Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.01.2005, Side 26

Víkurfréttir - 06.01.2005, Side 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Einn fremsti körfuknatt-leiks mað ur Ís lands, Logi Gunn ars son, var ekki lengi að bregð ast við þeg ar Vík- ur frétt ir höfðu samband og tóku púls inn á kappanum. Logi sem leik ur með Gies sen 46ers í þýsku bundeslig unni stend ur í hörku sam keppni hið ytra um stöðu í lið inu. Logi var mik ið frá vegna meiðsla í fyrra en er nú að koma sterk ur inn. Hvern ig er þér búið að ganga það sem af er tíma bil inu? Ertu al heill? Ég er al heill og öxl in er í mjög góðu standi eft ir að hafa far ið í að gerð eft ir síð asta tíma bil, ég er kom inn í toppform og hef ur geng ið mjög vel þeg ar ég hef feng ið tæki færi. Hvern ig geng ur liði þínu í deild inni? Okk ur geng ur bara mjög vel og við erum í 6. sæti eins og er og er það mik il fram för því við vor um í botn in um á síð asta tíma bili. Er mik il sam keppni um stöð ur í lið inu, við hvern ig leik menn ert þú að keppa um spila tíma við? Já, það er mik il sam keppni í lið inu og mik ið af góð um leik- mönn um sem bætt ust við. Það er am er ík ani sem er í minni stöðu og spil ar mik ið og þar af leið andi fæ ég ekki eins mik- inn séns og ég mundi vilja. En það er bara eitt hvað sem mað ur verð ur að takast á við og halda sínu striki. Hvern ig er körfu bolt inn þarna úti frá brugð inn þeim sem spil- að ur er hér heima? Ég myndi segja að það sé mik- ill mun ur enda þýska deild inn tal in ein af þeim betri í Evr ópu. Það eru leik menn í topp klassa sem mað ur spil ar við á æf ing um og í leikj um og það ger ir manni mjög gott að takast á við það. Vörn in hér er gríð ar lega sterk og mað ur verð ur að vera fljót ur að taka ákvarð an ir í sókn inni. Leik ur inn hér er líka mjög ag- að ur. Er tu að spila á mót i ein- hverj um stjörn um sem við hér heima ætt um að kann ast við? Það eru marg ir leik menn sem hafa ver ið í NBA deild inni í skamm an tíma en kannski eng ar stór stjörn ur. Það eru marg ir leik menn sem koma úr góð um há skól um t.d. var mið herj inn okk ar, So leym an Wane, há skóla- meist ari með Conn ect icut árið 2000. Svo spil aði ég við John Sel e stand um dag inn sem varð NBA meist ari með L.A. Lakers 2001. Svo eru marg ir mjög góð ir Evr ópsk ir leik menn. Hvað ger ir þú þarna úti þeg ar þú ert ekki að spila eða á æf- ingu? Við æfum mjög mik ið, oft ast 2 til 3svar á dag og ég er mik ið á ein stak lingsæf ing um þannig að mað ur ger ir lít ið ann að en að spila og æfa. Ann ars reyni ég að læra smá á milli æf inga, ég er með heima nám í þýsku og svo var ég í fjar námi í fyrra. Hvern ig líst þér á Inter sport- deild ina í vet ur? Hverj ir tel ur þú að eigi eft ir að berj ast um Ís lands meist ara tit il inn? Mér líst bara vel á deild ina heima í ár og held að það verði Nj að vík ásamt Kefla vík og Snæ felli sem munu berj ast um tit il inn í ár. Og ég vona nátt ur- lega að það verði mín ir menn í Njarð vík sem standa uppi sem sig ur veg ar ar. Hvern ig var að vera svona fjarri fjöl skyld unni yfir há tíð- arn ar? Það hefði ver ið gott að geta kom- ist heim um há tíð arn ar en við vor um að spila á milli jóla og nýárs. En svona er þetta bara ef mað ur er í svona vinnu og það venst bara. 8 Sportspjall: Logi Gunnarsson Kemur sterkur inn eftir meiðsli Bjarki í liði ársins í USA Bjarki Guð munds son, sem gerði g arð inn fræg an sem mar k- mað ur Kefla vík ur og síð ar KR, var val inn í úr valslið NAIA há skóla deild ar inn ar í Banda ríkj un um eft ir að keppn is tíma bil inu lauk þar fyr ir skemmstu. Bjarki, sem hef ur stund að nám í hag- fræði við Auburn U n i v e r s i t y o f Montgomery í Ala- bama frá haustinu 2003, hef ur einnig stað ið á milli stang- anna í knatt spyrnu- liði skól ans. „Okk ur gekk mjög vel í bolt an um í vet ur,” sagði Bjarki í sam tali við Vík ur frétt ir. „Við komumst í National úr slit NAIA, en þar eru 240 lið sem kepp ast um að kom ast í 20 liða úr slita keppn ina. Þar end- uð um við í öðru sæti eft ir 1-0 tap í úr slita leikn um.” Eft ir það var Bjarki val inn í lið úr slita keppn inn ar og skömmu síð ar í úr valslið deild ar inn ar, All-Amer ic an lið ið. Bjarki sagð ist upp með sér af þess um titli. „Marg ir leik menn sem hafa náð í at vinnu manna lið í Banda ríkja deild inni státa af “All Amer ic an” titl in um. Því var það mik ill heið ur fyr ir mig að vera val inn í fyrsta lið árs ins.” Ann ars er það nám ið sem á hug hans all an um þess ar mund ir sem og fjöl skyldu- líf ið, en eig in kona hans Björk Eiðs dótt ir og dæt ur þeirra Blær og Birta eru með hon um úti. Björk sit ur þar einnig á skóla bekk og nem ur fjöl miðla- fræði. Þau eru þó langt í frá einu Ís- lend ing arn ir á svæð inu. „Hér í Montgomery er mik il Ís- lend inganý lenda. „Við erum tíu Ís lend ing ar í karla lið inu og fjór ar ís lensk ar stelp ur í kvenna lið inu, einnig eru að stoð ar þjálf ar ar karla og kvenna liðs ins báð ir Ís lend- ing ar svo eiga marg ir þess ara stráka fjöl skyld ur sem eru hér ásamt þeim. Þetta er því ansi stór hóp ur eða 32 Ís lend ing ar til sam ans.” Bjarki skap aði sér fyrst nafn með fræki legri frammi stöðu með Kefla vík ur lið inu í eft ir- minni leg um bik ar slag við ÍBV haust ið 1997. Hann kom inn í lið ið eft ir að Ólaf ur Gott skálks- son var seld ur til Skotlands á miðju tíma bili og varði m.a. þrjár víta spyrn ur í seinni úr- slita leik lið anna. Hann fylgd ist grannt með fram gangi sinna manna í sum ar. „Ég fylgd ist vel með á inter net- inu héð an frá Ala bama þeg ar Kefla vík spil aði bik ar úr slita- leik inn í sept em- ber og fagn aði gríð ar lega þeg ar þeir unnu. Sig- ur inn r i f j aði auð vit að upp gaml ar og góð ar minn ing ar sér- stak lega þar sem að drag and inn að titl in um var ekki ólík ur þeim árið 1997, nema að í þetta skipt ið var það Magn ús Þorm ar sem tók við stöðu Ólafs Gott skálks- son ar í mark inu.” Und an far in þrjú sum ur hef ur Bjarki var ið mark Stjörn- unn ar í 1. deild inni, en seg ir fram hald ið hjá sér óráð ið að því leyti. „Ég hef ekki gert upp hug minn um það hvort ég muni spila á Ís landi á næsta tíma bili enda samn ings laus eins og er. Þessa stund ina er ég að ein beita mér að nám inu mínu og er að al mark mið ið að standa sig í því.” Lið Regínu sigraði á síð asta pútt móti ársins Síð asta pútt mót PS árið 2004, fór fram þann 30. des em ber í Röstinni. Keppt var í svoköll uðu ára- móti. Bænd ur voru Regína Guð munds dótt ir og Sess elja Þórð ar dótt ir. Leik ar fóru svo að lið Regínu vann með 3ja högga mun. Næsta mót er svo hið ár- lega mót á milli klúbbanna GS og PS og verð ur það háð laug ar- dag inn 8. jan ú ar n.k. kl 13. Í til kynn ingu ósk ar Pútt klúbb ur Suð ur nesja öll um gleði legs nýs árs, og þakk ar styrkt ar að il um. Karfan í gang eftir jólafrí Körfubolti karla hefst á ný í kvöld eftir jólafrí þegar heil umferð er leikin í Intersport-deildinni. Nú þegar dei ldakeppnin er hál fnuð eru Íslandsmeistarar Keflavíkur efstir með jafn mörg stig og erkifjendurnir Njarðvíkingar og Snæfell en betri stöðu í innbyrðis viðureignum. Grindavík, sem sér fram á betri tíð með nýjum þjálfara, eru í sjöunda sæti deildarinnar og hefja árið með því að mæta Snæfelli í erfiðum útileik. Njarðvík á sömuleiðis útileik gegn botnliði KFÍ, en Keflvíkingar fá Tindastól í heimsókn í Sláturhúsið. Verður fróðlegt að sjá hvernig liðin koma úr jólasteikinni. Kvennakarfan fór í gang í gær þar sem öll Suðurnesjaliðin léku, en það var eftir að blaðið fór í prentun. Grannaliðin Njarðvík og Keflavík mætast í 8-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ í Sláturhúsinu á sunnudag. Keflavík vann síðasta leik liðanna, en Njarðvíkingar höfðu sigur fyrr í vetur í Sláturhúsinu en Keflvíkingar ætla ekki að láta slíkt endurtaka sig. Friðrik Ingi Rúnarsson, körfuboltaspekingur, segist hlakka til leiksins. „Það er gaman að byrja árið með svona dúndurleik og mér líst mjög vel á. Ég tel þó að Keflvíkingar séu sigurstranglegri miðað við síðustu leikina fyrir jólafrí. En ef Njarðvíkingar ná að spila eitthvað svipað og þeir gerðu í upphafi leiktíðar eiga þeir fullan möguleika á að sigra. Annars eru þeta 2 frábær lið sem etja kappi og ég vona að stemmningin verði góð og húsið verði fullt af fólki.“ Bikarslagur af bestu gerð!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.