Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 14
Íþar síðustu viku var blaða-viðtal í Víkurfréttum viðformann Útvegsmannafé- lags Suðurnesja, Þorstein Er- lingsson, bæjarfulltrúa Sjálf- stæðismanna í Reykjanesbæ. Höfundur fylltist bjartsýni eft- ir lestur viðtalsins því nú mátti ætla að ljós væri í myrkrinu til að hefja útgerð á vitrænum grunni. Eftir að hafa skundað á milli skipamiðlara sem bæði buðu báta með kvóta eða án kom í ljós við nánari skoðun að allt sat við það sama og verið hefur síðustu árin. Báturinn klár ef veðsetningar á eigur kaupanda væru nægilega tryggar og uppáskriftir ábyrgðaraðila fyrir því sem upp á vantaði. Þegar farið var ofan í saumana á því sem sölu- maðurinn bauð og spurt hver væri arðsemi fjárfestinganna fyrir umstangið við sjóinn og með hliðsjón af skuldsetning- unni, varð minna um svör. Vegna þessa óskar höfundur eftir raunhæfri rekstraáætlun hefðbundins vertíðarbáts (dag- róðrabáts) sem hægt væri að styðjast við svo ungir menn jafnt og aðrir kaupendur gætu séð hvort hægt væri að hefja sjálfbæra útgerð í þessu marg- rómaða kvótakerfi. Línuívilnun eða peningaívilnun? Línuívilnun er hugsuð út á líkan hátt og línutvöföldunin var hér áður, þ.e.a.s. útgerðir fengu upp- bót á úthlutaðan veiddan afla á línu og í því sambandi oft talað um tonn á móti tonni. Línu- tvöföldunin gaf líka af sér árvisst uppgrip í landi og ekki síst fyrir beitningarmenn. En svo fer oft fyrir góðum hugmyndum að þær eiga það til hverfa ofan í svelg skyndigróðahyggju og verða að engu. Og áður en nokkur uggði að sér var línutvöföldunin komin á boðstólana sem ný veisluhöld fyrir kvótagreifana. Nú óttast stórútgerðarmenn að línuívilnun- in til smábátaútgerðanna verði til þess að smábátaútgerðarmenn fái að búa sér til reynslu innan þess kerfis sem síðar muni hljóta sömu örlög og línutvöföldunin forðum daga. Margur heldur mig sig. Ríkisstjórnin er tvístíg- andi í málinu að efna þetta kosn- ingaloforð. Hvað er að í íslenskum sjávarútvegi? Íslenski fiskiskipaflotinn er mjög stór og afkastamikill í dag. Því er skiljanlegt upp að ákveðnu marki að skuldir útgerða séu verulegar, en hvað varð um þá hagræðingu og innstreymi sem kvótakerfið átti að gefa af sér? Gróðahyggj- an á sér nefnilega margar systur. Þessar miklu umframskuldir eru tilkomnar vegna fjármögnunar kvótabraskkerfisins að stórum hluta og til að greiða fyrri eig- endum út í hönd þau ímynduðu verðmæti sem þeim var úthlutað vegna veiðireynslu sinnar við fiskveiðar 3 síðustu árin á undan kvótakerfinu. Og oftast voru það stórútgerðirn- ar sem keyptu þessa ímynd, kvót- ann og sitja nú eftir með skuld- irnar á bakinu. Talið er að ein- staklingar og einkahlutafélög tengd þeim séu búin að selja sig út úr greininni fyrir allt að 50 þúsund milljónir. Skipastóllinn hefur aldrei verið stærri og óum- hverfisvænni vegna aukinnar notkunar á togveiðarfærum og eyða því meiri olíu á per kg. af fiski en áður þegar strandveiði- flotinn var við lýði. Fiskistofn- arnir hafa ekki áður verið í svo langvarandi lægð eins og nú og sjá má dæmi um í skýrslum Haf- rannsóknarstofnunar. Vaknar því sú spurning hvort skipin séu orðin of stór og afkastamikil og raski lífríkinu svo verulega að náttúran hafi ekki undan að end- urnýja sig eða hafi ekki getu til þess vegna eyðileggingarinnar á hafsbotninum sem botnvörpurnar valda? Um eignarhaldsrétt útgerðar- félaga á kvóta. Lög nr. 38 1990 1. gr. „Nytja- stofnar á Íslandsmiðum eru sam- eign íslensku þjóðarinnar. Mark- mið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eign- arrétt