Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 26
Vegna skrifa Karlsins ísíðustu viku tel ég migknúinn til að svara hon- um um það sem hann skrifar um Samfylking- una þar. Sýnist mér á þeim að Karlinn virðist ekki fylgjast mikið með því sem fólk ræðir hér í bæ og í bæjarstjórn. Þeg- ar fréttin um að listaverk Árna Johnsen væru komin í geymslu hjá Reykjanesbæ vegna fyrir- hugaðrar sýningar á þeim, tel ég að margir bæjarbúar hafi spurt sig spurningarinnar; Hvað er nú í gangi? Er Reykjanesbær að borga leigu undir einn frægasta fanga landsins? Það er ekki af mannvonsku sem bæjarfulltrú- ar Samfylkingarinnar grennsl- ast fyrir um málið og gagn- rýna. Er það ekki hlutverk bæjarfulltrúa að kanna hvað er um að vera þegar engin um- ræða um mál sem vekja svona athygli hefur farið fram í stjórnkerfi bæjarins. Þetta eru nú engin venjuleg lista- verk sem eru geymd, í plássi sem ætlað er Íslending. Hér er um að ræða verk á fimm vörubílspöll- um sem komu með listaverk Árna í geymslu bæjarins. Venju- legur fangi kemur nú bara með plastpokann undir hendinni og í pokanum eru kannski nokkrar skissur eða myndir á blöðum. Karlinn talar um að bæjarfulltrú- ar Samfylkingarinnar geri sig að bjánum í þessari umræðu. Ég spyr var undirritaður bæjarfull- trúi að gera sig að bjána með að spyrja eftir farandi spurninga á bæjarstjórnarfundi: 1. Stendur til að Reykjanesbær borgi leigu vegna geymslu lista verkanna? 2. Tekur Reykjanesbær þátt í kostnaði vegna flutnings þeirra hingað? 3. Hvenær og hvar var ákvörðun tekin um þessa sýningu. 4. Hver er kostnaður bæjarins við sýninguna? Dæmi nú hver fyrir sig, bjánar eða ekki bjánar, að vilja gegna skyldum sínum og fá svör? Ekki bjáni segir ég og vil ég þakka þeim fjölda bæjarbúa sem hafa haft sambandi við mig og þakkað mér fyrir að taka þetta mál upp. Mér sýnist eitt vera nokkuð víst, Karlinn er ekki að fylgjast með hvað gerist og rætt er, í bæjar- stjórn Reykjanesbæjar? Hann segir að bæjarstjórnarmenn eigi að skammast sín og eyða tíman- um heldur í að ræða stöðu Varn- arliðsins. Vil ég benda honum á að bæjarfulltrúar Samfylkingar- innar lögðum í sumar fram til- lögu, um fund með fulltrúum rík- isina um stöðu og málefni Varn- arliðsins. Á þessum tíma töldu fulltrúar ríkisvaldsins ekki tíma- bært að halda slíkan fund. 4. nóvember, lagði svo öll bæjar- stjórnin fram bókun um málefni varnarliðsins, þar sem óskað var eftir fundi með ráðamönnum þjóðarinnar og þá hafði stjórn SS gert hliðstæða bókun 30.októ- ber. Ekki hefur þessi fundur enn verið haldinn. Ekki ætla ég að telja upp allt hér sem Samfylkingin hefur tekið fyrir í bæjarstjórn en eitt vil ég þó benda þér á sem þú hefur ekki fjallað um í skrifum þínum. Það er málið um holræsaskattinn, sem Reykjanesbæar var nú á dögum dæmdur til að greiða til baka. Við Samfylkingarmenn vöruðum við að þessi leið væri farinn, en það var ekki hlustað á þau rök. Fór því sem fór. Enn eitt get ég tekið undir í skrif- um Karlsins um Samfylkingar- menn í síðustu viku, en þar veitir hann Jóni Gunnarsson hrós. Minni ég þig á að þú hvattir í síð- ustu þingkostningum menn til að kjósa annað en Samfylking- una, í von um að koma Suður- nesjamanni á þing. Einnig sagð- irðu að Jón ætti ekki möguleika á að komast inn, en þetta kannski sýnir hvað þú ert lagt frá bæjar- búum. En kæri Karl, það er ekki við Samfylkinguna að sakast í þess- um málum sem þú telur upp, það erum jú ekki við sem erum hér í meirihluta og ekki í ríkisstjórn? Ég tek heilshugar undir það með þér að ekki eru bjartar horfur hér í atvinnumálum og þurfum við að standa saman í að skapa at- vinnu hér fyrir þá sem hafa misst vinnuna og sjá fram á að missa hana vegna samdráttar hjá Varnarliðinu. Ólafur Thordersen bæjarfulltrúi Samfylkingar- innar í Reykjanesbæ 26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ B R É F T I L K A L L S I N S Á K A S S A N U M Er Karlinn á kassanum kominn ofan í kassann? HAFNARGÖTU 30 KEFLAVÍK S Í M I 4 2 1 4 0 67 VF 49. tbl.03/ 40pages 3.12.2003 14:38 Page 26

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.