Morgunblaðið - 07.07.2017, Page 13
Pure Natura Vörurnar eru seldar í ýmsum heilsubúðum og í Fríhöfninni.
gætum haldið áfram og komið okkur
áfram með vörur sem væru ekki um-
deildar svo við næðum að skapa okk-
ur nafn.“
Segja má að fyrirtækið hafi
verið í sókn síðan. „Nú erum við í
vöruþróun og ætlum að koma með
tvær nýjar vörur sína hvorum megin
við næstu áramót. Við erum til
dæmis að fara að nota lambaeistu og
fleira hráefni því okkur langar að
nýta skepnuna alla miklu betur.“
Eigum að búa til verðmæti
Hildur og Sigríður eru sam-
mála um að of miklu sé hent af því
sem til fellur við slátrun.
„Ef við horfum á hvað er búið
að gera með fiskinn, nú er verið að
nýta hann algjörlega upp til agna.
En við í landbúnaðinum höfum ein-
hvern veginn ekki verið að fylgja
þessari þróun. Þannig að fyrir okkur
snýst þetta svolítið um að búa til af-
urðir og verðmæti úr því kjöti sem
að framleitt er, fyrst að það er til
staðar,“ segir Hildur. Sigríður tekur
í sama streng. „Það er miklu betra
að nýta þetta í eitthvað sem gagnast
fólki, í heimi þar sem margt fólk líð-
ur næringarskort á degi hverjum.“
Hildur bendir á að innmaturinn sem
fyrirtækið notar sé 10-100 sinnum
næringarríkari en kjötið af sömu
skepnu. „Við erum ekki að fá nógu
mikið fyrir afurðina sjálfa, við eigum
að búa til verðmæti úr öllu því sem
skepnan býður upp á.“
Aðspurð segir Hildur viðtök-
urnar hafa verið alveg frábærar.
„Við byrjuðum að selja á Íslandi í
lok mars og það hefur gengið mjög
vel. Erum að selja í ýmsum heilsu-
búðum og í Fríhöfninni. Íslenski
markaðurinn er frábær að mörgu
leyti til þess að prufa vörur en hann
er helst til lítill fyrir fyrirtæki eins
og okkar sem stefnir á að framleiða
og skara fram úr.“ Pure Natura hef-
ur því sett stefnuna á Bandaríkin.
„Það er markaðurinn sem við horf-
um svolítið til vegna þess að þar er
notkun á þessum vörum vel þekkt.
Það er aðeins auðveldara að fara inn
á markað þar sem að fólk þekkir
eitthvað sambærilegt.“
Hildur segir mikinn áhuga vera
á vörum Pure Natura á erlendum
markaði. „Við erum komin með tvo
dreifingaraðila sem vilja selja vör-
urnar okkar í Bandaríkjunum og
þær eru núna í hefðbundnu skrán-
ingarferli. Við vonumst til þess að
þær vörur geti komist á Bandaríkja-
markað strax í haust. Við erum líka
að fara á sýningu sem að heitir Nat-
ural Product Expo í Baltimore í
september.“
Neytendur eru meðvitaðari
en áður var
Spurð hvort Evrópa sé ekki
næst á dagskrá segir Hildur að það
sé aldrei að vita hvar tækifærin
leynist.
„Embluverðlaunin í Kaup-
mannahöfn eru miðuð að Skandi-
navíu. Þannig að við fáum einhverja
kynningu þar. Hver veit nema það
opnist einhver tækifæri þar og við
verðum komin með dreifingaraðila í
Danmörku eða Noregi. Aldrei að
vita nema að Evrópa fari að opnast
meira fyrir þetta.“
Þær Sigríður og Hildur eru
sammála um að ákveðin vitund-
arvakning sé að verða meðal fólks.
„Jarðvegurinn er einhvern veginn
aðeins öðruvísi núna,“ segir Sigríð-
ur. Hildur tekur undir það. „Ég held
að neytendur séu almennt að verða
mun meðvitaðari. Neytendum í dag
er ekki sama, upplýsingaflæðið býð-
ur upp á að fólk spyrji spurninga.“
Hildur leggur áherslu á að fram-
leiðsluferlið sé eins og best verður á
kosið. „Við hérna á Íslandi erum
með frábæra aðstöðu til að vinna
svona vörur. Við reynum að sjálf-
sögðu að passa upp á að þetta sé
gert fagmannlega. Það á allt að vera
sjálfbært. Við erum ekki að láta
slátra skepnum fyrir okkur til þess
að gera þetta, þessum skepnum er
slátrað í öðrum tilgangi. Við hirðum
afganginn sem í sumum tilfellum er
fleygt, og í öðrum tilfellum fæst of
lítið verð fyrir hann. Það eru því all-
ir að græða á þessu ef þetta gengur
upp,“ segir Hildur að lokum.
Úti í guðsgrænni náttúrunni Vörurnar eru meðal annars unnar úr villtum jurtum og grænmeti.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
www.volkswagen.is
Nýr Volkswagen Tiguan með kaupauka.
Skarpar línur, ríkulegt innanrými og sniðugar tækninýjungar gera Volkswagen Tiguan að spennandi valkosti
ef þú ert í bílahugleiðingum. Ríkulegur staðalbúnaður og freistandi kaupauki fylgir með bílum sem keyptir eru
í júlí og ágúst. Komdu í reynsluakstur og ræddu við okkur. Hlökkum til að sjá þig.
Tiguan Comfortline TSI, sjálfsk. fjórhjóladrifinn
5.890.000 kr.
Við látum framtíðina rætast.
Kaupauki að verðmæ
ti 425.000 kr.
• Rafdrifinn afturhler
i
• Lyklalaust aðgengi
• Aðfellanlegir hliðars
peglar
• Niðurfellanlegur drá
ttarkrókur