Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.01.2005, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 06.01.2005, Qupperneq 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Barátta ársins: Ómar barðist við krabbamein Góðvinur okkar Ómar Jónsson barðist hetjulegri baráttu á ár- inu við þann illvíga sjúkdóm krabbamein. Barátta Ómars stóð eingöngu í rúmt ár en þá varð hann að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum. Vinir Ómars efndu til tónleika í Stapa á árinu til stuðnings og heiðurs revíuskáldinu og sagna- manninum góða. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm þá veitti Ómar Víkurfréttum viðtal þegar hann átti eingöngu nokkrar vikur ólifaðar. Þar lýsti hann baráttunni við sjúkdóminn og sló á létta strengi eins og honum var einum lagið. Við á Víkurfréttum þökkum Ómari samfylgdina, en blaðið okkar var Ómari mikil uppspretta þegar koma að revíugerð hans, sem landsþekkt er orðin. Hæli ársins: Útlendingum ekki í kot vísað... Reykjanesbær og Útlendinga- stofnun undirrituðu samning á árinu um að Reykjanesbær tæki við og hýsti alla hælisleitendur sem kæmu til landsins meðan mál þeirra væru til meðferðar hér á landi. Sérstakur starfs- maður var ráðinn til verksins. Furðuverk árnis: Fiskibátur með útlit geimskips Bátasmiðjan Mótun í Reykja- nesbæ afhenti nýjum eiganda bát á árinu sem er kannski ekki í frásögur færandi, nema hvað báturinn hefur útlit geimskips en uppfyllir allar nútímakröfur fiskiskips. Báturinn ber nafnið Daðey GK og er gerð út af Páli Pálssyni skipsstjóra í Grindavík. Hjartaknúsari ársins: Þrjú hjörtu Helga Einars Helgi Einar Harðarson gekkst undir hjartaskiptaað- gerð á árinu, þar sem hann var að fá sitt þriðja hjarta. Hjarta sem Helgi hafði fengið á unglingsárum var að gefa sig og því þurfti Helgi að ganga undir hjartaskiptaaðgerð. Helgi fékk einnig nýtt nýra, þar sem þau sem fyrir voru hefðu ekki ráðið við lyfjameðferð sem fylgir hjartaskiptunum. Helgi var fljótur að ná sér eftir aðgerðina og var kominn í réttir í Grindavík sl. haust. Fegurðardrottning Suðurnesja: Glæsileg Keflavíkurmær fór með sigur af hólmi Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir var kjörin feg- urðardrottning Suðurnesja 2004 á glæsilegu úrslitakvöldi í Bláa lóninu í lok vetrar. Guðrún Halldórsdóttir varð í öðru sæti og Margrét Valdimarsdóttir í því þriðja. Framkvæmd ársins: Reykjanesvirkjun verður að veruleika Framkvæmdir hófust á árinu við Reykjanesvirkjun. Um er að ræða rúmlega 100 megavatta gufuaflsvirkjun sem veitir allt að 200 manns atvinnu á meðan unnið er að uppsetningu hennar og mun í framhaldinu eiga eftir að afla Suðurnesjum tekna með raforkusölu til stóriðju og annarra stórnot- enda. Byggingaframkvæmdir hófust svo af krafti síðsumars og nú eru fyrstu mannvirkin að rísa til himins á Reykjanesi. Hvort þar verður svo frekari ferðamannaparadís, a la Blue Lagoon á næstu árum verður framtíðin að leiða í ljós en stórar hugmyndir þess efnis hafa verið kynntar sveitarstjórn- armönnum á Suðurnesjum.... Tvíburar ársins: Tvöföld ánægja á skurð- stofu í Keflavík Ljósmyndari Víkurfrétta var tíður gestur á skurðstofu Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja á árinu. Stofnunin átti 50 ára afmæli og því ákváðum við að kynna okkur starf stofnunar- innar náið. Við vorum m.a. við- staddir þegar tveir myndarlegir tvíburabræður komu í heiminn. Myndirnar birtust í Tímariti Víkurfrétta og hér er ein þeirra. Sýningarsalur ársins: Bílaumboðin sameinast í Reykjaneshöllinni Þúsundir lögðu leið sína í Reykjaneshöllina á árinu þegar þar var haldin ein risastór bílasýning þar sem sýndir voru allir nýjustu bílarnir á markaðnum. Bílaumboðin sameinuðust um sýninguna og Reykjaneshöllin sannaði það að hún væri eitthvað meira en bara knattspyrnuhús... Kossaflens ársins: Magnús kyssir verslunar- stjóra Blómavals daglega Páfagaukurinn Magnús komst í fréttirnar hjá okkur á árinu þegar hann mætti daglega í vinn- una með „mömmu sinni” henni Lilju Valþórsdóttur. Magnús var 10 mánaða páfagaukur þegar við hittum hann í Blómavali og það fylgdi sögunni að hann væri ekkert að rífa kjaft við viðskiptavini verslunarinnar. Hann væri farinn að mynda orð en væri ekki kominn með orðaforða. Magnús og hans líkir geta orðið allt að 65 ára gamlir og Lilja átti von á að gauksi muni fylgja henni á elliheimilið í framtíðinni. Viðurkenning ársins: Bláa lónið fékk útflutn- ingsverðlaun Forseta Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, For- seti Íslands, heiðr- aði Bláa lónið á síðustu dögum ársins 2004 og kynnti sér starf- semina. Það var ekki af ástæðu- lausu, þar sem hann hafði á vormánuðum veitt Bláa lóninu útflutningsverðlaun Íslands.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.