Morgunblaðið - 07.07.2017, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Þórdís Erla Zoëga opnar í dag kl. 17
einkasýningu sína, Jafnvægi, í við-
burðasal Minör að Fiskislóð 57 í
Reykjavík. Sýningin mun standa stutt
yfir, eða til og með 9. júlí en verður
eftir það færð yfir á veitingastaðinn
Coocoo’s Nest.
Jafnvægi er fyrsta málverkasýning
Þórdísar en hún hefur að mestu gert
teikningar og innsetningar. Verkin
eru unnin út frá samhverfu og reynir
Þórdís að finna jafnvægi á myndflet-
inum. „Verkin eru ekki ákveðin fyrir-
fram og unnin með aðferðinni „eitt
leiðir að öðru“ þar sem að fylgja þarf
eftir hverri ákvörðun sem er tekin á
striganum. Því þó hver mynd virki
symmetrísk yfir heildina má sjá „vill-
ur“ sums staðar og að jafnvægið er
aldrei alveg fullkomið,“ segir Þórdís
um verk sín sem verða staðsett í
kringum stóra dansmottu sem er
gerð í sama anda og málverkin.
Þórdís Erla hefur sýnt víða, m.a. í
Amsterdam, Stokkhólmi, Berlín,
Basel og Tékklandi og hér á landi á
Listahátíð í Reykjavík, í Gerðarsafni
og D-sal Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsi.
Jafnvægi og sam-
hverfa í Minör
Samhverfa Eitt af verkum Þórdísar.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Hugmyndin varð upphaflega til
þegar Young Thug vildi koma til
landsins. Ég var að fara aftur af stað
með útvarpsþáttinn Kronik og því
var leitað til mín,“ segir Róbert Ar-
on Magnússon, einnig þekktur sem
Robbi Kronik, um Kronik Live-
tónlistarveisluna sem fram fer í
Laugardalshöll í kvöld.
„Í þættinum erum við með dag-
skrárlið sem kallast Kronik Live þar
sem við fáum listamenn til að taka
lög í beinni. Í ljósi þess hve frábærar
viðtökur þátturinn hefur fengið
ákváðum við að blása til léttrar tón-
listarveislu í kringum tónleika
Young Thug,“ segir Róbert og að því
hafi þetta undið upp á sig á óvæntan
en skemmtilegan hátt.
„Young Thug vildi koma hingað.
Þessir listamenn eru mikið að
ferðast um Evrópu á sumrin, en
hann er að fara að spila á Wireless-
hátíðinni þessa helgi. Það hentaði
því vel að hann kæmi hingað og tæki
eitt létt gigg og hitaði sig upp,“ segir
Róbert.
Ferskasti rapparinn í dag
Young Thug er eitt stærsta nafnið
í rappheiminum í dag en fyrir þá
sem ekki vita hver hann er segir
Róbert hann hafa verið að gera frá-
bæra hluti undanfarin ár. „Hann
hefur verið að vinna með öllum
stærstu nöfnum bransans eins og
Drake og Kanye West. Nýja platan
hans sem kom út fyrir nokkrum vik-
um er einmitt öll pródúseruð af
Drake. Young Thug hefur verið að
stimpla sig inn sem einn ferskasti
rappari dagsins í dag. Miðað við við-
tökurnar virðast Íslendingar alla-
vega vita hver hann er.“
Auk Young Thug koma fram á
tónleikunum breskir tónlistarmenn
sem kalla sig Krept & Konan. „Þeir
hafa verið að gera það mjög gott í
Bretlandi og eru mjög vinsælir þar.
