Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 2
➤ K E F L A V Í K U R F L U G V Ö L L U R Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum! Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 38-39 í Víkurfréttum í dag Fasteignasalan Ásberg, sími 421 1420 Norðurvellir 30, Keflavík. Mjög gott 186m2 parhús með 3-4 svefnh. parket og flísar á gólfum og bílskúr. Sólpallur og hitalögn í stéttum. 17.900.000.- Laust strax. Eignamiðlun Suðurnesja Sími 421 1700 Hraunholt 6, Garður. Mjög gott 132m2 einbýlishús ásamt 38m2 bílskúr. Nýtt parketlíki á stofu. Húsið nýmálað að utan. 12.500.000.- Fasteignasala G.Ó. sími 421 8111 Vatnsholt 16, Keflavík. Glæsilegt parhús um 102m2 ásamt bílskúr um 47m2. Góðar innréttingar, parket og flísar á gólfum.Góður sólpallur á bak- lóð. 16.500.000,- Fasteignasalan Stuðlaberg sími 420 4000 Brekkustígur 17, Njarðvík. Um 116m2 4 herb.íbúð á neðstu hæð í þríbýli. Nýlegt þakjárn og gluggar, endur- nýjaðar skolp- og ofnalagnir. 9.900.000.- stuttar f r é t t i r 2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Muggur GK70 fékkveiðarfærin í skrúfunasl. fimmtudag og ósk- uðu skipverjar eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Sigur- vonar í Sandgerði. Jóhann Jónsson skipverji á Muggi hafði þá reynt að skera sjálfur úr skrúfunni. „Ég fór í sjóinn í björgunargalla og reyndi að skera línuna úr skrúfunni, en það gekk ekki þannig að við kölluðum á björgunarsveitina. Það versta við þetta er að við erum með hálfa línuna í sjó,“ sagði Jóhann í samtali við Vík- urfréttir. Kafari frá björgunarsveitinni reyndi einnig að skera úr skrúfu bátsins, án árangurs og var bátur- inn því dreginn til hafnar í Sand- gerði. Björgunarbátur frá Sigur- von var í rúma fjórar klukku- stundir að draga bátinn til hafnar, en Muggur var staddur um 20 sjómílur norðvestur af Sandgerði þegar veiðarfærin fóru í skrúf- una. Í slenskir Aðalverktakarhafa reifað hugmyndir viðíslensk stjórnvöld um að hluti bygginga fyrirtækisins innan varnarsvæðisins á Kefla- víkurflugvelli verði notaðar undir gæsluvarðhaldsfangelsi og yfirstjórn sýslumanns- embættanna á Suðurnesjum. Stefán Friðfinnsson forstjóri Íslenskra Aðalverktaka stað- festi í samtali við Víkurfréttir að þessar hugmyndir væru upp á borðinu og hefðu verið nokk- uð lengi. „Við höfum kynnt þessar hugmyndir fyrir þremur dómsmálaráðherrum, en hug- myndir okkar hafa ekki hlotið hljómgrunn,“ segir Stefán, en fyrirtækið á töluvert af bygg- ingum á varnarsvæðinu. „Með- al þeirra bygginga sem fyrir- tækið á þarna er 96 herbergja hótel sem gæti nýst sem gæslu- varðhaldsfangelsi og byggingar sem gætu með breytingum hýst sýslumannsembættin og þjón- að hlutverki stjórnsýsluhúss.“ Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að teikningar hafi verið gerð- ar af stjórnsýsluhúsi og gæslu- varðhaldsfangelsi innan varnar- svæðisins og séu til skoðunar hjá ýmsum aðilum á Suðurnesjum. Aðilar sem Víkurfréttir ræddu við vegna málsins segja að 40 ný störf gætu skapast ef þessar hug- myndir yrðu að veruleika. Sjö starfsmönn- um ÍAV sagt upp í Helguvík S jö starfsmönnum Ís-lenskra Aðalverktakahjá olíubirgðastöðinni í Helguvík hefur verið sagt upp störfum, en fyrirtækið hættir starfsemi í olíu- birgðastöðinni frá og með 1. janúar í kjölfar útboðs sem nýlega fór fram. Olíufélagið Esso bauð lægra í útboði um vöktun á Helgu- víkursvæðinu og eldsneytisaf- greiðslu á Keflavíkurflugvelli, en Íslenskir Aðalverktakar buðu einnig í verkið. Árni Stefánsson starfsmannastjóri Íslenskra Aðalverktaka sagði í samtali við Víkurfréttir að það yrði skoðað hvort starfs- mennirnir fengju önnur störf hjá fyrirtækinu. Viðurkenndi innbrot í íbúðarhús K arlmaður innan viðtvítugt var handtek-inn í Reykjanesbæ í gær vegna gruns um inn- brot í Keflavík í fyrrinótt. Hann viðurkenndi að hafa brotist inn í húsið, en hús- ráðandi veitti honum eftir- för um nóttina. Þjófurinn komst þá undan en húsráð- andi gat lýst honum fyrir lögreglu. Þjófinum var sleppt eftir að hann viðurkenndi innbrotið fyrir lögreglu. Hann hafði tekið muni úr húsinu um nótt- ina en kastaði þeim frá sér þegar hann varð húsráðanda var. Þá kom í ljós innbrot í íbúðar- hús í Keflavík í gærdag, en eigendur hússins hafa verið að heiman síðustu daga. Um- sjónarmaður hússins greindi lögreglu frá innbrotinu í gær, en hann hafði ekki komið inn í húsið í sex daga. Innbrotið virðist hafa átt sér stað á þessu tímabili. Fjölmörgum hlutum var stolið úr húsinu. Þá var Chrysler-bifreið, sem var geymd í bílskúr, horfin. Númer hennar er EP-711 og eru þeir sem vita um bifreið- ina beðnir að hafa samband við lögreglu í Reykjanesbæ í síma 420-2450. Hugmyndir um gæsluvarðhaldsfangelsi og stjórnsýsluhús innan varnarsvæðisins -gæti skapað 40 ný störf á Suðurnesjum Með veiðarfæri í skrúfunni Muggur við komuna til hafnar í Sandgerði. VF 49. tbl.03/ 40pages 3.12.2003 9:54 Page 2

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.