Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.01.2005, Side 17

Víkurfréttir - 06.01.2005, Side 17
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 6. JANÚAR 2005 I 17 Verslunarhúsnæði ársins: Keflavíkurverktakar byggja verslunarmiðstöð á Fitjum Ný 3000 fermetra verslunarmið- stöð mun rísa á Fitjum, nánar tiltekið á Stapabraut ofan nýs Tjarnarhverfis í Innri Njarðvík. Bygging verslunarmiðstöðvar- innar er í höndum Keflavíkur- verktaka. Viðræður stóðu yfir á síðasta ári við nokkra aðila sem hafa hug á að vera með verslanir í verslunarmiðstöð- inni. Greint var frá því í Víkur- fréttum á síðasta ári að unnið væri að hönnun hússins, en ekki væri ljóst hvenær bygginga- framkvæmdir myndu hefjast. Skoðunarferð ársins: Kíkti fram af hafnarbakkanum Betur fór en á horfðist þegar sementsflutningabíll frá Aalborg Portland ók framaf hafnar- bakkanum í Helguvík á árinu. Bíllinn, sem var lestaður með 30 tonnum af sementi, stöðv- aði þegar framhjól og stjórn- rými hans héngu yfir sjónum. Bílstjóranum var brugðið en hann komst ómeiddur í land. Bíllinn skemmdist töluvert. Tímamælir ársins: Sólúr við Myllubakka- skóla Árgangur 1950 stóð fyrir skemmtilegu framtaki á árinu þegar hann lét koma fyrir stóru og myndarlegu sólúri við Myllubakkaskóla í Keflavík. Úrið er 12 tonn og var vígt í minningu Vilhjálms heitins Ketilssonar skólastjóra. Sól- úrið er nyrsta sólúr í heimi. Lestur ársins: 92% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir í hverri viku Það var sannarlega jákvæð niðurstaða sem Víkurfréttir fengu úr fjölmiðlakönnun sem Gallup gerði fyrir blaðið á ellefu vikna tímabili. 91,7% lesa blaðið í hverri viku, þar af 48,8% einu sinni í viku, 19,7% tvisvar í viku, 10,7% þrisvar í viku og 12,5% lesa blaðið oftar. Takk fyrir okkur. Bruni ársins: Flugeldaskothríð tók á móti slökkviliðsmönnum Mikið tjón varð í eldsvoða við Bolafót í Njarðvík í sumar þegar eldur kom upp í húsnæði sem meðal annars hafði að geyma flugeldalager. Lagerinn var í eigu aðila utan Suðurnesja og var geymdur í húsnæðinu í leyfisleysi. Tjón varð mikið og máttu slökkviliðsmenn þakka fyrir að hafa ekki orðið fyrir slysi þegar flugeldarnir svo gott sem sprungu í andlitið á þeim. Ilmur ársins: Rjúkandi kaffihátíð í Reykjanesbæ Fyrsta alvöru kaffihátíðin á Íslandi var haldin í kaffi- bænum Reykjanesbæ á árinu. Kanónur komu saman í Kaffi- tári og smökkuðu á nýjustu uppskerunni, auk þess sem atburðir tengdir kaffi voru víða um bæinn. Reykjanes- bær fagnaði á sama tíma 10 ára afmæli sveitarfélagsins. Dekurdúllur ársins: Sætustu stúlkur Suður- nesja í Bláa lóninu Árlega fylgjumst við með Fegurðarsamkeppni Suður- nesja í Víkurfréttum og engin breyting var þar á á síðasta ári. Fjölmargar myndir birtust af þessum blómarósum og dekur- dúllum þegar þær létu snúast í kringum sig í Bláa lóninu á ár- inu. Við vorum þar með mynda- vélina * lofti, en ekki hvað...! Útskrift ársins: Fyrstu háskólanemar Suðurnesja Sannkölluð tímamót voru í skólasögu Suðurnesja á árinu sem leið þegar útskrifaðir voru fyrstu háskólanemarnir sem stundað hafa fjarnám við Háskólann á Akureyri. Námið stunduðu nem- arnir við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Nemendahóp- urinn sem útskrifaðist var samsettur af sautján nemendum. Kjötvinnsla ársins: Ferskt hvalkjöt verkað í Sandgerði Það var heldur betur kjötveisla í Sandgerði á árinu þegar þangað var komið með sjö metra langa hrefnu sem veidd var úti af Stafnesi. Dýrið var tarfur sem var skorinn niður í bita og ísaður í kör. Hann endaði síðan í kjötborðum verslana. Framhald í næstu viku... Vinnustaður ársins: Athafnalífið blómstrar í Leifsstöð Flugstöð Leifs Eiríkssonar er sannarlega blómstrandi vinnustaður. Farþegum fjölgar jafnt og þétt og útflutningur um Keflavíkurflugvöll hefur aldrei verið meiri. Meðfylgjandi mynd er frá lyfjaútflutningi fyrir milljarða króna þegar samheitalyf voru flutt til Evrópu með fjölda flugvéla.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.