Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 56

Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 56
56 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! SPORTPÍUR Það er að ýmsu að hyggja áður en ráðist er í ljósmyndun fyrir jólaforsíðu. Sportpíurnar okkar, þær Birna, Freyja, Ágústa og Íris Edda fóru í greiðslu hjá þeim Ásdísi og Mörtu á Hárgreiðslustofunni Elegans í Keflavík og í förðun hjá þeim Kristínu Jónu, Lilju og Huldu á Snyrtistofu Huldu í Njarðvíkum. Var m.a. notuð ný förðunaraðferð, „air brush“ og er alger nýjung og kemur auðvitað frá Hollywood. Þær fóru þaðan nokkra metra yfir til Oddgeirs Karlssonar, ljósmyndara sem smellti af þeim myndum sem birtast í blaðinu í dag. Verslunin Kóda lánaði skinn og Glitter skartgripi.Víkurfréttir færa þessum aðilum öllum bestu þakkir fyrir aðstoðina. Honum leiðist ekki, ljósmyndaranum Oddgeiri Karlssyni í faðmi fagurra íþróttakvenna. Lilja Högnadóttir, nemi, Hulda Pétursdóttir, eigandi stofunnar og snyrtifræðingur, Íris Edda, Ágústa, Feyja, Kristín Jóna Hilmarsdóttir, snyrtifræðingur og Birna. Kristín Jóna „spray-ar“ á Birnu körfuboltadömu. Ásdís Pálmadóttir og Marta Teitsdóttir, hárgreiðslumeistarar á Elegans höfðu hendur í hári stelpnanna og eru hér með Freyju og Ágústu í stólunum. í myndatöku undirbúningi!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.