Víkurfréttir - 16.12.2004, Page 33
VÍKURFRÉTTIR Jólablað 1 I 51. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 16. DESEMBER 2004 I 33
Subaru fjórhjóladrif – einfaldlega fla› besta.
Grí›arleg flróun hefur átt sér sta› hjá Subaru vi›
hönnun og framlei›slu fjórhjóladrifsins. Subaru
fjórhjóladrifi› er fla› besta sem völ er á í fólksbílum
og gerir Subaru bíla örugga og framúrskarandi til
aksturs vi› allar a›stæ›ur.
Su›urlandi: Betri bílasalan ehf. Hrísm‡ri 2a 800 Selfossi s.482-3100 www.betri.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
0
8
4
DESEMBERUPPBÓT
Desember er tími gjafa og nú fæst Subaru á sérstöku gjafaver›i, sannkalla›ri desemberuppbót. Um takmarka› magn er a› ræ›a og flví um a› gera a› drífa
sig. Subarukaupendum í desember ver›ur sí›an fagna› sérstaklega me› glæsilegum kaupauka. Kynntu flér Subaru og bú›u flig undir langt og traust samband.
...og vi› hjá Glitni erum komin í jólaskap! Nú bjó›um vi›
öllum sem taka bílalán e›a bílasamning hjá Ingvari Helgasyni:
50% afslátt
af lántökugjaldi til áramóta.
– stórlækka› ver› á Subaru Legacy í desember
KAUPAUKI
Vetrardekk me› umfelgun fylgja
öllum Subaru í desember 2004.
Jólaver› 2.590.000 kr.Ver›dæmi Ver›skráLegacy station sjálfskiptur 2.790.000 kr.
trú manna máli. Trúin á æðri mátt eins
og hver og einn skilur hann er ætíð til
staðar og það hefur hjálpað fólki. Örn
segir trúna hafa hjálpað sér mikið. „Það
skiptir mig miklu máli að biðja til Guðs
og hugsa til Hans. Ég hef lesið mikið í
bókunum Samræður við Guð I og II
og þær bækur hafa breytt lífi mínu. Ég
undirbjó mig mjög vel áður en ég kom
inn og var búinn að lesa aðra bókina.
Þessar bækur varpa nýrri sýn á lífið og
tilveruna og þær hafa hjálpað mér mjög
mikið. Maður fer að velta fyrir sér hver
hinn eiginlegi tilgangur lífsins sé og hvað
skipti mann mestu máli í lífinu. Það er
vinna sem allir þurfa að fara í gegnum og
fyrir vikið verða betri einstaklingar með
skýrari markmið í lífinu,” segir Örn en
hann hefur einnig ræktað líkamann. „Ég
hef verið mjög duglegur í líkamsræktinni
og fer flesta daga að lyfta. Ég fer einnig
mikið út að hlaupa og í göngutúra. Hreyf-
ingin lætur manni líða vel í líkamanum
og það skiptir máli. Það besta sem ég geri
þegar mér líður illa er að fá útrás í hreyf-
ingunni,” segir hann og það er greinilegt
að hann hefur stundað líkamsrækt af
kappi þegar horft er á líkama hans.
Fór beint í olíuna
Í lok sumars kom samfangi Arnar fær-
andi hendi með olíuliti og pensla. Örn
byrjaði strax að mála og hefur gaman
af. „Ég fór beint í olíuna,” segir Örn og
hlær. “Þetta er svakalega gaman og það er
gaman að prófa þetta. Myndirnar sem ég
mála eru flestar af mat eða einhverju mat-
arkyns. En ég hef líka verið að mála trú-
arlegar myndir. Ætli ég sé ekki búinn að
mála jólagjafir handa allri ættinni,” segir
Örn hlæjandi og bendir á eitt málverkið
sem hangir upp á vegg.
Hlakkar til að fara á kaffihús
Fangarnir á Kvíabryggju hafa ekki aðgang
að internetinu og segir Örn það vera
mestu frelsissviptinguna. „Þegar maður
er orðinn vanur því að geta farið á netið
og náð í þær upplýsingar sem maður þarf
þá er hrikalegt að vera tekinn út úr því.
Ég tala nú ekki um að missa samskiptin
sem maður hefur í gegnum tölvuna,”
segir hann en finnur hann mikið fyrir
frelsissviptingunni? „Það er ekkert að
bögga mig í dag. Ég er ekki að pirra mig
á hlutum sem ég hef ekki aðgang að - ég
sé ekki alveg tilganginn með því. Hlut-
irnir eru bara svona og það þýðir ekkert
að vera að pirra sig á því að geta ekki gert
hitt og þetta. Eitt af því skemmtilegasta
sem ég geri er að fara á kaffihús og ég læt
mig bara hlakka til þess.”
Þjöl í afmæliskökunni
Í haust átti Örn afmæli og í tilefni dags-
ins komu nokkrir vina hans með af-
mælisköku úr Keflavík. „Þeir komu hérna
Steini á hótelinu, Ingó á Langbest, Axel í
Matarlyst og Ási sem var með Glóðina.
Það var ofsalega gaman enda mennirnir
skemmtilegir og góðir vinir mínir. Þeir
hafa líka húmor fyrir þessu en í kökunni
höfðu þeir komið fyrir þjöl,” segir Örn
brosandi.
Byrjuðu á núllinu
Eins og flestir Suðurnesjamenn vita hafa
Örn og Íris rekið veitingastaðinn Soho
við góðan orðstí. Staðnum komu þau
á laggirnar eftir að hafa tapað öllu sínu
og segir Örn þau vera heppin að reka
Soho. „Vinir okkar og kunningjar hafa
hjálpað okkur mikið - án þeirra hefði
okkur aldrei tekist þetta. Við byrjuðum al-
veg á núllinu aftur og það er bara frábært
Örn stundar íþróttir af kappi á Kvíabryggju.
Hér fær hvíta kúlan að kenna á því á snókerborðinu.