Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 35
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 4. DESEMBER 2003 I 35
ÍRB sigraði í hinni árleguBæjarkeppni í sundi milliþeirra og Sundfélags
Hafnafjarðar sem fór fram síð-
astliðinn laugardag. Fyrirfram
var búist við harðri keppni
milli liðanna, sérstaklega vegna
þess að SH sigraði Aldurs-
flokkameistaramót Íslands síð-
asta sumar og var megin uppi-
staðan úr báðum liðum meðal
þátttakenda á því móti.
Strax í byrjun náðu liðsmenn
ÍRB, sem unnu frækinn sigur á
bikarmóti Íslands á dögunum,
góðri forystu og stóðu sig feiki-
lega vel. Flestir voru að bæta ár-
angur sinn og margir voru að
sigra keppendur SH sem voru
fyrirfram skráðir með betri tíma.
Þjálfarar ÍRB sögðu Víkurfrétt-
um að næsta verkefni yngri
sundmanna félagsins væri að
reyna við íslensk unglingamet
áður en árið er allt, og telja ekki
ólíklegt að krakkarnir hefðu
möguleika á að slá ein 6-8 met.
1. deild karla
Keflvíkingar hófu keppni í A
riðli ásamt ÍA, Fylki og Tinda-
stóli. Skemmst frá að segja áttu
Keflvíkingar góða innkomu og
unnu Fylki 3-1 og Tindastól 10-
2. Þeir töpuðu þó fyrir Skaga-
mönnum, sem unnu riðilinn en
Keflavík lenti í öðru sæti og
komust upp í 8-liða úrslit.
Mótherjar þeirra þar voru Valur,
og endaði sá leikur með sigri
Valsara 4-1. Valur hélt áfram upp
í úrslitin þar sem þeir töpuðu fyr-
ir Völsungi sem hömpuðu Ís-
landsmeistaratitlinum.
2.deild kvenna
Keflavíkurstúlkur sem voru í 2.
deildinni innanhúss settu markið
á að fara upp í fyrstu deild. Til að
það gengi eftir hefðu þær þurft
að vinna sinn riðil eða vera með
bestan árangur þeirra liða sem
höfnuðu í öðru sæti sinna riðla.
Það gekk hins vegar ekki eftir
þar sem Keflavík tapaði einum
leik, gerði tvö jafntefli og vann
aðeins einn leik. Þess vegna lenti
liðið aðeins í þriðja sæti riðilsins
á eftir HK/Víkingi og Ung-
mennafélagi Bessastaða, sem
kom mjög á óvart. Því þurfa þær
að bíða til næsta árs með að
komast upp í efstu deild.
Íslandsmótið í knattspyrnu innanhúss:
Síðustu helgi fór Íslandsmótið í innanhúsknattspyrnu fram.
Keflavík tefldi fram liðum í 1. deild karla og 2. deild kvenna.
Góð innkoma Keflavíkur
Góð frammi-
staða í Bæj-
arkeppni
ÍRB og SH
Um síðustu helgi varhaldið svokallað Kyujúdó-mót í Reykjavík.
Þar mættu til leiks vaskir Suð-
urnesjamenn sem æfa í Vogum
og unnu gull, silfur og brons í
drengjaflokkum.
Katrín Ösp Magnúsdóttir, 17
ára Vogamær, stal þó senunni,
en hún keppti í bæði -19 ára
og -66kg flokkum KARLA.
Hún glímdi fimm viðureignir
og hafnaði í 2. sæti í -19 ára
flokknum og í því þriðja í
karlaflokknum -66kg.
Hún átti ein flottustu tilþrif
mótsins þegar hún kastaði and-
stæðing á „drop” Seionagi og
fékk Wazari fyrir. Hún kláraði
svo viðureignina með glæsi-
legri hengingu „Ippon”!
Suðurnesjafólk
gerir það gott í Júdó
HAFNARGÖTU 30 KEFLAVÍK
S Í M I 4 2 1 4 0 67
VF 49. tbl.03/ 40pages 3.12.2003 12:40 Page 35