eða óafturkallanlegt for- ræði einstakra aðila yfir veiði- heimildum.” Staðreyndin er að kvóta er úthlut- að af breytilegum forsendum frá ári til árs til útgerðaraðila. Út- hlutun fiskikvóta hefur alltaf ver- ið í höndum sjávarútvegsráð- herra, með hliðsjón af ráðlegg- ingum Hafrannsóknarstofnunar, og hefur aldrei leikið vafi á um rétt hans til þeirra aðgerða. Um- ræða um eignarhald er því út úr kortinu því stöðug afskipti sam- félagsins af þessum verðmætum er til staðar. Því getur hefðarrétt- ur aldrei myndast um kvóta. Í ofangreindu viðtali segir Þor- steinn: „Við útgerðarmenn höf- um í gegnum árin tekið á okkur skerðingu til að byggja upp fiski- stofnana og njóta þess. Það er búið að taka af okkur útgerðar- mönnum 26% af þorskkvótanum frá því að kvótakerfið var fyrst sett á.” Maður sem hefur fengið úthlutað þeirri sérstöðu að afla 10 tonna fyrir samfélagið og fær úthlutað eitt árið 9 tonnum hefur ekki orð- ið fyrir skerðingu á verðmætum heldur tekist á við þann áhættu- hluta sem alltaf hefur fylgt sjáv- arútvegi t.d. minnkandi fisk- gengd við landið. Þetta er jafn innbyggt í sjávarútveginn og and- rúmsloftið er umhverfi okkar. Sá sami hefur ekki heldur hlotnast happdrættisvinningur þegar árið þar á eftir færir honum til verks að afla 11 tonna í formi kvóta fyrir samfélagið. Tilkall til þessa viðauka er ekkert frekar hans en samfélagsins því yfirráðin yfir auðlindinni kemur frá þeim sem úthlutar í nafni þjóðarinnar og er kosinn til þess af almenningi. Ég held við höfum eytt alltof miklum krafti og tíma í baráttuna um það hver á að veiða og hver telji sig kvótann eiga. Eins og segir hér að ofan í 1 grein laga um stjórn fiskveiða er kvótinn eign þjóðarinnar og þannig hefur það verið síðan þetta kerfi kom á og svo skal vera um auðlind okk- ar alla tíð. Byggðarsjónarmið og al- mannaheill. Það er ekki vel ígrundað hjá hæstvirtum sjávarútvegsráðherra sem segir að það komi vel til greina að heimamenn kaupi út- gerðirnar aftur, vegna þess að þegar kvótakerfið var sett á fengu útgerðirnar þennan kvóta til afnota fyrir óverulegt gjald en ekki til eignar. Þess vegna er ekki hægt að selja það sem menn hafa aldrei eignast þ.e.a.s. veiði- heimildirnar. Þau kaup hins veg- ar manna á milli í gegnum tíðina á þessum ímyndum verðmæta í kvótalíkingu, varðar okkur sam- félaginu ekkert um. Þeir gerðu þessi viðskipti sín á milli, án samráðs við þjóðfélagið, gegn vilja settra laga og því alfarið á þeirra ábyrgð. Þar sem við erum veiðisamfélag er byggðastefna í raun sú leið til að viðhalda og auka velferð okk- ar hér á landi. Til þess að mögu- legt sé að fylgja því eftir verða íbúar byggðarlaganna að njóta þeirra auðlinda sem þeim standa næst. Ekki hvað síst á ég hér við um byggðarlögin við sjávarsíð- una. Það ljós í myrkrinu sem ég sé hvað skærast fyrir samfélagið og hinar dreifðu byggðir er að byrja á sóknardagakerfi með veiðar- færastýringu sem allra fyrst á smæstu skipunum, þeim sem eru með kyrrstæð veiðarfæri (hér er átt við smábátaflotann og stærri dagróðrabáta). Úthlutaðir sókn- ardagar bátanna verða að vera með öllu óseljanlegir. Ég tel þetta vera fyrstu aðgerð til að komast út úr kvótabraskkerfinu. Þá færi strax að færast líf í hafnir og bryggjur landsins. Baldvin Nielsen Reykjanesbæ. 14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ Þ O R S T E I N I E R L I N G S S Y N I S VA R A Ð Er nú borð fyrir báru að hefja útgerð? VF 43. tbl. 2003 hbb loka 22.10.2003 13:50 Page 14

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.