Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2004, Page 48

Víkurfréttir - 16.12.2004, Page 48
48 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Á annað hundrað manns eru á biðlista vegna hót-elgistingar á Hóteli Kefla- vík nú fyrir hátíðarnar. Allur þessi fjöldi er til kominn vegna markaðsátaks fyrir jólaverslun í Reykjanesbæ sem Hótel Kefla- vík stendur fyrir. Það felur í sér að þeir sem nýta sér þjónustu eða verslun í Reykjanesbæ geta framvísað greiðslukvittunum eða reikningum sem greiðslu fyrir gistingu. Hingað um helgina komu sjö vinkonur úr Reykjavík til að versla inn fyrir jólin en ein úr hópnum hafði heyrt af þessu síðan í fyrra. „Við ákváðum að fara sjö saman á laugardegi og hafa það fínt í Reykjanesbæ,” sagði Jóhanna Einarsdótt ir. Þær höfðu farið í fyrra í versl- unarferð til Kaupmannahafnar fyrir jólin en ákváðu að fara til Reykjanesbæjar í ár. „Við fundum þessar fínu búðir og vorum sérstaklega ánægðar með frábæra kvenfataverslun sem við versluðum í,” sagði Jó- hanna og bætti því við að versl- unin héti Persóna. Þær sögðust hafa verslað töluvert mikið í búðunum og snæddu eftir það á veitingastað í bænum. „Við vorum mjög lukkulegar með veitingastaðinn en við fórum á Cafe Duus og fengum þennan ofsalega fína mat.” Þær tóku sér leigubíl á milli staða og voru mjög heppnar að þeirra sögn því leigubílstjórinn vildi allt fyrir þær gera og hjálpaði þeim tölu vert. „Það mætti okkur frábær þjónusta hvar sem við vorum,” sagði Jóhanna. Að hennar sögn er þetta frábæra framtak hjá Hótel Keflavík mjög sniðugt og segir hún að þetta vekur tvímælalaust athygli á bænum. Jóhanna segir að þjón- ustan sé jafnvel betri í Reykja- nesbæ en í Kaupmannahöfn. „Við sleppum Kaupmannahöfn hér eftir og verslum í Reykja- nesbæ fyrir jólin, það er ekkert verra,” sagði Jóhanna og þakk- aði kærlega fyrir sig. Steinþór Jónsson, eigandi Hót- els Keflavíkur, sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta hafi gengið mjög vel eins og síðustu ár. „Okkur fór að berast símtöl í byrjun september þar sem fólk vildi panta gistingu en við opn- Gerðu jólainnkaupin í Reykjanesbæ Keflavík betri en Köben! ����� �������������� ����������������

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.