Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
M ikil spenna hefur verið í körfuboltanumþað sem af er vetri og hafa liðin af Suð-urnesjunum staðið sig vel eins og við var
að búast. Um helgina fara fram leikir bæði í
Intersport-deild karla og í 1. deild kvenna.
KEFLAVÍK-BREIÐABLIK
Keflavíkurliðið tapaði óvænt fyrir ÍR á útivelli í síð-
ustu umferð. Guðjón þjálfari kenndi slakri vörn
sinna manna um ósigurinn og sagði að slíkt þyrfti
að laga fyrir næstu leiki. Hann ásamt hinum þjálfara
Keflavíkur, Fali Harðarsyni, ætla sér að fara ræki-
lega yfir ÍR leikinn til að koma í veg fyrir aðra eins
frammistöðu.
Á pappírnum ætti Keflavík ekki að eiga í erfiðleik-
um með Breiðablik, sem hafa tapað fyrstu tveimur
leikjum sínum í deildinni, en allt getur gerst í körf-
unni eins og hefur svo oft komið í ljós og góð mæt-
ing stuðningsmanna Keflavíkur á leikinn ætti að
tryggja hagstæð úrslit.
ÞÓR ÞORL.-NJARÐVÍK
Leikur Njarðvíkur gegn nýliðum Þórs ætti að vera
mjög athyglisverður þar sem heimamenn hafa unn-
ið fyrstu tvo leiki sína í deildinni og virðast til alls
líklegir. Njarðvíkingar koma hins vegar til leiks með
sjálfstraustið í lagi eftir að hafa borið sigurorð af
KR í skemmtilegum leik um síðustu helgi. Sá leikur
kom eftir tap gegn Grindavík í tvíframlengdum leik
í fyrstu umferð. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð-
víkur á von á hörkuleik enda hafa gestgjafarnir sýnt
hvers þeir eru megnugir og stimplað sig inn í deild-
ina með krafti.
GRINDAVÍK-KFÍ
Grindvíkingar hljóta að teljast sigurstranglegri fyrir
þennan leik þar sem þeir hafa unnið báða sína leiki
en Ísfirðingar aftur á móti tapað sínum fyrstu leikj-
um sem voru báðir á heimavelli. Ekkert lið sækir
auðveldan sigur til Grindavíkur og eru gestirnir lítt
öfundsverðir af þrautinni sem er framundan. Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur varar þó við
því að líta á KFÍ sem auðvelda bráð, enda eru þeir
að fá til sín júgóslavneskan leikmann sem spilar
sinn fyrsta leik gegn UMFG á laugardaginn. Friðrik
segir að sínir menn séu tilbúnir í hörkuleik þar sem
markmiðið sé að sækja tvö mikilvæg stig í jafnri og
spennandi deild.
NJARÐVÍK-KEFLAVÍK
Leikurinn fer fram á mánudaginn 27. okt í Njarðvík
og þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu
mikilvægur þessi leikur er fyrir liðin og ekki síður
fyrir stuðningsmenn liðanna. Í áraraðir hafa þessi
lið borið af öðrum og nær einokað Íslandsmeistara-
titilinn síðan árið 1981, en síðan þá hafa önnur lið
einungis unnið 5 sinnum!
Viðureignir liðanna hafa yfirleitt boðið upp á taum-
lausa skemmtun og spennu og er ekki óvarlegt að
gefa sér að Íþróttamiðstöðin í Njarðvík eigi eftir að
leika á reiðiskjálfi á mánudagskvöld!
1. deild kvenna
Á laugardaginn fer fram 4. umferð 1. deildar kven-
na í Körfuknattleik og verða þar margir spennandi
leikir.
Keflavík fær ÍS í heimsókn en liðin eru jöfn að stig-
um þar sem þau hafa bæði unnið tvo leiki og tapað
einum það sem af er deild. Keflavík tapaði fyrir KR
í síðustu umferð þar sem þær áttu slakan leik en þær
verða sjálfsagt komnar yfir þau vonbrigði og taka á
móti Stúdínum af fullum krafti. Leikurinn hefst kl.
17:15.
Grindavík sækir ÍR heim í leik sem ætti að verða at-
hyglisverður þar sem ÍR hefur tapað síðustu tveimur
leikjum gegn hinum Suðurnesjaliðunum. Veiki
hlekkurinn í liði Grindavíkur er skortur á hávöxnum
leikmönnum sem kemur sér illa á móti liði eins og
ÍR sem hefur sterka leikmenn innanborðs sem taka
mikið af fráköstum, sérstaklega Eplunus Brooks,
sem er mjög sterk undir körfunni. Baráttan og vörn-
in hefur hins vegar verið góð hjá Grindavík í síðustu
tveimur leikjum þannig að þær eru til alls líklegar.
Að lokum mætir Njarðvík KR-stúlkum á útivelli.
Njarðvík hefur spilað vel á köflum í haust og mæta
eflaust reiðubúnar til leiks en KR hefur átt misgóðu
gengi að fagna í upphafi deildar. Eftir að hafa misst
lykilmenn úr liðinu fyrir leiktíðina töpuðu þær
fyrstu tveimur leikjunum en komu svo sterkar inn
gegn Keflavík þar sem þær lögðu meistarana að
velli. Þannig má segja að erfitt sé að spá fyrir um
úrslit en þó má lofa hörkuleik.
Á föstudag fara fram leikir í 3. umferð Intersport-deildarinnar þar sem Grindavík tekur á móti KFÍ, Keflavík
á móti Breiðablik og Njarðvík sækir Þór frá Þorlákshöfn heim. Allir leikirnir hefjast kl. 19:15
Spenna
í upphafi körfuvertíðar
FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1
Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð.
Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með.
Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna.
Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík
VF 43. tbl. 2003 hbb loka 22.10.2003 14:24 Page 26