Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ V A R N A R S T Ö Ð I N Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I :
➤ AT V I N N U U P P B Y G G I N G :
Tíð barnslát á Keflavíkurflug-
velli vekja upp spurningar
Ádögunum voru fulltrúar japönsku fyrir-tækjanna Japan Capacitor Industrial ogNippon Light Metal hér á landi að skoða
hugsanlega staði fyrir álþynnuverksmiðju sem
fyrirtækin hafa áform um að reisa í sameiningu.
Meðal þeirra staða sem fulltrúar fyrirtækjanna
skoðuðu var Helguvík, en einnig var skoðuð að-
staða í Straumsvík og Rangárvöllum við Akur-
eyri.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta mun ákvörðun
fyrirtækjanna liggja fyrir um áramót, en einnig er
verið að skoða möguleika á byggingu verksmiðj-
unnar í Kína.
Talið er að stofnkostnaður við að reisa verksmiðju
af þessu tagi sé fjórir til fimm milljarðar og er orku-
þörf miðað við full afköst um 45 MW. Undir starf-
semina þyrfti 60 þúsund fermetra lóð og er talið að
við verksmiðjuna muni starfa á milli 50 til 60
manns.
Álþynnur sem framleiddar eru í slíkri verksmiðju
eru notaðar í svokallaða rafeindaþétta sem eru í öll-
um rafmagnsvörum. Álþynnurnar eru svipaðar við-
komu og álpappír, en nokkuð þykkari og verða þær
fluttar úr landi til Kína eða Japan til frekari vinnslu
verði af áformum um byggingu slíkrar verksmiðju
hér á landi.
Frá því í febrúar á þessuári hafa fimm börnvarnarliðsmanna látist í
móðurkviði eða strax eftir fyr-
irtímafæðingu. Eitt barnið
fæddist fyrir tímann eftir að-
eins 23 vikna meðgöngu, tvö
létust í móðurkviði eftir 25 og
32 vikna meðgöngu og tvíbur-
ar fæddust 12 vikum fyrir tím-
ann og létust á spítala í Reykja-
vík. Læknar sem Víkurfréttir
hafa rætt við segja að tíðni fyr-
irburafæðinga innan Varnar-
liðsins undanfarið sé mikið
áhyggjuefni og tilefni til frekari
rannsókna. Í yfirlýsingu frá
Varnarliðinu vegna fréttarinn-
ar segir að þetta séu ekki talin
óeðlilega mörg tilvik af þessu
tagi
Atli Dagbjartsson yf irlæknir
vökudeildar Landspítala Há-
skólasjúkrahúss staðfesti í sam-
tali við Víkurfréttir að börnin
þrjú hafi öll fæðst á 23. til 27.
viku meðgöngu, en eðlilegur
meðgöngutími er 38 til 42 vikur.
Atli segir að 12 til 15 fyrirbura-
fæðingar barna sem vega minna
en 1000 grömm við fæðingu, en
sú fæðingarþyngd svarar til 28
vikna meðgöngu, eigi sér stað á
Íslandi á ári. Það er um 0,3%
fæðinga, en fæðingar á Íslandi
eru alls um 4.400 á ári. „Börn
sem fæðast fyrir 38. viku með-
göngu eru fyrirburar og 5% fæð-
inga eru fyrir þann tíma. Litlar
sem engar líkur eru á að barn
sem fæðist fyrir 24. viku lifi og
eru lífsmöguleikamörk fyrirbura
eftir fullgengnar 24 vikur,” segir
Atli. Í yfirlýsingu frá Varnarlið-
inu segir að fyrirburafæðingar
séu ekki óalgengar og að líkur
séu ávallt háar á fyrirburafæðing-
um tvíbura. „Hlutfall látinna
barna í móðurkviði í þessu tilviki
er einungis 0,64% miðað við 1-
2% sem er meðaltal í Bandaríkj-
unum. Meðgöngur og fæðingar
hjá Varnarliðinu eru að jafnaði
um 80 á ári,” segir í yfirlýsing-
unni.
Atli segir að miklar vangaveltur
séu um það hvað komi af stað
fyrirburafæðingu. „Ýmsir þekktir
þættir koma til eins og t.d. að
legvatnið fer og það er einstöku
sinnum þekkt að fæðing fari af
stað við slys eða áföll. Á síðustu
tveimur áratugum hafa læknar
hinsvegar farið að beina sjónum
sínum að sýkingum á meðan á
meðgöngu stendur. Menn telja
nú að þeim fyrirburafæðingum
sem engin skýring finnst á fari
mjög fækkandi og á sama tíma
eykst vitneskja um að sýkingar
valdi fyrirburafæðingum. Sýk-
ingin fer upp í leghálsinn og í
vefjunum verða efnabreytingar
sem losna úr læðingi og við það
linast vefurinn og leghálsinn gef-
ur sig og fæðing fer af stað.”
Um 25% íslenskra kvenna hafa
sýkingu í leggöngum sem or-
sakast af bakteríutegundinni
hemólýtískum streptókokkum af
flokki B, en í Læknablaðinu var
nýlega skrifuð grein um rann-
sókn sem greindi frá þessum nið-
urstöðum. Atli segir að um 1% af
börnum kvenna sem ganga með
sýkinguna veikist alvarlega af
völdum bakteríunnar. „Um það
bil einu sinni á ári fáum við börn
með sýkinguna sem veikjast á
fyrsta sólarhring og er það jafnan
mjög erfitt viðfangs. Í sumum
nágrannalöndum er leitað að
þessari bakteríu á meðgöngu og
konunum gefið sýklalyf í fæð-
ingu til að komast hjá sýkingu í
litla barninu. Í athugun er að gera
slíkt hið sama hér á Íslandi.”
Læknar sem Víkurfréttir hafa
rætt við segja að um ákveðinn
topp geti verið að ræða í þessum
tilfellum innan Varnarliðsins.
-fimm börn varnarliðsmanna hafa látist í móðurkviði eða í fæðingu frá því í
febrúar á þessu ári. Áhyggjuefni og tilefni til frekari rannsókna segja læknar.
Kostnaður við byggingu álþynnu-
verksmiðju 4 til 5 milljarðar króna
- Helguvík einn af þremur mögulegum byggingarstöðum á Íslandi
Frá Keflavíkurflugvelli. Mynd: Mats
VF 43. tbl. 2003 hbb loka 22.10.2003 15:20 Page 2