Morgunblaðið - 07.07.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Við höfum fengið þær upplýsingar
frá Orkuveitunni að þeir hafi fund-
ið bráðabirgðalausn og séu með
neyðarlúguna lokaða. Það er áfram
unnið að því að finna fullnaðar-
lausn á vandamálinu,“ segir Svava
Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi
hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja-
víkur, um skólpdælustöðina við
Faxaskjól þar sem 750 lítrar af
skólpi hafa flætt út í hafið á sek-
úndu seinustu daga.
Dælustöðin við Faxaskjól flytur
skólp frá Norðlingaholti, hluta Ár-
bæjar, Breiðholti, Fossvogi, Garða-
bæ og Kópavogi í skólphreinsistöð-
ina í Ánanaustum. „Þetta fer rétta
leið núna,“ segir Svava, en Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur tók sýni
úr fjörunni í gær og fær bráða-
birgðaniðurstöðu frá MATÍS í dag.
Heilbrigðiseftirlitið mun í kjölfarið
meta stöðuna og hvort þurfi að
fara í hreinsiaðgerðir á svæðinu.
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Svava að ekkert væri að sjá í fjör-
unni sem gæfi ástæðu til þess að
ætla að það þyrfti að hreinsa hana.
Unnið að viðgerð
Samkvæmt frétt á vef Veitna í
gær kom í ljós að mikill leki sjávar
var meðfram lokunni inn í stöðina.
Undanfarið hafa starfsmenn Veitna
unnið hörðum höndum að viðgerð
en tafir orðið vegna aðstæðna.
Bilunin var tilkynnt til Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur þegar
hún kom upp. Niðurstöður sýna-
töku frá því í júní sýndu að gildin
féllu innan þeirra marka sem heim-
il eru fyrir baðstaði í náttúrunni.
mhj@mbl.is
Ný sýni úr
fjörunni
greind í dag
Neyðarlúgan nú
lokuð við Faxaskjól
Morgunblaðið/Golli
Skólp Starfsmenn Veitna hafa unn-
ið hörðum höndum að viðgerð.
Alexander Gunnar Kristjánsson
agunnar@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur ógilt ákvörðun
Skipulagsstofnunar frá í nóvember
þess efnis að hótelbygging Fosshót-
ela í landi Grímsstaða við Mývatn
skuli ekki háð mati á umhverfisáhrif-
um.
Forsaga málsins er sú að í október
síðastliðnum voru framkvæmdir við
hótelið stöðvaðar er í ljós kom að
hvorki hafði verið sótt um leyfi fyrir
framkvæmd hjá Umhverfisstofnun
né hafði Skipulagsstofnun fengið
tækifæri til að meta hvort fram-
kvæmdin væri háð umhverfisáhrif-
um.
Í nóvember komst Skipulags-
stofnun svo að þeirri niðurstöðu að
umhverfismat væri óþarft og í kjöl-
farið fékkst framkvæmdaleyfi frá
Umhverfisstofnun. Framkvæmdum
var fram haldið og reis hótelið á met-
tíma en það var opnað um síðustu
helgi. Landvernd kærði málið til úr-
skurðarnefndarinnar sem kvað upp
dóm sinn í gær.
Mývatn njóti vafans
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
fagnar ákvörðun úrskurðarnefndar-
innar og segir hana staðfesta það
mat Landverndar að ákvörðun
Skipulagsstofnunar hafi ekki verið
nógu vel unnin. „Það er náttúrlega
alveg ólíðandi hvernig öll þessi máls-
meðferð hefur verið,“ segir Guð-
mundur. „Forsendur fyrir bygging-
arleyfi eru brostnar.“
Málið er nú aftur á borði Skipu-
lagsstofnunar og hennar að taka
ákvörðun að nýju um hvort hótelið
skuli fara í umhverfismat. Í raun
getur stofnunin komist að sömu nið-
urstöðu og áður, að framkvæmdin
þurfi ekki umhverfismat, færi hún
ný rök fyrir máli sínu.
Guðmundur bindur vonir við að
Skipulagsstofnun sendi hótelið í mat.
