Morgunblaðið - 07.07.2017, Blaðsíða 17
AFP
Mótmæli Hlúð að þingmönnum sem særðust eftir
árás stjórnarsinna á þinghúsið í Venesúela.
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Að minnsta kosti sjö þingmenn særðust eftir að
múgur stuðningsmanna ríkisstjórnar Venesúela
réðst inn í þinghúsið á miðvikudaginn og barði þá.
Stjórnarsinnarnir eru sagðir hafa verið vopnaðir
prikum og að minnsta kosti einn var með skot-
vopn, en einnig kveiktu þeir í flugeldum.
Árásin átti sér stað eftir þingfund þar sem
þjóðhátíðardegi landsins var fagnað. Fögnuðurinn
breyttist í níu klukkustunda blóðuga árás þegar
um 100 stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hindr-
uðu um 350 þingmenn og aðra starfsmenn þings-
ins í að komast heim til sín. Lokuðu þeir sig af inn í
herbergjum þingsins með því að hlaða upp hús-
gögnum og mottum. Er árásinni lauk mátti sjá
blóðbletti á veggjum.
„Þetta er ekki jafn sárt og það að sjá á hverjum
degi hvernig við erum að missa landið okkar,“
sagði þingmaðurinn Armando Armas við frétta-
menn á sama tíma og hann fór upp í sjúkrabíl, vaf-
inn blóðugum sáraumbúðum.
Að minnsta kosti 90 eru látnir eftir að daglegar
mótmælaaðgerðir hófust í aprílmánuði gegn
Nicolás Maduro forseta og stjórn hans. Aðgerð-
irnar hafa nú staðið í þrjá mánuði, en mótmæl-
endur segja efnahag landsins í kaldakoli eftir
margra ára óstjórn. Maduro sakar hins vegar er-
lend ríki, einkum Bandaríkin, um að standa að
baki mótmælunum.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur fordæmt árás-
ina á þinghúsið og sagt hana vera árás á grund-
vallarreglur lýðræðisins sem konur og karlmenn
hafa barist fyrir síðan Venesúela fékk sjálfstæði
fyrir 206 árum.
Blóðug árás á þinghúsið
Árásin stóð yfir í níu klukkustundir Að minnsta kosti sjö þingmenn særðir
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Donald Trump Bandaríkjaforseti flutti ræðu við
minnisvarða um Varsjár-uppreisnina árið 1944 í opin-
berri heimsókn sinni til Póllands í gær. Í ræðu sinni
sagði hann að tengslin yfir Atlantshafið væru eins
sterk og alltaf og að mörgu leyti enn sterkari. Forset-
inn ítrekaði jafnframt að Bandaríkin stæðu þétt með
bandamönnum sínum í NATO. Í dag mun Trump funda
með Vladimír Pútín Rússlandsforseta á G20-fundinum.
AFP
Bandaríkin standa þétt með NATO
Ljósmynd sem fannst nýverið er
sögð benda til þess að hinn þekkti
bandaríski flugmaður Amelia Ear-
hart gæti hafa látist í haldi Japana
en ekki í flugslysi í Kyrrahafi eins
og flestir hafa talið hingað til. Ear-
hart hvarf sporlaust árið 1937.
Hvarf hennar hefur reynst ein
stærsta ráðgáta sögunnar.
Ljósmyndin fannst í Þjóðskjala-
safni Bandaríkjanna og talið er að
bandarískur njósnari hafi tekið
hana á Marshalleyjum á Kyrrahafi
á fjórða áratug síðustu aldar. Eyj-
arnar voru þá undir yfirráðum Jap-
ana. Á myndinni sést hópur fólks. Í
honum er kona sem snýr baki við
ljósmyndaranum. Giskað hefur ver-
ið á að sú kona sé Amelia Earhart
en flugvél sést einnig á myndinni,
sem gæti hafa tilheyrt henni.
Ein stærsta ráðgáta
sögunnar leyst?
BANDARÍKIN
Flugkappi Ráðgátan um Ameliu Ear-
hart hefur löngum valdið heilabrotum.
Moon Jae-in,
forseti Suður-
Kóreu, sagði í
gær að hann
væri ennþá tilbú-
inn til þess að
hitta Kim Jong-
un, leiðtoga
Norður-Kóreu,
„hvar sem er og
hvenær sem er“,
ef það myndi duga til þess að draga
úr þeirri spennu sem nú ríkir á
Kóreuskaganum.
