Morgunblaðið - 07.07.2017, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Við Íslend-ingar höfumlengi verið
stoltir af því, að
flestir þeir orku-
gjafar sem við nýtum hafa ver-
ið í formi jarðvarma- og vatns-
fallsvirkjana, sem jafnan eru
taldar í hópi umhverfisvænustu
orkugjafa sem völ er á. Jafn-
framt höfum við markaðssett
íslenska náttúru sem hreina og
ósnortna, og jafnvel reynt að fá
ferðamenn hingað til lands á
þeim forsendum að hér sé um
einstaka náttúruparadís að
ræða.
Það skýtur því skökku við,
þegar rýnt er í raforkureikn-
inginn, þar sem uppruna ork-
unnar er getið. Í staðinn fyrir
að þar sjáist hið sanna, að
99,99% af orkugjöfum okkar
eru endurnýjanleg, ber svo við
að meirihluti orkunnar er sagð-
ur eiga uppruna sinn í kjarn-
orku eða jarðefnaeldsneyti, svo
sem kolum eða jarðgasi. Miðað
við þær tölur sem Orkustofnun
hefur tekið saman um „upp-
runa“ orkunnar okkar eru
nærri því 80% orkunnar sem
við nýtum runnin af þessum
rótum.
Íslendingar eru því, sam-
kvæmt bókhaldinu, miklir um-
hverfissóðar, en ástæðan er
rakin til þess, að samkvæmt
tilskipun Evrópusambandsins,
sem leidd var hér í lög árið
2011, er orkufyrirtækjum á
evrópskum mark-
aði heimilt að selja
hreinleikavottorð
úr landi, þannig að
ríki og fyrirtæki,
sem annars myndu ekki stand-
ast skoðun, geti fengið á sig
gæðastimpil fyrir umhverfis-
vernd. Íslendingar taka þannig
á sig syndir heimsins.
Í ljósi þess að Íslendingar
flytja raforkuna hvorki inn né
út er hér um grófar blekkingar
að ræða, þar sem neytendur í
Evrópu eru látnir halda að
vörur séu umhverfisvænar sem
eru það ekki. Í Bændablaðinu
var sagt frá því að á sama tíma
hefur þetta haft áhrif á inn-
lenda framleiðslu, þar sem
matvælaframleiðendur hafa
þurft að kaupa sér vottorð, hafi
þeir viljað staðfesta að þeir
hafi ekki nýtt sér kjarnorku
eða kol, eins og bókhaldið seg-
ir.
Evróputilskipun sú, sem hér
um ræðir, hefði aldrei átt að
vera lögfest en rann þó í gegn-
um þingið mótatkvæðalaust.
Ímynd landsins sem náttúru-
paradísar er í húfi, þegar í
orkubókhaldi þjóðarinnar má
finna það út, að hér á landi hafi
verið framleiddur geislavirkur
úrgangur. Við þessu þarf að
bregðast, og huga í framtíðinni
að því, að þær tilskipanir ESB
sem hér séu innleiddar eigi við
íslenskar aðstæður, en séu
ekki bara teknar upp í blindni.
Ísland tekur á sig
syndir Evrópu }Ímyndin seld úr landi
Fréttamiðlarsegja að Don-
ald Trump, forseti
Bandaríkjanna,
hafi fengið myndar-
legar móttökur í
Póllandi en kula muni um hann
við komu til fundar G-20-ríkj-
anna í Hamborg. Obama fékk
poppstjörnustöðu víða í Evrópu
strax í kosningabaráttu sinni
fyrir níu árum og frægur varð
fundur hans við Brandenborg-
arhliðið vegna fjölmennis.
Norðmenn ruku til skömmu fyr-
ir kjör hans og veittu honum
friðarverðlaun Nóbels fyrir að
vera ekki repúblikani. Þegar
Obama kom síðar til Berlínar
með fullu umboði forseta
Bandaríkjanna mættu tiltölu-
lega fáir til að hlýða á ræðu
hans.
Obama hafði í rauninni lítinn
áhuga á Evrópu í sinni forseta-
tíð og gerði fátt til að styrkja
stöðu álfunnar. Þannig sló hann
af eldflaugavarnir, sem sagðar
voru til að bregðast við ógn frá
Íran, en voru þó Rússum mikill
þyrnir í augum. Búrókratakeis-
ararnir í Brussel líta á Pólverja
og Ungverja sem hluta af óró-
legu deildinni í ESB. Pólverjar
vilja ekki taka upp
evru né heldur súpa
seyðið af fljótfærni
Merkel kanslara í
flóttamannamálum.
Ungverjar eru enn
harðari í síðari þættinum.
Pólverjar eru þó alls ekki á
þeim buxum að fara úr ESB.
Þeir vilja með öllum ráðum
tengjast í vesturátt. Megin-
áherslan er á Nató, en aðildin
að ESB er einnig þáttur í þeirri
viðleitni. Árás Hitlers á Pólland
(byggð á „friðarsamningi“ við
Stalín sem réðst á landið úr
austri) varð til þess að Bretar
og Frakkar urðu þátttakendur í
stríði sem varð heimsstyrjöldin
seinni. Það var blettur á sigr-
inum í þeirri styrjöld að Pólland
skyldi skilið eftir í höndum
Stalíns, hers hans og leyniþjón-
ustu.
Þegar Trump sótti Nató heim
í fyrsta sinn láðist honum að
ítreka stuðning við 5. grein
sáttmála bandalagsins. Slíkt er
að jafnaði óþarft. En þar sem
Trump hafði talað gáleysislega
um varnarskyldur Bandaríkj-
anna vakti „gleymskan“ óhug.
Hann bætti úr þessu í Póllandi
núna. Það var nauðsynlegt.
Pólverjar tóku
Trump vel og nú er
komið að Pútín}
Bætti ráð sitt
Í
vikunni birtist frétt á mbl.is undir fyr-
irsögninni Vill halda karlmannslausa
tónlistarhátíð. Þar sagði frá fyrirætl-
unum sænsku fjölmiðlakonunnar og
grínistans Emmu Knyckare um að
halda tónlistarhátíð næsta sumar, þar sem
karlmönnum væri meinaður aðgangur, á
hverju ári þangað til karlmenn læra að haga
sér almennilega, eins og segir í Twitter-færslu
Knyckare.
Þessi tillaga kom í kjölfar þess að ákveðið
var að sænska Bråvalla-tónlistarhátíðin yrði
ekki haldin næsta ár eftir að tilkynnt var um
nauðgun og fjölda kynferðisárása á hátíðinni
sem var haldin um síðustu helgi. Í fyrra voru
fimm nauðganir kærðar eftir hátíðina.
Margir sáu sig knúna til að skrifa athuga-
semdir við fréttina á Facebook-síðu mbl.is.
Sumum fannst hugmyndin bráðsnjöll, aðrir fundu henni
ýmislegt til foráttu. Kallast þetta jafnrétti? var spurt í
einni athugasemdinni og vel má taka undir það. Varla er
hægt að halda því fram að útihátíð, þar sem fólki af til-
teknu kyni er meinaður aðgangur, stuðli að jafnrétti.
Enda lítur ekki út fyrir að Knyckare hyggi á að halda
karlmannslausa tónlistarhátíð, heldur virðist tilgangur-
inn fyrst og fremst hafa verið sá að vekja athygli á þeim
fjölda kynferðisbrota sem framin eru á tónlistar- og
útihátíðum.
Í vikunni lauk keppninni Meistaraverk, sem var haldin
á vegum Strætó þar sem fólki gafst kostur á að kjósa á
milli fjölda tillagna að skreyttum strætisvagni
sem aka mun um stræti og torg. Sigursæl-
astur varð strætó, sem var merktur
KÞBAVD, en fyrir þá sem ekki vita stendur
þessi skammstöfun fyrir Konur þurfa bara að
vera duglegri … og við þetta má síðan bæta
ótal mörgu, eins og t.d. að biðja um hærri
laun, að vera ákveðnari, að vera ekki eins og
drusla, að láta ekki nauðga sér og svona má
halda endalaust áfram. Þarna er verið að hæð-
ast að fullyrðingum um að þegar konur upplifi
kynbundna mismunun, þá sé engum um að
kenna nema þeim sjálfum og skorti á dugnaði.
Undirrituð er ekki viss um að karlalaus
útihátíð sé sérlega góð hugmynd. Þarna er
ekki verið að ráðast að rótum vandans sem er
einfaldlega sá að til eru karlar (sem eru sem
betur fer í miklum minnihluta) sem ráðast á
konur á kynferðislegan hátt. Þar fyrir utan er til hellingur
af fávitum sem hætta líklega ekkert að vera fávitar þó að
haldnar verði útihátíðir án karla.
Með hugmyndinni um karlmannalausa útihátíð felst sú
lífseiga goðsögn að það sé á ábyrgð kvenna að koma í veg
fyrir með öllum hugsanlegum ráðum að karlar brjóti á
þeim kynferðislega. Konur þurfa ekki að vera duglegri
við að taka ábyrgð á hegðun annarra með því að halda
tónlistarhátíðir eða aðra viðburði þar sem karlar eru óvel-
komnir. Heldur þurfa fávitar að vera duglegri við að
hætta að vera fávitar og finna sér eitthvað annað að gera
en að brjóta á öðru fólki. annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
KÞBAVD að taka ekki ábyrgð á fávitum
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Margir bændur eru búnirmeð fyrsta slátt ogstyttist í að annarsláttur hefjist. Ekki
þykir ólíklegt að sumir slái tún sín
þrisvar í sumar.
Tún komu almennt vel undan
vetri og maí var tiltölulega hlýr.