„Það að kanna umhverfisáhrifin
hlýtur að vera af hinu góða,“ segir
hann og bætir við að Mývatn verði að
njóta vafans. Svæðið sé þegar á
rauðum lista Umhverfisstofnunar
yfir svæði í hættu. Ekki er ljóst hver
næstu skref eru en hótelið hefur,
sem fyrr segir, þegar tekið til starfa.
Svo gæti þó farið að það missi starfs-
leyfi sitt fari svo að niðurstaða um-
hverfismats verði óhagstæð.
Guðný Ester Aðalsteinsdóttir hót-
elstýra vildi ekki tjá sig um málið
þegar eftir því var leitað en sagði það
vera til skoðunar innan fyrirtækis-
ins.
Gæti þurft að fara í mat
Skipulagsstofnun taldi umhverfismat fyrir nýtt Fosshótel við Mývatn óþarft
Úrskurðarnefnd hefur ógilt ákvörðunina Hótelið þegar tekið til starfa
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Flennistórt Nýtt Fosshótel við Mývatn fer ekki fram hjá nokkrum manni
sem ferðast um náttúruperluna. Umhverfismat hefur ekki farið fram.
Í Úlfarsá eða Korpu er oft ágæt laxveiði. Í gær
bar fluguveiðimaður sig fagmannlega að milli
gróinna bakka ofan við Fossaleynisfossa undir
Keldnaholti en engum sögum fer af aflabrögð-
um. Í næsta nágrenni var hjólreiðafólk á ferð og
kylfingar slógu bolta sína á Korpúlfsstaðavelli.
Morgunblaðið/Eggert
Fagmennska við fluguveiði
Alls konar útivist á góðum degi við Korpu
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Um 80% fleiri umsóknir um alþjóð-
lega vernd á Íslandi bárust Útlend-
ingastofnun á fyrri helmingi þessa
árs en á sama tíma í fyrra. Heildar-
fjöldi umsókna fyrstu sex mánuði
ársins er 500 en á fyrri helmingi síð-
asta árs bárust 275 umsóknir frá
hælisleitendum. Í síðasta mánuði
sóttu alls 130 einstaklingar um al-
þjóðlega vernd á Íslandi.
Fjölgunin frá 2016 bendir því enn
til þess að umsóknir um alþjóðlega
vernd á árinu geti orðið allt að 2.000
talsins, jafnvel fleiri, samkvæmt
upplýsingum frá Útlendingastofnun.
Umsækjendur í júní voru frá 19
þjóðlöndum.
Flestir frá Albaníu og Georgíu
Flestir umsækjendur í síðasta
mánuði voru frá Albaníu eða 44 ein-
staklingar. Þar á eftir voru umsókn-
ir frá Georgíu, 40 talsins. 42% um-
sækjenda komu frá ríkjum
Balkanskagans. Karlar eru í miklum
meirihluta en 78% umsækjenda
voru karlkyns og konur 22%. Í lang-
flestum tilfellum er um fullorðið fólk
að ræða en 85% umsækjenda voru
fullorðnir og 15% yngri en 18 ára.
Þá kváðust þrír umsækjendur vera
fylgdarlaus ungmenni.
Niðurstaða fékkst í 93 mál í júní-
mánuði. 24 þeirra 33 mála sem tekin
voru til efnislegrar meðferðar lauk
með ákvörðun um synjun og níu
með ákvörðun um veitingu verndar
eða dvalarleyfis af mannúðarástæð-
um.
Sextán mál voru afgreidd með
ákvörðun um endursendingu á
grundvelli Dyflinnarreglugerðarinn-
ar og 44 umsækjendur drógu um-
sóknir sínar til baka eða hurfu.
Stoðdeild Ríkislögreglustjóra
flutti 42 einstaklinga úr landi í júní.
25 einstaklingar yfirgáfu landið
sjálfviljugir með stuðningi Útlend-
ingastofnunar í mánuðinum og 13
með stuðningi Alþjóðafólksflutn-
ingastofnunarinnar (IOM).
Um 80% fleiri sækja um
alþjóðlega vernd á Íslandi
Umsóknir gætu orðið allt að 2.000 talsins á þessu ári