Víkurfréttir - 06.01.2005, Qupperneq 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Með breyttri vínmenn-ingu á Íslandi er það orðið svo að léttvín
o g b j ó r e r n ú
hluti af neyslu-
venjum velflestra
h e i m i l a . M e ð
hóf legri neyslu
en áður tíðkaðist
líkist þessi hluti
okkar samfélags
æ meir því sem gengur og ger-
ist í Evrópu sem hlýtur að vera
breyting til hins góða. Ríkulegt
framboð og góð þjónusta vín-
búða er því mikilvægari þáttur
en áður var.
Fyrir áramót opnaði Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins nýja
vínbúð í Reykjanesbæ. Búðin er
staðsett við aðalverslunargötu
bæjarins og þykir sú staðsetn-
ing betri og útlit nýju verslunar-
innar hlýlegra. Sá böggull fylgir
skammrifi að nýja verslunin
er talsvert minni en sú gamla,
við hana eru færri bílastæði og
vörutegundum hefur sennilega
fækkað. Auk þessa er lagerhús-
næði verslunarinnar augljóslega
svo lítið að mjög hefur brunnið
við að vinsælar tegundir léttvína
og bjórs séu uppseldar. Á anna-
tíma standa viðskiptavinir í bið-
röðum í snjókomunni, örtröð
bíla myndast á fjölförnustu götu
bæjarins og erfitt er að komast
að hillum verslunarinnar vegna
biðraða við afgreiðslukassa.
Sveitarfélagið er að
missa spón úr aski sínum
Undanfarið hefur Reykjanes-
bær lagt á það mikla áherslu að
kynna sig sem samkeppnishæft
sveitarfélag með samskonar
þjónustustig og sveitarfélögin
á höfuðborgarsvæðinu. Vegna
einokunar á þessum markaði
þurfa Reykjanesbæingar að leita
út fyrir sveitarfélagið eftir betri
þjónustu og frekara vörufram-
boði. Samkeppnishæfni Reykja-
nesbæjar skaðast því klárlega
við minnkandi þjónustustig vín-
búðarinnar.
Það viðurkennist að þetta er
ekki stórt mál, samanborið við
aðra mikilvægari málaflokka, en
allt þjónustustig skiptir máli. Ég
skora því á kjörna bæjarfulltrúa
okkar að beita sér í málinu og
krefjast þess að þjónustustig vín-
búðarinnar verði bætt og versl-
unin flutt í stærra og hentugra
húsnæði.
Georg Brynjarsson
f.v. formaður Heimis,
félags ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjanesbæ
8 Georg Brynjarsson skrifar:
Bætt vínmenning kallar á betri þjónustu
öKASSINNPÓST Sendið okkurlesendabréf á:postur@vf.is
Um áramót er það ágætis siður að líta yfir það liðna og skoða hvað hefur vel tekist og hvað mætti betur fara. Einnig
að horfa til framtíðar og leggja lín-
urnar.
Á síðustu árum hefur verið mikill
uppgangur hér í Garði. Frá árinu
2000 hafa verið byggðar 67 nýjar
íbúðir og á næsta ári stefnir í að
a.m.k 30 nýjar íbúðir verði byggðar.
Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt
á síðustu ár og miðað við des.2004 eru íbúar í
Garði orðnir 1322. Hér er um mestu hlutfalls-
legu fjölgun að ræða meðal sveitarfélaga á Suð-
urnesjum og verulega umfram landsmeðaltals-
fjölgun.
Í Reykjanesbæ fjölgaði um 47 eða um 0,43%
Í Grindavík fjölgaði um 58 eða um 2,40%
Í Sandgerði fjölgaði um 5 eða um 0,36%
Í Vogum fjölgaði um 11 eða um 1,19%
Í Garði fjölgaði um 39 eða um 3,04%
Það er ánægjuleg þróun að íbúum skuli fjölga í
öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum.
