Morgunblaðið - 07.07.2017, Síða 31

Morgunblaðið - 07.07.2017, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017 DÖMUSKÓR SKECHERS GO FLEX DÖMUSKÓR MEÐ LÉTTU GOGA MAT INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41 VERÐ ÁÐUR 13.995 VERÐ 9.796 30% AFSLÁTTUR KRINGLU OG SMÁRALIND AF MÁLMI Hjalti St. Kristjánsson hjaltistef@mbl.is Það er ekki laust við að andrúms- loftið á Norðfirði hafi verið lævi blandið þegar langferðabíllinn skreið niður Oddsskarð. Austfjarðaþokan lúrði úti fyrir mynni fjarðarins og loftið var tært. Það var þó augljóst að aukið líf var að færast yfir plássið. Stöku ófrýnileg hræða sást líða um göturnar. Það var ekki um að villast. Það var komið að Eistna- flugi 2017. Hljómsveitalisti hátíðarinnar er ansi veglegur og margt sem vekur tilhlökkun, þó er eitt sem angrar. Einn af stóru mönnum íslensks þungarokkssamfélags, Guðlaugur (Gulli) Falk féll frá í seinni hluta síðustu viku og er skarð fyrir skildi. Gulli lék með hljómsveitum á við Dark Harvest, Exist, og Audio Nation og er í það minnsta rokkunnendum vel kunnugur. Þar fyrir utan var hann gull af manni og hvers manns hugljúfi. Ég vænti þess að allnokkrum skálum verið lyft honum til heiðurs þessa helgi. World Narcosis hóf leikinn þetta Flugið og það var morgun- ljóst að ekkert skyldi gefið eftir. Hægir og hraðir kaflar skiptust á og allt spilað af mikilli ákefð. Cult of Lilith sló hvergi af og var síður en svo eftirbátur þó að stefnan væri önnur. Afbragðs dauðarokk með öllum helstu einkennum. Grave Superior keyrði með svip- uðum ákafa og böndin sem á und- an höfðu farið. Sígilt dauðarokk með nýmóðins snúningi. Í heild hin allra besta skemmtun. Oni, heimamennirnir, fór í sí- gildari átt. Settið sem þeir spiluðu var að miklu leyti hreinræktað rokk og ról þó svo áhrif úr harðari áttum væru vel greinanleg. Það hefur augljóslega talsvert vatn runnið til sjávar síðan á síðasta Eistnaflugi. Þá spilaði Oni hrein- ræktað „stoner-rokk“ en þeir hafa án efa tekið aðeins til á effekta- brettinu og fært sándið í mun harðari átt. Niðurstaðan er stórskemmtilegt grjóthart rokk sem líkist í fljótu bragði ekki neinu öðru sem ritari hefur heyrt. Stóru sprengjurnar mættar Hin fornfræga hljómsveit And- lát átti næsta leik. Hljómsveitin vann Músíktilraunir 2001 og var eitt af stóru nöfnunum í hard- core-bylgjunni sem tröllreið land- inu upp úr aldamótum ásamt Mín- us og Bisund, svo eitthvað sé nefnt. Þeir spila grjóthart Death- core og eru sem stendur að vinna að nýju efni sem væntanleg mun ná eyrum hlustenda með haustinu. Zatokrev, hin svissneska, var fyrsta erlenda númer hátíðar- innar. Þeir spila eins konar dauða- rokk, í hægari kantinum, eða sludge/death/doom metal. Sú stefna einkennist af langvarandi legu á sömu nótu, eða öllu heldur í sama hljómi og svo er flakkað milli nótna í hljómnum. Það á við margar af stefnunum í þessum öfgafulla hljóðheimi að það er erf- itt að skýra þær með orðum, held- ur er það huglægur skilningur sem ræður för í greiningu á hverri hljómsveit fyrir sig. Eins er erfitt að greina á milli fyrir þá sem eru ekki þeim mun innvinklaðri í eina stefnu umfram aðra. Hatari var fyrsta hljómsveit dagsins sem ekki lék bókstaflegt, blátt áfram þungarokk. Það má þó alls ekki skilja á þann hátt að þeir hafi mætt með eitthvert léttmeti, síður en svo. Electro-pönk brjál- æðið, þungi bassinn, og prédikanir Mattíasar Tryggva, söngvara hljómsveitarinnar, yfir lýðnum hrifu alla með sér. Sviðslista- hópurinn eða hljómsveitin, eftir því hvernig á það er litið, á tví- mælalaust eftir að ná langt og þykir greinarritara líklegt að það verði síður en svo bara þunga- rokkarar sem munu hrífast með í framtíðinni. Neurosis er fyrsta hljómsveitin úr efstu línunni á plakatinu, sem segir okkur það að eitthvað stórt var að fara að gerast og maður minn! Þessi algjöra geðveiki hristi sko aldeilis upp í áhorfendum og það var strax sýnilegt hvers vegna hljómsveitin hefur hlotið brautar- gengi frá árinu 1985. Hljóðheim- urinn var risavaxinn og drynjandi bassatónar orgelsins skóku salinn og áhorfendur á meðan gítarar, trommur, hljómborð, bassi og söngur röðuðu sér allt í kring svo ekki var ein einasta tíðni eftir. Hjá þeim sannaðist líka að góður hljóðmaður er án nokkurs vafa aukameðlimur í hljómsveitinni. Innvortis rak lestina, ef svo má að orði komast. Mig grunar að flestir sem í salnum voru hafi, líkt og undirritaður, beðið þessarar stundar með mikilli eftirvæntingu. Hljómsveitin hefur ekki spilað í allnokkur ár fyrir utan eina tón- leika á Hard Rock nú á dögunum og pönkþyrstir góðkunningjar Eistnaflugs voru spenntir fyrir því að að sjá eina af hljómsveitunum sem hófu þetta ævintýri koma fram. Í stuttu máli stóð hún 100% undir væntingum og er það einlæg ósk mín að Innvortis verði alltaf hluti af Eistnaflugi. Sumt gamalt, annað nýtt Neurosis Hristu allsvakalega upp í gestum, meira að segja í bókstaflegri merkingu. Ljósmyndir/Áfangastaðurinn Austurland/Daniel Byström Hatari Hefur tekið miklum framförum á sl. ári og er ein skemmtilegasta tónleikahljómsveit landsins. Kæling Hátíðargestir notuðu tímann milli hljómsveita til að kæla sig og ræða saman á fyrsta degi tónlistarhátíðarinnar Eistnaflugs. »Hatari var fyrstahljómsveit dagsins sem ekki lék bókstaf- legt, blátt áfram þunga- rokk. Það má þó alls ekki skilja á þann hátt að þeir hafi mætt með eitthvert léttmeti, síður en svo. Electro-pönk brjálæðið, þungi bass- inn, og prédikanir Mattíasar Tryggva, söngvara hljómsveit- arinnar, yfir lýðnum hrifu alla með sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.