Morgunblaðið - 07.07.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvað liggur í loftinu sem gerir þig
óörugga/n. Allt sem þú gerir ánægjunnar
vegna getur á undarlegan hátt fært þér pen-
inga.
20. apríl - 20. maí
Naut Þið ættuð að líta vandlega í kringum
ykkur og kunna að meta það sem þið hafið.
Farðu ekki of geyst og leyfðu öðrum að njóta
sín líka.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú áleist þig vita í hverju þú værir
best/ur, en sumir hæfileikar þínir eru svo
augljósir að þú sérð þá ekki. Bestu hug-
myndirnar koma auðvitað klukkan þrjú á
morgnana.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þig langar svo að njóta athygli
vinnufélaga þinna að þú ert reiðubúin/n að
leggja ýmislegt á þig. Efldu trúarlíf þitt og
leitaðu svara við spurningum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allt samstarf byggist á samkomulagi
og málamiðlunum. Hvernig gengur? Hefurðu
kannski slegið þeim á frest? Þú verður beð-
in/n um að axla meiri ábyrgð innan
skamms.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ákveðinn léttir þegar búið er
að taka ákvörðun. Haltu þínu fram af hóg-
værð og þá verður tekið tillit til þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það eru mikil sannindi í því fólgin að illt
sé að leggja ást við þá sem enga kann á
móti. Farðu varlega ef lýsingin á við þig og
ekki ofgera þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Græðgi er ljótur ávani. Þótt
margir hlutir séu eftirsóknarverðir, ferst
heimurinn ekki, þótt þú komir ekki höndum
yfir þá. Líkurnar eru þér ekki í hag núna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur verið freistandi að
notfæra sér góðvild annarra, en það verður
þú að standast. Nú er bara að sýna stað-
festu og sigla málunum í örugga höfn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Viðskipti geta verið varasöm, þeg-
ar ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Tæki-
færin sem bjóðast í tengslum við nám og
ferðalög til ókunnra landa eru stórkostleg.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að huga að framtíðinni
og tryggja stöðu þína sem best. Samræð-
urnar snúast hugsanlega um börnin eða
skipulagningu ferðalags.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér er nauðsynlegt að brydda upp á
einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit. Líttu
á björtu hliðarnar og vertu jákvæður.
Ítímaritinu Iðunni, nýjum flokki, 1.árg. er skemmtileg grein um Ká-
in eftir Jón Helgason, sem er heimild
mín í þessu Vísnahorni, – nema hann
ritar „Cowan“ fyrir Káin. Venja var
að skrifa K.N. Kristján Júlíus Jóns-
son (járnsmiðs á Akureyri) hét hann
og var alinn upp á Norðurlandi.
Hann hefur verið vel stálpaður þeg-
ar hann fór vestur um haf sé mark
takandi á því sem hann segir um
sjálfan sig:
Svo flúði ég feðragrundu
mér fannst þar alltof þurrt;
að leita fjár og frama
og fullur sigldi burt.
Káin þótti prestur nokkur lítill
fyrir mann að sjá:
Einn var þar svo undurmjór og einskis
virði;
margur hissa horfði og spurði:
„Hver er þessi drottins smurði?“
Og enn um presta:
Fyrsti klerkur sem ég sá
sálu mína blekkti,
síðan hef ég andstyggð á
öllu prestaslekti.
Kristinn prestur og Káinn:
Kristinn prestur hvar sem fer
er Káin meiri;
hann er bestur sjálfum sér
og svo eru fleiri.
Káinn prestur enginn er
og engum meiri;
hann er verstur sjálfum sér
og svo eru fleiri.
Víða er þunglyndiskeimur af kvið-
lingum Káins þegar hann minnist á
sjálfan sig eða lítur yfir ævi sína:
Þyngir auður ekki dreng,
þótt yfir hauður svífi,
móti dauða eg glaður geng
frá gæfusnauðu lífi.
Mér hefur veröld verið köld
og viljað lítið gagna,
hef ég þó átt í hálfa öld
hundaláni að fagna.
Þetta erindi er um blesóttan klár,
sem landi einn keypti af gyðingi
nokkrum en reyndist óþjáll viður-
eignar:
Klárinn illa kristinn var,
um kreddur skeytti ei lúterskar,
eðli spillt í æðum bar
eins og flestir gyðingar!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Samtíningur eftir Káin
Í klípu
„ÉG ÆTTI KANNSKI AÐ FÁ EINHVERN ANNAN
TIL ÞESS AÐ SKRIFA UNDIR ÞETTA. ÉG GET
VARLA SOFIÐ Á NÓTTUNNI EINS OG ER.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ GLEYMDIR AÐ GEFA
HENNI ÞJÓRFÉ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fjárfesta
í hvort öðru.
ÉG HEF OF MIKL-
AR ÁHYGGJUR
EÐA EKKI
NÆGAR
VILTU PRÓFA SVOLÍTIÐ
SEM MUN LÁTA VAXA HÁR
Á BRINGUNA Á ÞÉR?
ENDILEGA!
HVAÐ ER ÞETTA?
LÁNA-
SKRIFSTOFA
HÁROLÍA!
HATTAGEYMSLA
Nýlega lagði Félag eldri borgara íReykjavík, FEB, út net í þeirri
von að veiða nýja félagsmenn, sendi
út dreifibréf til hugsanlegra félaga í
náinni framtíð og dásamaði félags-
skapinn í bak og fyrir með þeirri
orðsendingu að hann stæði vörð um
hagsmuni viðtakanda.
x x x
Í bréfinu er sérstaklega vakin at-hygli á gráa hernum sem bar-
áttuhópi eftirlaunahóps innan fé-
lagsins. En ekki er allt sem sýnist
hjá þeim gráu.
x x x
Af viðtali við Ingu Sæland, for-mann Flokks fólksins, í Reykja-
vík síðdegis á Bylgjunni á dögunum
má ráða að grái herinn sé bara skip-
aður samfylkingarfólki fyrir sam-
fylkingarfólk. Hún segist oft hafa
reynt að hafa samband við forsvars-
menn gráa hersins en þeir vilji ekk-
ert við sig tala. „Þar segir ein kona
að hún hafi alltaf verið samfylking-
arkona og ætli að halda því áfram og
vildi ekkert við mig tala,“ sagði Inga
í viðtalinu. „Það er enginn vilji,“
sagði hún. „Mér finnst þetta grút-
máttlaust. Mér finnst þetta sorglega
máttlaust.“
x x x
Samfylkingin þurrkaðist nær út ínýjustu kosningum og mælist
ekki hátt í skoðanakönnunum en
heldur víða í spotta og meðal annars
í Reykjavík. Inga sendi borgaryfir-
0völdum líka tóninn, lagði áherslu á
að hún vildi draga spillta stjórn-
málamenn til ábyrgðar og minnti á
að Flokkur fólkins ætlaði að bjóða
fram í sveitarstjórnarkosningunum
á næsta ári. „Ég vil að Reykvíkingar
hafi sjálfval um það hvort allir séu
hér settir á hjól eða fái að njóta
einkabílsins.“
x x x
Í bréfinu segir að það margborgi sigað vera hluti af FEB og því um að
gera að skrá sig. Athygli vekur að
árið er styttra hjá FEB en öðrum,
ekki 12 mánuðir eins og venjan er.
„Félagsréttindin gilda til 15. mars
2018,“ segir í kynningarbréfinu.
Nánast fram að næstu bæjarstjórn-
arkosningum. vikverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.
(Sálm. 106:1)
Viðskipti