Á síðustu árum hafa átt sér stað miklar fram-
kvæmdir í Garði. Byggt hefur verið við Gerða-
skóla,sparkvöllur byggður við skólann,leikskóli
byggður,verulegt átak gert í malbikun gatna og
lagningu gangstétta auk annarra umhverfisfram-
kvæmda. Mikla fjármuni hefur þurft til að útbúa
götur og lagnir vegna nýbygginga.
Framundan eru miklar framkvæmdir hvað varðar
stækkun byggðasafnsins, sem nú er unnið að.
Stækkun leikskólans auk áframhaldandi fram-
kvæmda í gatnagerð.
Nýbyggingar og framkvæmdir eru fjármagnaðar
með lántökum en þegar til lengri tíma er litið
mun þetta skila sér til sveitarfélagsins.
Þeir sem standa í atvinnurekstri hafa verið drjúgur
við að byggja upp og efla sín fyrirtæki, sem auð-
vitað er undirstaða þess að sveitarfélagið blómstri.
ENGAR FASTEIGNIR SELDAR
Garður stendur mjög vel og hefur ekki enn selt
neitt af sínum fasteignum , sem mörg sveitarfélög
hafa gert til að ná í aukið fjármagn til að standa
undir rekstri og framkvæmdum. Garður á einnig
myndarlegan hlut í Hitaveitu Suðurnesja.Eigna-
staða Garðs er mjög sterk.
Á nýju ári munu umræður um sameiningarmál
sveitarfélaga fara í gang og framundan eru kosn-
ingar víða á landinu.
Enn er ekki vitað hvort Sameiningarnefnd Félags-
málaráðuneytisins gerir tillögu um sameiningu
sveitarélaga hér á Suðurnesjum en á næstunni
munu endanlegar tillögur nefndarinnar birtast.
Bæjarstjórn Garðs var spurð um sína skoðun
á sameiningarmálum og hefur lýst því yfir að
hún telji ekki ástæðu til að breyta frá núverandi
fyrirkomulagi.Grindavík hefur lagst gegn sam-
einingu og væntanlega Sandgerði einnig. Fram
hefur komið hjá Vogamönnu að þeir vilji komi til
sameiningar setja stefnuna á Hafnarfjörð.Reykja-
nesbær þ.e. bæjarstjórnin hefur lýst yfir vilja til
sameiningar.
Miðað við þetta verður vandséð hvernig Samein-
ingarnefnd getur sett fram tillögu um sameiningu
allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
ENGINN SPARNAÐUR
Standi Garðmenn aftur á móti frammi fyrir þeirri
spurningu hvort rétt sé að sameinast hljóta menn
að velta því fyrir sér hvort sá mikli uppgangur
sem verið hefur í Garðinum hefði átt sér stað
værum við hluti af Reykjanesbæ.
Höfum við trú á því að jafn mikill uppgangur
verði á næstu árum hér ef öllu verður stjórnað af
fulltrúum Reykjanesbæjar?
Það er staðreynd að sameining sveitarfélaga hefur
ekki leitt til sparnaðar. Hægt er í því sambandi að
nefna Reykjanesbæ,Árborg og Fjarðarbyggð.
Margir vilja meina að yfirstjórnunarkostnaður
muni sparast við sameiningu. Athyglisvert er því
að skoða þessar tölur (ársreikningur 2003)og
bera saman í Garði og Reykjanesbæ. Í Garði er
kostnaðurinn á íbúa kr. 32.014 en í Reykjanesb
kr.31.806 á íbúa eða nánast sá sami. Þetta sýnir að
þrátt fyrir stærðarmun sveitarfélaganna hefur ekki
náðst fram hagkvæmni hjá þeim stóra.
Að sjálfsögðu er eðlilegt að menn velti þessum
málum fyrir sér og meti hvað sveitarfélaginu er
fyrir besu.
Þakka samskiptin á árinu 2004 með ósk um að
nýtt ár verði okkur öllum til blessunar.
Sig.Jónsson,bæjarstjóri Garði
Framfarir og framtíðin
8 Sigurður Jónsson bæjarstjóri í Garði skrifar: