Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
S iðfræðingurinn DietrichBonhoeffer var fanginasista á stríðsárunum
og síðan tekinn af líf i í lok
stríðsins. Í einni bóka sinna,
sem hann skrifaði í fangelsinu
spyr hann eftirfarandi spurn-
ingar: „Hver er ég? Þeir segja
oft við mig að ég komi út úr
fagnaklefanum, rólegur, glaður
og styrkur, eins og aðalsmaður
sem gengur út úr höll sinni. Er
ég í raun og veru það sem aðrir
segja mig vera. Eða er ég það
sem ég veit um sjálfan mig?:
Órólegur, fullur eftirvæntingar,
eins og sjúkur fugl í búri. Hver
er ég? Þessi eða hinn? Er ég
einn í dag og annar á morgun,
eða þeir báðir til samans?” Síð-
an segir hann: „Þú þekkir mig,
ó Guð, ég er þinn”. Það er al-
veg ljóst að Bonhoeffer hefði
ekki geta staðið gegn nasistun-
um ef hann hefði ekki átt trúna
á Guð.
Fólk lendir í kreppu í lífinu við
slys og ástvinamissi. Trúin á Guð
hjálpar okkur að standast slík
áföll. Þegar kútter Ingvar fórst
árið 1921 horfði fjöldi fólks á
sjómennina farast. Þetta var eins
og Neyðarlínan (Rescue 911) í
beinni útsendingu og atburður
greipti sig vitund fólksins.
Þegar á reynir í lífinu spyr fólk
um sjálfsímynd sína: Hver ég ég?
Sérhver maður mætir fyrr eða
síðar þessari spurningu. Hún leit-
ar á í sambandi við áhugamál
okkar og markmið í líf inu.
Staða og hlutverk gefur til kynna
hvað við erum í augum annarra.
Hjá hinum fullorðnu eru þau at-
riði komin á hreint, en ekki hjá
unglingum. Það er því brýnt að
læra að þekkja sjálfan sig og það
gerist í samskiptum við aðra.
Þannig styrkjum við sjálfsímynd-
ina.
Það er reyndar hægt að beita
ýmsum aðferðum til þess að
komast að raun um hver við
erum. Við getum íhugað það út
frá líffræðilegu, lögfræðilegu,
sálfræðilegu, félagslegu og trúar-
legu sjónarmiði. Hvert þessara
sviða felur í sér sannindi, enda
þótt það sé ekki allur sannleikur-
inn um okkur sjálf.
Dr. Sigurlína Davíðsdóttir, lektor
við Háskóla Íslands, mun flytja
fyrirlestur í Kirkjulundi n.k.
laugardag, 25. okt. frá kl. 10 árd.
til kl. 12. Kaffisopi verður í boði
kl. 11-11:15 og síðan verður boð-
ið upp á léttan hádegisverð í há-
deginu á vægu verði, 300 kr. Dr.
Sigurlína mun fjalla um hvað
verður um sjálfsímyndina í áföll-
um og sorg. - Allir eru velkomn-
ir.
Í slandsmótið í Boccia, ein-staklingskeppni var haldið íLaugardalshöll helgina 10.
-11. október sl. Íþróttafélag
NES, félag fatlaðra á Suður-
nesjum sendi alls 26 keppend-
ur til leiks og var keppt í sjö
deildum ásamt rennuflokki.
Alls voru á þriðja hundrað
keppendur á mótinu.
Í sjöundu deild komst Arngrímur
Arnarsson í úrslit og endaði þar í
fjórða sæti.
Í sjöttu deild komst Gestur Þor-
steinsson í úrslit og gerði sér lítið
fyrir og sigraði.
Í fimmtu deild komst Margeir St.
Karlsson í úrslit og náði þriðja
sætinu.
Í þriðju deild komst Konráð
Ragnarsson í úrslit og endaði í 4.
sæti.
Í annarri deild komust Sigríður
Ásgeirsdóttir, Vilhjálmur Þór
Jónsson og Guðný Óskarsdóttir í
úrslit. Sigríður náði öðru sætinu,
Vilhjálmur fjórða sæti og Guðný
fimmta sæti.
Þess má geta að í hverri deild eru
fimm riðlar og kemst sigurvegari
í hverjum riðli í úrslit. Þetta var
mikið og stórt mót og er gaman
að taka þátt og voru keppendur
frá NES til sóma eins og ávallt
innan vallar sem utan. Að vera
með er takmarkið og að komast
í úrslit er plúsinn því þá flyst ein-
staklingurinn í næstu deild fyrir
ofan.
Kveðja, stjórn NES.
➤ K E F L AV Í K U R K I R K J A
Hvað verður um sjálfs-
ímyndina í áföllum og sorg?
Íþrottafélagið NES með átta í
úrslitum, þrír á verðlaunapall
Gestur Þorsteinsson Íslandsmeistari í 6. deild
Íslandsmótið í Boccia einstaklingskeppni:
Stafnes KE selt til
Grindavíkur
Þorbjörn Fiskanes í Grindavík
hefur keypt fyrirtækin Ugga
ehf. og Fiskverkun Hilmars og
Odds ehf. í Keflavík en fyrir-
tækin eiga bátinn Stafnes KE,
197 tonna stálbát sem smíðað-
ur var í Hollandi árið 1965. Í
tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands segir að stefnt sé að
samruna félaganna um næstu
áramót.
Sandgerði fær tæp
93 tonn í byggða-
kvóta
Sandgerðisbær fær úthlutað
tæpum 93 tonnum í byggða-
kvóta frá Sjávarútvegsráðu-
neytinu á þessu fiskveiðiári en
alls voru 1.500 tonn til úthlut-
unar á yfirstandandi fiskveiði-
ári. Gerðahreppur fær úthlutað
tæpum 17 tonnum í byggða-
kvóta, en Gerðahreppur og
Sandgerðisbær eru einu sveit-
arfélögin á Suðurnesjum sem
fá úthlutað slíkum kvóta.
Þingeyri fær úthlutað tæpum
119 tonnum og það er mesta
úthlutunin að þessu sinni, en
Sandgerðisbær fær næstmesta
úthlutun.
VF 43. tbl. 2003 hbb 22.10.2003 12:50 Page 10