Moon sagði jafnframt að það
væri hættulegt að nú væru engar
viðræður í gangi við Norður-Kóreu
um kjarnorkumál landsins, þar sem
brýnt væri að draga úr því hættu-
ástandi sem nú hefði skapast.
Moon enn tilbúinn
að hitta Kim
Moon Jae-in
SUÐUR-KÓREA
Innanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins samþykktu á fundi sínum í
gær að þeir myndu styðja við áætlun
framkvæmdastjórnar sambandsins
um aðstoð við Ítalíu vegna flótta-
mannavandans, en ríkið hefur borið
hitann og þungann af flóttamanna-
straumnum yfir Miðjarðarhafið í ár.
Áætlað er að um 85.000 af um
100.000 flóttamönnum hafi lent á
ströndum Ítalíu og hafa ráðamenn
þar sagt að landið ráði illa við þann
þrýsting sem straumurinn veldur.
Í lok fundarins, sem haldinn var í
Tallinn, höfuðborg Eistlands, sendu
ráðherrarnir frá sér skriflega yfir-
lýsingu, þar sem ítrekað var að
ástandið á Miðjarðarhafi væri mikið
áhyggjuefni fyrir öll aðildarríki Evr-
ópusambandsins.
Erfitt og hættulegt ferðalag
Marco Minniti, innanríkisráð-
herra Ítalíu, fagnaði yfirlýsingunni
sem og þeim skrefum sem stigin
hefðu verið á fundinum í Tallinn til
þess að létta þrýstingnum af Ítalíu,
sem væru mikils virði.
Flestir flóttamannanna koma frá
Afríku sunnan Sahara-eyðimerkur-
innar. Þaðan ferðast þeir til Líbýu
þar sem þeir leggja af stað yfir Mið-
jarðarhaf til Ítalíu. Ferðalagið yfir
hafið er langt og hættulegt, en Sam-
einuðu þjóðirnar áætla að meira en
2.200 manns hafi farist á Miðjarð-
arhafi á flótta.
Ítalir hafa sem fyrr segir þegar
tekið við um 85.000 flóttamönnum á
þessu ári og segjast þeir vera komn-
ir að þolmörkum. Hafa Ítalir kvart-
að undan því að önnur ríki sam-
bandsins við Miðjarðarhaf hafi lokað
höfnum sínum fyrir flóttamönnum
og jafnvel sent þá með skipi áleiðis
til Ítalíu. Hótuðu þeir því að þeir
myndu snúa slíkum skipum við í
hafi. sgs@mbl.is
Veita Ítölum aðstoð
með flóttamenn
Ráðherrar
álykta að ástandið
sé áhyggjuefni
AFP
Flóttamenn Ítalir hafa tekið við um
85.000 flóttamönnum á þessu ári.
Grænlenska dagblaðið Sermitsiaq
greindi frá því í gær að jarðfræð-
ingar teldu verulegar líkur á því að
fleiri berghlaup yrðu við Karratfjörð
í Grænlandi, og stafar þorpunum
Nuugaatsiaq og Illorsuit nokkur
hætta af. Rýma þurfti þau í síðasta
mánuði eftir að berghlaup í fjörðinn
olli flóðbylgju sem skall á þeim. Að
minnsta kosti fjórir eru taldir af
vegna hamfaranna.
Rannsóknir jarðfræðinganna hafa
leitt í ljós tvö fjöll við fjörðinn þar
sem hætta sé á skriðu, og virðist sem
öll fjallshlíðin sé nokkuð óstöðug.
Annars vegar sé um að ræða svæðið
þaðan sem berghlaupið í júní kom og
hins vegar er það svæði um fimm
kílómetrum vestar sem er jafnvel
enn stærra. Yfirvöld hafa í ljósi nið-
urstöðunnar beðið með að hleypa
íbúum þorpanna aftur heim til sín til
bráðabirgða, en óvíst er hvort og þá
hvenær af því getur orðið. sgs@mbl.is
Óttast fleiri
skriður í
Grænlandi
Hætta á berghlaupi
úr tveimur fjöllum