Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 32

Víkurfréttir - 04.12.2003, Blaðsíða 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! NJARÐVÍK-KR Njarðvík vann góðan sigur á KR í Ljónagryfjunni, 99-83. Heimamenn voru yfir allan leik- inn og höfðu m.a. 11 stiga for- ystu 53-42 í leikhléi og unnu að lokum sanngjarnan sigur. Friðrik Ragnarsson var í skýjun- um eftir leikinn. „Ég var svolítið smeykur fyrir leikinn, en þetta var nú sennilega einhver besti leikur sem við höfum spilað í vetur. Allir voru að skila sínu, en það var gott að sjá Brenton koma svona sterkan inn eftir meiðslin, hann er verða góður af meiðslun- um og er að detta í sitt gamla form.” Brandon Woudstra var stigahæst- ur Njarðvíkinga með 31 stig en Brenton kom honum næstur með 24 stig og tók líka 8 fráköst. Stigahæstir KR voru Skarphéð- inn Ingason , sem skoraði 27 stig og Chris Woods, sem átti góðan leik með 23 stig, 18 fráköst og 7 stoðsendingar. REYNIR-VALUR Sandgerðingar komu skemmti- lega á óvart þegar þeir sigruðu 1. deildarlið Vals á heimavelli sín- um með 95 stigum gegn 90. Fáir bjuggust við slíku, en Reynis- menn komu greinilega einbeittir til leiks og stóðu þeirra menn sig með ágætum. Daði Bergþórsson, þjálfari Reynis, var mjög sáttur við leikinn. „Þetta gekk bara framar vonum. Við vorum yfir allan leikinn og vorum bara sterkari.” Daða grunaði að Vals- arar hefðu komið of sigurvissir til leiks en hans menn reyndust ekki auðveld bráð. „Það er óskandi að þessi leikur gefi fyrirheit um betra gengi í 2. deildinni, en það kemur bara í ljós.” Rúnar Pálsson og Hlynur Jóns- son voru stigahæstir Reynis- manna með 22 stig hvor, en Leif- ur Árnason skoraði 22 stig fyrir Val. GRINDAVÍK-BREIÐABLIK Grindavík sigraði Blikana á heimavelli sínum, 103-93, í mikl- um baráttuleik. Leikurinn var jafn mestallan tímann og fyrir síðasta leikhluta stóðu liðin jöfn 68-68. þá sýndu Grindvíkingar loks sitt rétta andlit og höfðu loks sigur. Friðrik Ingi var ekki alskostar sáttur við leik sinna manna. „Við spiluðum afar illa. Fyrri hálfleik- ur var alveg skelfilegur og það mátti ekki miklu muna að við værum slegnir út.” Darrel Lewis var stigahæstur Grindvíkinga með 31 stig og Trammel skoraði 20. Sérstakt ánægjuefni var að sjá Helga Jónas Guðfinnsson spila nær all- an leikinn og skora 19 stig, en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla undanfarið. Pálmi Sigurgeirsson var stiga- hæstur Blika með 28 stig. ÞRÓTTUR V.-KEFLAVÍK Keflavík vann Þrótt frá Vogum nokkuð auðveldlega eins og við var að búast. Lokastaðan í Íþróttahúsinu í Vogum var 136- 86 fyrir Keflavík. Björn Einarsson, spilandi þjálfari Þróttara, var sæmilega sáttur í leikslok. „Okkur gekk bara vel. Við skoruðum 86 stig á þá, en í vörninni gekk okkur ekki alveg eins vel. Keflavík er með það gott lið að það er ekki hægt að taka einhvern einn úr umferð því þá er bara einhver annar frír. En við skömmumst okkar ekkert fyrir þennan leik.” Falur hjá Keflavík sagði að leik- urinn hafi verið skylduverkefni. „Við komum í leikinn til að hafa gaman af honum. Við vorum ekkert að reyna að slá met í stiga- skorun eða að passa að þeir skor- uðu ekki ákveðið mikið. Þetta var bara skemmtun.” Stigahæstir Keflavíkur voru Nick Bradford, sem skoraði 22 stig og Magnús Þór sem skoraði 21 stig. Magnús hitti úr 6 3ja stiga skot- um. Guðjón Skúlason tók fram skóna að nýju og skoraði 11 stig. Örvar Sigurðsson skoraði 27 stig og Björn skoraði 25 stig fyrir Þrótt. KEFLAVÍK B-HK HK vann B-lið Keflavíkur 62-78. HK leiddi allan leikinn. Stiga- hæstir Kefl. B voru Sigurður Gunnarsson sem skoraði 19 stig og Sigurður Magnússon 12 stig. Hjá HK var Skúli Thorarensen stigahæstur með 23 stig. ÍG-HAUKAR ÍG átti ekki mikinn möguleika gegn úrvalsdeildarliði Hauka og töpuðu 50-109. Stigahæstir ÍG voru Davíð Frið- riksson sem skoraði 18 stig og Árni Björnsson sem skoraði 11 stig, en Sigurður Einarsson leiddi Hauka með 24 stig. 16-liða úrslit í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar Leikirnir í 16-liða úrslitum karla eru þessir: Grundarfjörður/Reynir - Tinda- stóll Fjölnir - HK Reynir Sandgerði - Haukar Þór Þorlákshöfn - Keflavík KR-b - Snæfell Höttur - Njarðvík KFÍ - Haukar ÍR - Grindavík Í þremur leikjanna eigast við tvö úrvalsdeildarlið. Keflavík sækir Þór heim til Þorlákshafnar, Grindavík mætir ÍR líkt og í Hópbílabikarnum um daginn, og KFÍ fær Hauka í heimsókn. Leikirnir fara fram 14. desember. Hjá konunum mætast: ÍS - Hamar Ármann/Þróttur - UMFG KFÍ - UMFN Haukar - Keflavík b ÍR - Keflavík Breiðablik - Þór Ak. KR og Tindastóll sitja hjá. Leikirnir fara fram 14. desember. Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712 • sport@vf.is Stóru Suðurnesjaliðin unnu öll 32-liða úrslit Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar fór fram um helgina og voru Suðurnesjaliðin þar vitanlega áberandi. Stóru liðin þrjú, Njarðvík, Grindavík og Keflavík unnu sína leiki, en minni spámenn komu líka á óvart. ÍR-NJARÐVÍK Njarðvík vann ÍR í 1. deild kvenna í körfuknattleik á fimmtudagskvöld. Lokatölur voru 64-71 Njaðvík í vil, en þær voru á útivelli. Leikurinn var jafn allan tím- ann og liðin skiptust á að hafa forystu allt þar til í síð- asta leikhluta þegar Njarðvík seig fram úr. Auður Jónsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur, var ánægð með að landa tveimur dýrmætum stigum eftir mikinn baráttu- leik. „Þetta var alveg hörku- leikur allt frá byrjun til enda, en vörnin hjá okkur var sterk og tryggði okkur að lokum sigurinn.” Andrea Gaines átti enn einn stórleikinn fyrir Njarðvík og náði þrefaldri tvennu. Hún skorað 24 stig, gaf 11 stoðsendingar og stal 10 boltum. Hún tók líka 8 frá- köst og var því einungis tveimur slíkum frá ferfaldri tvennu. Næst kom Auður Jónsdóttir með 14 stig og Guðrún Karlsdóttir skoraði 10 stig og tók jafnmörg frá- köst. Eplunus Brooks átti á móti frábæran leik fyrir ÍR. Hún skoraði 21 stig, tók 22 frá- köst og varði 3 skot. Næst henni var Kristrún Sigur- jónsdóttir með 17 stig. Njarðvík hangir því enn aft- an í Keflavík og ÍS í deild- inni fjórum stigum á eftir liðunum og í þriðja sæti. ■Kvennakarfa sportið VF 49. tbl.03/ 40pages 3.12.2003 4:49 Page 32

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.