Grasspretta tók vel við sér og grasið
varð þétt og gott. Fyrstu bændur
hófu slátt um mánaðamót maí og
júní og yfirleitt voru menn farnir að
slá friðuð tún, þ.e. tún sem ekki voru
beitt í vor, í kringum 10. júní. Júní-
mánuður hefur hins vegar verið
gloppóttur hvað þurrk varðar. Spáin
er góð fyrir næstu helgi og útlit fyrir
brakandi þerri víða.
Eiríkur Loftsson, ráðunautur
hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins (RML) á Sauðárkróki, segir að
sláttur hafi byrjað fyrr en gengur og
gerist í Skagafirði, Eyjafirði og í
Húnavatnssýslum. „Almennt eru
bændur með friðuð tún búnir með
fyrsta slátt. Heyskapur er óvenju
langt kominn,“ sagði Eiríkur. Hann
segir að sláttur hafi víða byrjað um
og upp úr 10. júní. Þeir fyrstu byrj-
uðu að slá valda bletti um mánaða-
mót maí og júní.
„Það var enginn klaki í jörðu og
maí hlýr norðanlands framan af. Svo
kólnaði seinni partinn í maí og fyrri-
hluta júní. Þá hægði aðeins á
sprettu,“ sagði Eiríkur. Hann telur
að óvenju mörg tún verði slegin
þrisvar í ár. Kannski af illri nauðsyn
því uppskeran hefur verið góð.
„Grasið var þétt eftir veturinn og al-
mennt eru menn að fá mjög vel af
heyjum.“
Góð spretta og skúrir
„Það hefur verið mjög góð
sprettutíð, en það hefur aðeins rignt
á menn, síðdegisskúrir og svoleiðis,“
sagði Guðfinna Harpa Árnadóttir,
ráðunautur RML á Austurlandi.
Hún segir að sláttur hafi byrjað
snemma fyrir austan, fyrr en í með-
alári. Grasspretta hefur verið mjög
góð. Kúabændur eru allir búnir með
fyrri slátt. Sauðfjárbændur eru yfir-
leitt seinni til að hefja slátt því þeir
beita margir tún sín. Hún kveðst
hafa trú á að margir kúabændur geti
slegið þrisvar í sumar.
Heyskapur byrjaði á Suður-
landi fyrstu dagana í júní. Sveinn
Sigurmundsson, framkvæmdastjóri
Búnaðarsambands Suðurlands, telur
að heyskapur hafi almennt gengið
nokkuð vel á Suðurlandi.
„Veðrið hefur ekki alltaf leikið
við menn, en það hafa verið glýjur.
Ég hugsa að flestir kúabændur, ef
ekki allir, séu búnir með það sem
skiptir máli fyrir kýrnar,“ sagði
Sveinn. Hann segir að túnin hafi
komið ákaflega vel undan vetri og
gróskan verið mikil. Maímánuður
var góður en júnímánuður ekki sér-
staklega hlýr.
Sigurður Loftsson bóndi segir
að góð heyskapartækni og afkasta-
mikil hafi komið sér vel í sumar. All-
ir sem hafi sinnt heyskapnum af
krafti hafi náð þokkalegum heyjum.
Túnin sem voru slegin fyrst eru orð-
in vel sprottin og ekki langt í að bera
þurfi niður í annan slátt.
Árni Brynjar Bragason, ráðu-
nautur RML á Vesturlandi, segir að
tíðin hafi verið svolítið stirð. „Það
hefur verið skúrasamt en góð
spretta. Þurrkar hafa verið stuttir
og stopulir. Nokkrir kúabændur
eru búnir með fyrri slátt,“ sagði
Árni. Sláttur byrjaði snemma í
Borgarfirði og á Snæfellsnesi en
seinna í Dölunum. Árni telur
orðið tímabært að menn
ljúki fyrri slætti, enda
séu túnin orðin vel
sprottin.
Margir ná að slá tún
sín þrívegis í sumar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Heyskapur Grasspretta fór vel af stað og víða gátu bændur slegið
snemma. Útlit er fyrir að margir geti slegið tún sín þrisvar í sumar.
„Þetta er 30. starfsárið okkar,“
sagði Bessi Freyr Vésteinsson,
verktaki og bóndi í Hofsstaða-
seli í Skagafirði. Hann rekur
verktakafyrirtækið Sel ehf.
sem heyjar fyrir bændur á 25 -
30 bæjum í Skagafirði.
„Verktaka í heyskap er orðin
mjög almenn hér og nokkrir
sem bjóða þessa þjónustu. Ég
tel að meirihluti bændabýla í
Skagafirði nýti sér núorðið
verktöku – sérstaklega í hey-
skap,“ sagði Bessi.
Sel ehf. gerir út þrjár rúllu-
samstæður sem binda og
pakka í plast, tíu metra
breiða sláttuvél og
samsvarandi rakstr-
arvél og snúningsvél.
Yfirleitt er heyjað fyrir
meðal kúabú, 700-
1.000 rúllur, í tveimur
lotum. Um 7-10
manns koma að
heyskapnum hjá
Seli.
Verktaka
færist í vöxt
VERKTAKAR Í HEYSKAP
Bessi Freyr
Vésteinsson