Víkurfréttir - 18.03.2004, Side 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
HAFNARGÖTU 45 • KEFLAVÍK • SÍMI 421 3811
Láttu
sjónfræðing
okkar kanna
ástandið á
gleraugunum
þínum eða
linsum
– tímapantanir
í síma 421 3811
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
Gríptu tækifærið!
Nemendur úr Njarðvík-urskóla sem hyggjaststanda fyrir útgáfu á
skólablaði sem mun koma út
fyrir helgina litu við á ritstjórn
Víkurfrétta í vikunni. Í hópn-
um eru krakkar úr 8. til 10.
bekk og vinna þau blaðið í
tengslum við svokallaða þema-
daga sem hófust á fimmtudag í
síðustu viku og standa til dags-
ins í dag.
Efni skólablaðsins verður fjöl-
breytt, m.a. viðtöl við kennara,
nemendur og birtar verða frá-
sagnir frá vinnuhópum sem star-
fa í skólanum í tengslum við
þemadagana. Mikið er um að
vera í skólanum á þemadögum
og ber hæst undirbúningur fyrir
árshátíð skólans sem fram fer á
morgun.
Ritstjóri og umsjónarmaður
hópsins er Guðmundur „Brói“
Sigurðsson kennari í Njarðvíkur-
skóla. Ritstjórn blaðsins sam-
anstendur af 13 nemendum og að
sögn krakkanna f innst þeim
blaðaútgáfan vera spennandi.
„Þetta er bara rosalega skemmti-
legt,“ sögðu krakkarnir þegar þau
kynntu sér starfsemi Víkurfrétta.
Miklar fram-
kvæmdir við
Leifsstöð
Unnið er að stækkunFlugstöðvar Leifs Ei-ríkssonar hf. brottfarar-
megin, en fyrirtækið Ístak sér
um stækkun flugstöðvarinnar.
Að sögn Gísla Kristóferssonar
verkstjóra hjá Ístak ganga fram-
kvæmdir vel. Búið er að grafa út
fyrir fyrsta og annan áfanga og
unnið er að því að steypa sökkla.
„Við verðum búnir með fyrsta
áfanga í lok maí, en í þeim
áfanga felst jarðvegsvinna, upp-
steypa sökkla og gólfplötu, auk
þess sem stálvirkið verður
klárað,“ segir Gísli en verið er að
framleiða gler og glervirki sem
komið verður upp. Í byrjun sept-
ember er áætlað að vinna við
stækkun hefjist komumegin í
flugstöðinni.
➤ U N G I R B L A Ð A M E N N
Heimsóttu Víkurfréttir
Ungir blaðamenn úr Njarðvíkurskóla
í heimsókn á Víkurfréttum. F.v.: Guð-
bjartur, Þóra (sitjandi), Valbjörg, Lára,
Sigurbjörg, Ingibjörg, Hilmar Bragi,
Aftari: Grétar, Anna, Kári, Arndís,
Brói, Björgvin og Davíð
Hvalshræ í fjör-
unni í Höfnum
Gamalt hvalshræ fannst ífjörunni í Höfnum fyrirstuttu. Hræið er gamalt
og hefur að öllum líkindum
rekið upp í fjöruna neðan við
Sæfiskasafnið í Höfnum í
briminu síðustu daga. Engin
teljandi lykt er af hræinu, en
slíkum hvalshræjum getur
fylgt megn ýldufýla. Ekki er
mikið eftir af hræinu og greini-
legt að það hafi verið í sjónum í
langan tíma.
Ráðstefna forstöðumanna og helstu lykilstjórnenda Landsbanka Íslands fer fram á veitingahús-inu Ránni í Reykjanesbæ um helgina. Alls eru um 100 manns þátttakendur í ráðstefnunni. Áráðstefnunni taka einnig fulltrúar dótturfélaga Landsbanka Íslands í Lúxemborg og London
þátt. Ráðstefnugestir gista flestir á Hótel Keflavík og Flughóteli, en Hótel Keflavík sér um ráðstefn-
una.
LANDSBANKAMENN
FUNDA Í REYKJANESBÆ
Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Ragnarsson bankastjórar Landsbankans á ráðstefnunni.
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:04 Page 10