta tvö-
falda fjölnota boltahús mun rísa. Þar
með hefur náðst saman um í hvaða
röð eigi að gera hlutina,“ segir hann.
Dagur segir að ekki standi til að
breyta skipulagi í meginatriðum og
stækka íbúðarbyggð í Úlfarsárdal,
núgildandi aðalskipulag gildi áfram.
Hann nefnir að auglýstar hafi verið
500 nýjar íbúðir í nýju deiliskipulagi
fyrir svæðið og til standi að úthluta
lóðum næsta haust.
Dagur segir að búast megi við um
tíu þúsund manna byggð.
„Þá eru Grafarholtið og Úlfarsár-
dalurinn af svipaðri stærð og Árbæj-
arhverfið. Þetta er myndarlegt hverfi
þótt þetta verði ekki á við heilan
Kópavog. Ég held að flestir geri sér
grein fyrir að þær hugmyndir voru
óraunhæfar. Að minnsta kosti miðað
við það hvernig umferð hefur þróast á
Miklubrautinni,“ segir hann.
Dagur segir að eignirnar í Safa-
mýri, gervigrasvöllur og íþróttahús,
verði áfram nýttar í íþróttastarf í
samvinnu við íþróttafélög í nágrenn-
inu. Ekkert sé ákveðið með aðra
hluta lóðarinnar, en vísast verði ein-
hver hluti landsins lagður undir íbúð-
arbyggð.
Sátt um uppbyggingu í Úlfarsárdal
Kostnaður um fjórir milljarðar Framarar búast við íbúafjölgun Fyrri hugmyndir óraunhæfar
Ljósmynd/Kaffi&karma
Úlfarsárdalur Þegar hefur verið tekinn í notkun nýr leikvangur Fram, en
til stendur að við völlinn rísi áhorfendaaðstaða auk búningsklefa.
Réttum Grænlendingum
hjálparhönd í síma
907 2003
Við hringinguna fara 2.500 krónur
sjálfkrafa í hjálparstarfið.