Víkurfréttir - 11.12.2014, Blaðsíða 38
38 fimmtudagurinn 11. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
NES er íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum og eina
íþróttafélagið fyrir fatlaða á
svæðinu. Í dag eru um 100
virkir iðkendur hjá félaginu og
starfið þar vex ár frá ári. Í dag
eru í boði fimm íþróttagreinar
hjá félaginu, sund, boccia, frjálsar
íþróttir, lyftingar og knattspyrna.
Iðkendum hjá NES gefst kostur
á að vera í öllum greinum eða
stökum greinum en greiða alltaf
sama þátttökugjald. Rannsóknar-
lögreglumaðurinn Guðmundur
Sigurðsson er formaður félagsins
og hann segir í samtali við Víkur-
fréttir að öllum sé frjálst að æfa
hjá félaginu.
Með framkvæmdastjóra
og sjö þjálfara
NES er með sjö þjálfara á sínum
snærum og því er rekstur félags-
ins orðinn eins og fyrirtæki. Ný-
lega var ráðinn framkvæmdastjóri
til félagsins til reynslu í hálft ár til
að halda utan um sívaxandi starf.
Að sögn Guðmundar fjármagnar
félagið sig með styrkjum, æfinga-
gjöldum og samstarfssamningum.
Það verður m.a. hlutverk nýs fram-
kvæmdastjóra að ræða við fyrir-
tæki og sveitarfélög um framlög til
starfsins.
- Þið eruð nýkomin frá Malmö í
Svíþjóð þar sem þið voruð með
50-60 manna hóp. Hvernig fjár-
magnið þið svona ferðalög?
„Þau sem fara í ferðir með félag-
inu afla sjálf fjár til fararinnar en
félagið sjálft leggur ekki í kostnað.
Krakkarnir eru því duglegir að
stunda fjáraflanir og borga ferðina
alfarið sjálf. Ef allir sem vilja fara í
svona ferðalög leggjast á eitt, þá er
þetta hægt,“ segir Guðmnudur.
Nes er með mjög færa þjálfara á
sínum snærum. Í sundinu er t.a.m.
Ingi Þór Einarsson með þjálfun
fyrir NES en hann er jafnframt
landsliðsþjálfari í sundi.
„Með góðum þjálfurum og miklum
áhuga, þá næst góður árangur og
þau sem eru að ná langt á heims-
vísu hafa lagt gríðarlega vinnu í að
ná þeim árangri. Við erum t.d. með
einn núna sem er að gera gríðar-
lega góða hluti, Arnar Helgi Lárus-
son, í hjólastóla-race. Með mikilli
æfingu og aga hjá honum sjálfum,
þá hefur honum tekist að ná langt“.
Iðkendur frá öllum
Suðurnesjum
Iðkendur hjá NES koma frá öllum
sveitarfélögum Suðurnesja en
æfingar fara fram í Reykjanesbæ.
Boccia er stærsta greinin sem er
stunduð innan félagsins en sundið
er hins vegar sú grein sem er í hvað
mestum vexti og vekur athygli hvað
yngri iðkendum er að fjölga. Iðk-
endum hefur fjölgað það mikið í
sundinu að brugðið var á það ráð að
skipta upp í hópa. Áður voru yngri
og eldri hópar en nú eru yngri,
eldri og miðstig. Þá hafa þjálfarar
einnig skipt iðkendum eftir getu
þvert á aldur. Þá býður NES upp á
svokallað garpasund fyrir 25 ára og
eldri. Það er vel sótt. Garpasundið
fer fram í sundlaug Heiðarskóla og
er í raun að sprengja utan af sér að-
stöðuna þar.
Langstærsti hópurinn sem æfir hjá
NES er með þroskahömlun, kallað
S-14, og það sama á við um önnur
íþróttafélög fatlaðra á landinu. Það
eru ekki margir með líkamlega eða
sjáanlega fötlun sem stunda æf-
ingar hjá félaginu.
Kyndilhlaup lögreglunnar
Um síðustu helgi hélt NES í sam-
starfi við Íþróttasamband fatlaðra
og Knattspyrnusamband Íslands
Íslandsleika Special Olympics í
fótbolta. Keppt var í blönduðum
liðum þar sem eru 3 ófatlaðir og
4 fatlaðir en keppnin er hluti af al-
þjóðlegu verkefni - Unified foot-
ball. Auk keppenda frá aðildar-
félögum ÍF voru meðspilarar frá
lögreglunni, Knattspyrnufélaginu
Víði í Garði og 4. flokki Kefla-
víkur. Þá voru dómarar frá KSÍ.
Með þessu fyrirkomulagi er vilji
til að skapa frekara samstarf milli
fatlaðra og ófatlaðra inni á íþrótta-
vellinum og á æfingum. Þess má
geta að NES varð Íslandsmeistari
Special Olympics í knattspyrnu á
þessu móti.
Guðmundur starfar sem rann-
sóknarlögreglumaður hjá Lög-
reglustjóraembættinu á Suður-
nesjum, auk þess að vera á kafi í
félagsstarfinu hjá NES. Um síðustu
helgi stóðu Guðmundur og félagar
hans innan lögreglunnar fyrir svo-
kölluðu kyndilhlaupi lögreglu í
tengslum við Íslandsleika Special
Olympics í fótbolta sem fram
fóru í Reykjaneshöllinni. Special
Olympics voru stofnaðir af Ken-
nedy-fjölskyldunni árið 1968 í því
skyni að veita þroskahömluðum
tækifæri til íþróttaiðkunar og fjöl-
skyldan veitir leikunum ennþá for-
stöðu. Það var síðan árið 1981 sem
lögreglustjóri í Bandaríkjunum
vildi vekja enn frekari athygli á
Special Olympics og fékk því lög-
reglumenn til standa að og sjá um
kyndilhlaup fyrir og til stuðnings
Special Olympics. Hlaupið náði til
Evrópu 1988 og Ísland er svo fyrsta
norðurlandaþjóðin til að taka upp
kyndilhlaupið.
Special Olympics á Íslandi hóf
samstarf við lögregluna árið 2013
en lögreglumenn hafa verið í al-
þjóðasamstarfi við Special Olymp-
ics samtökin í fjölda ára og hlaupið
kyndilhlaup fyrir Evrópu- og al-
þjóðaleika. Lögreglumenn hlaupa
undir merkjum LETR (Law En-
forcement Torch Run) og í sept-
ember fóru fram Evrópuleikar
Special Olympics í Belgíu þar
sem m.a. voru þátttakendur frá
NES. Þá fóru t.a.m. tveir lögreglu-
menn frá Suðurnesjum þangað og
hlupu kyndilhlaup í einum sex-
tán borgum. Þetta voru þeir Guð-
■■ Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum er með yfir 100 iðkendur:
NES VEX HRATT
– Lögreglan vekur athygli á íþróttum fatlaðra með kyndilhlaupi