Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 4. DESEMBER 2003 I 25
Nafn: Kristín Lea Henrýsdóttir
Aldur: 15 ára
Uppáhaldstala: 18
Stjörnumerki: Vatnsberi
Í hvaða skóla ertu?
Holtaskóla.
Ertu oft í Fjörheimum?
MM..jaá=)
Hvað ætlarðu að verða?
Eitthvað starf sem ég get komið
fram og skemmt mér við =)
Hvaða snyrtivörur notar þú?
Uhh...Kanebo, Christian Dior,
Bodyshop og aðrar góðar vörur.
Hjálparðu vinkonum þínum að
mála sig?
Já,ég hef oft verið beðin um
hjálp við förðun fyrir t.d böll
o.f.l.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Bara gaman. Para- og vinaballið
og svo styttist í Jólafríið=)
Uppáhaldshljómsveit?
Engin sérstök en hlusta aðallega
á rokk.
Hverjar eru uppáhalds vefsíð-
urnar þínar?
Ég er svo mikið nörd..ég kann
ekkert á tölvur:/.
Ef þú mættir vera fluga á vegg
í 25 mínútur - hvar myndirðu
vilja vera?
Örugglega einhverstaðar sem ég
ætti ekki að vera..hehe:)
Hvaða geisladisk keyptirðu síð-
ast?
Ég kaupi voða lítið af þeim
..maður skrifar þá bara..=)
Hvaða mynd sástu síðast í bíó?
Ahh ég man það ekki...
Á hvaða útvarpsstöð hlustarðu
mest?
Glaumrokk er geggjuð ...annars
er það X-ið!
Hver er uppáhalds leik-
kona/leikarinn þinn?
Johnny Depp...Mmmmmmm;)
Hvað myndirðu kaupa ef þú
ættir að eyða þúsundkalli?
Skella mér á Bónusvideo og leig-
ja spólu..annars bara beint í
baukinn:)
Hvaða fimm hluti gætirðu ekki
verið án?
Símans, nachos, Fjölskyldunnar
& kærastans!*
Eitt orð sem kemur upp í hug-
ann þegar þú heyrir eftirfar-
andi:
-Þorbjörn: Gamall kennari
-Varnarliðið: Krúnurakaðir Kan-
ar
-Michael Jackson: ..Á!
-Pepsi: Ask for it
-Víkurfréttir: Blaðið á eldhús-
borðinu
Í hvernig fötum heldurðu að
fólk gangi árið 2500?
Örugglega eftir eitthvað af
krökkunum sem voru á Stíl ...því
þetta voru engin smá dress hjá
þeim... annars snýst tískan bara í
hringi og sérstaklega í Keflavík=)
Kristín Lea Henrýsdóttir 15 ára nemandi í Holtaskóla vann fatahönnunarkeppni fé-lagsmiðstöðvarinnar Fjörheima á dögunum. Kristín Lea sá um hárgreiðslu, förðun,auk þess sem hún hannaði fötin sjálf. Kristín segist hafa mikinn áhuga á allskyns
sköpun, hvort sem er á leiklistar- eða hönnunarsviði. Kristín Lea tók einnig þátt Stílnum
2003 sem Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi, Samfés stóð fyrir sl. laugardag í Kópavogi. Í
keppninni var keppt í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun og stóð Kristín sig með mikilli
prýði.
VF-ljósm
ynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Vann fatahönnunarkeppni Fjör-
heima og tók þátt í Stílnum 2003
Unglingasíða VF
VF 49. tbl.03/ 40pages 3.12.2003 15:36 Page 25