Víkurfréttir - 16.12.2004, Blaðsíða 56
56 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
SPORTPÍUR
Það er að ýmsu að hyggja
áður en ráðist er í ljósmyndun
fyrir jólaforsíðu. Sportpíurnar
okkar, þær Birna, Freyja, Ágústa
og Íris Edda fóru í greiðslu
hjá þeim Ásdísi og Mörtu á
Hárgreiðslustofunni Elegans í
Keflavík og í förðun hjá þeim
Kristínu Jónu, Lilju og Huldu á
Snyrtistofu Huldu í Njarðvíkum.
Var m.a. notuð ný förðunaraðferð,
„air brush“ og er alger nýjung og
kemur auðvitað frá Hollywood.
Þær fóru þaðan nokkra metra
yfir til Oddgeirs Karlssonar,
ljósmyndara sem smellti af þeim
myndum sem birtast í blaðinu í
dag. Verslunin Kóda lánaði skinn
og Glitter skartgripi.Víkurfréttir
færa þessum aðilum öllum
bestu þakkir fyrir aðstoðina.
Honum leiðist ekki,
ljósmyndaranum Oddgeiri
Karlssyni í faðmi fagurra
íþróttakvenna.
Lilja Högnadóttir, nemi, Hulda
Pétursdóttir, eigandi stofunnar og
snyrtifræðingur, Íris Edda, Ágústa,
Feyja, Kristín Jóna Hilmarsdóttir,
snyrtifræðingur og Birna.
Kristín Jóna „spray-ar“ á
Birnu körfuboltadömu.
Ásdís Pálmadóttir
og Marta Teitsdóttir,
hárgreiðslumeistarar á
Elegans höfðu hendur í hári
stelpnanna og eru hér með
Freyju og Ágústu í stólunum.
í myndatöku undirbúningi!