Ég var búsettur í Bretlandi svo lengi
og kynnti mér bresku grime-senuna
vel. Okkur fannst tilvalið að kynna
Íslendinga fyrir hinni hliðinni,“ segir
Róbert. „Svo erum við náttúrlega
með rjómann af íslensku rappsen-
unni. Artistarnir hafa verið að frum-
flytja ný lög hjá okkur svo fólk má
búast við því að sjá eitthvað nýtt og
spennandi.“ Íslensku listamennirnir
sem fram koma á hátíðinni eru
Emmsjé Gauti, Aron Can, Alvia Is-
landia, Úlfur Úlfur, Gísli Pálmi,
Sturla Atlas, Herra Hnetusmjör,
Birnir, Alexander Jarl, B – Ruff,
Egill Spegill, Karitas og GKR.
Annar tíðarandi
Aðspurður hvort miðasala hafi
gengið vel segir Róbert að það séu
auðvitað margir viðburðir í boði yfir
sumarið en salan hafi þó gengið vel
og allir séu spenntir. „Þetta er ágæt-
is innspýting í byrjun júlí, sumarið
er loks að detta inn og þá kemur allt-
af önnur stemning í landsmenn.“
Blaðamaður hefur orð á því að það
megi allavega vona að sumarið sé að
detta inn, en þá bendir Róbert á að
Kronik Live sé haldið innandyra svo
veðrið muni ekki koma til með að
hafa nein áhrif.
Eins og áður segir byrjaði Róbert
aftur með útvarpsþáttinn Kronik
fyrir skömmu eftir 10 ára langa
pásu. Róbert segir margt hafa
breyst í íslensku rappsenunni. „Ég
finn fyrir meiri meðbyr frá senunni
og svo er verið að gefa út mikið af
góðu efni sem var kannski ekki
raunin á sínum tíma. Ekki það að
það hafi verið lélegt en framboðið
var ekki eins mikið. Tíðarandinn hef-
ur líka breyst og það sést hvað best
á því að stærstu rappnöfnin eru að
spila á öllum stóru hátíðunum og nú
heyrast rapplög á Bylgjunni og öðr-
um útvarpsstöðvum en ekki bara í
einhverjum sérþáttum.“
Í átt að sjónvarpsútvarpi
Jafnframt segir Róbert þá Bene-
dikt Frey Jónsson, eða Benna B-
Ruff, meðstjórnanda hans, ekki hafa
undan við að fá listamenn í þáttinn.
„Við erum bókaðir langt fram í tím-
ann. Það er verið að gefa út nýtt efni
í hverri einustu viku sem er frá-
bært.“
Þeir félagar eru einnig með þá
nýjung að þeir taka upp myndbönd
af því þegar listamenn eru í heim-
sókn í þáttunum sem fara svo inn á
vefsíðuna ske.is og á Vísi. „Þau hafa
verið að fá frábærar viðtökur. Við
erum að færa okkur meira í áttina að
sjónvarpsútvarpi, svo er auðvitað
alltaf hægt að hlusta á þættina í
heild sinni eftir á.“
Að lokum vill Róbert benda á að
húsið verði opnað klukkan 18 og að
dagskráin sé þétt alveg til klukkan 2
eftir miðnætti. Hann segir viðskipta-
vini Aurs fá tvo miða á verði eins á
hátíðina. „Það er um að gera fyrir þá
sem ekki eru búnir að ná sér í Aur-
appið og ekki komnir með miða að
hjóla í það. Sjáumst í stuði á föstu-
daginn!“
Vatt óvænt upp á sig
Kronik Live í Laugardalshöll Young Thug, Krept &
Konan og rjómi íslensku rappsenunnar koma fram
Rjóminn Robbi Kronik ásamt mörgum af þekktustu röppurum landsins.
Ferskur Róbert segir Young Thug vera ferskasta rappara dagsins í dag.
SÝND KL. 5, 8, 10. 40
SÝND KL. 10.20
SÝND KL. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL.
TAL
SÝND KL. 2
ÍSL. 2D KL. 2, 4, 6
ÍSL. 3D 2, 4
ENSK. 2D KL. 6, 8, 10
Hver er Þinn uppÁHalDs Djæf?
EK
TA
ÍSLENSKUR
FRÁ EMMES
SÍ
S