Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2014, Blaðsíða 39

Víkurfréttir - 11.12.2014, Blaðsíða 39
39VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. desember 2014 pósturu hilmar@vf.is mundur Sigurðsson og Gunnar Ólafur Schram. Á fimm dögum hlupu þeir samtals 100 kílómetra og 16 borgir og bæi í Belgíu. Guðmundi var boðið á Evrópu- ráðstefnu LETR í Belgíu árið 2013 en Guðmundur hefur sterk tengsl við Special Olympics í gegnum for- mennsku sína hjá NES og hefur sonur hans keppt á Evrópu- og alþjóðaleikum Special Olympics. Þá er Guðmundur lögreglumaður og er með tengingu í gegnum LETR við leikana og er málefnið hugleikið að eigin sögn. Fyrsta kydilhlaupið var í Reykjanesbæ í nóvember í fyrra og svo aftur í Reykjavík í vor. Þriðja hlaupið var svo í Reykjanesbæ um liðna helgi í tengslum við mótið í Reykja- neshöllinni. Nú eru Íslandsleikar Special Olympics haldnir tvisvar á ári og er stefnt að því að hlaupa alltaf við setningu þeirra. Special Olympics veitir þroskahömluðum tækifæri til íþróttaiðkunar en það fær ekki sömu umfjöllun og íþróttir fatlaðra og ófatlaðra og með hlaup- inu vilja lögreglumenn draga at- hygli að Special Olympics. „Þetta er gott fyrir leikana og þarna eru lögreglumenn að gefa af sér til sam- félagsins,“ segir Guðmundur. Með kyndil lögreglu og keppendur frá NES til LA Næsta sumar fara alþjóðaleikar Special Olympics fram í LA í Bandaríkjunum. Þangað fer hóp- ur níu þátttakenda frá NES sem mun keppa í knattspyrnu, boccia, frjálsum, sundi og golfi og þar af eru fimm frá NES sem munu skipa ellefu manna landsliði í fót- bolta auk þess sem knattspyrnu- þjálfari Nes fer út með landsliðinu. Guðmundur segir að það færist í aukana að NES taki þátt í alþjóð- legum verkefnum hjá Íþróttasam- bandi fatlaðra. Meðal annars er leitað til NES með þjálfara fyrir þessi verkefni og segir Guðmundur það jákvætt. Guðmundur mun einnig fara í ferðina sem fulltrúi íslensku lög- reglunnar og hlaupa með kyndilinn um Kaliforníu í aðdraganda leik- anna ásamt 100 lögreglumönnum víðs vegar að úr heiminum. Guð- mundur hefur engan bakgrunn í hlaupi og segir það talsvert átak að takast á við þessi hlaup erlendis. Nú þurfi hann að vera í góðu formi til að takast á við þetta hlaupaverkefni ofan á allt annað. Mót um hátíðirnar Nú um jól og áramót verða haldin mót í flestum greinum hjá NES og koma önnur félög fatlaðra til þátt- töku. Til að mynda mun Þjótur frá Akranesi etja kappi við Nes í boccia og þá verður nú haldið fótboltamót í þriðja skiptið þar sem NES og Ösp senda lið til þátttöku ásamt liðum frá Lögreglunni á Suðurnesjum og frá Brunavörnum Suðurnesja. Milli hátíða verður haldið sund- mót og þangað er boðið félögum af höfuðborgarsvæðinu. Nýjasta greinin innan NES er lyftingar en lyftingamót verður skoðað fljótlega á nýju ári. Guðmundur segir að keppnir og mót sé einungis einn þáttur starfs- seminnar, mikilvægt sé að hafa það í huga að þáttaka í keppnum er ekki aðalmálið. Að vera hluti af heild skiptir mun meira máli og taka þátt í því samfélagi sem rammast innan íþróttafélagsins og efla félagsfærni einstaklingsins. Starfsemin byggist upp á því að skapa fötluðum tæki- færi til þátttöku í íþróttastarfi og með þeim hætti að efla einstakl- inginn líkamlega, andlega og fé- lagslega. Hér aðsbú arnir Ey jól fur og Andrés ákváðu að elta æskudrauminn og flytja suður til þess að leika körfubolta með einu sigursælasta félagi Íslands- sögunnar. Þeir gengu til liðs við Keflavík nú í sumar en báðir eru þeir uppaldir á Egilsstöðum, þar sem þeir hafa spilað með Hetti alla tíð. Strákarnir hafa komið sér vel fyrir á Faxabrautinni í Reykja- nesbæ, steinsnar frá íþróttahús- inu og FS, þar sem þeir stunda nám. Þeim leist strax vel á að að flytja hingað í Reykjanesbæ þar sem auðvelt er að tvinna saman nám og íþróttir. Eftir gott gengi með Hetti í fyrstu deild og með yngri landsliðum Íslands, höfðu þeir úr fjölda áhugasamra liða að velja nú í sumar. Þeir ákvaðu að taka stökkið og reyna fyrir sér í deild þeirra bestu, hjá liði sem þeir höfðu fylgst grannt með frá unga aldri. „Við hefðum ekki komið hingað ef við hefðum ekki trú á því að við gætum spjarað okkur. Þegar svona klúbbur eins og Keflavík hefur samband þá er þetta einfaldlega tækifæri sem maður tekur,“ segir Eysteinn. „Það var hálfgert sjokk að heyra af áhuga Keflvíkinga en maður er búinn að fylgjast með liðinu síðan maður var krakki. Maður var bara búinn að sjá þessa kalla eins og Gunna og Damon í sjónvarpinu, en nú eru þeir að æfa með okkur. Það er virkilega gaman að spila með þeim,“ bætir Andrés við.“ Þeir hafa báðir æft körfubolta frá því að þeir komust til vits og ára, en Andrés dró Eystein fyrst á æf- ingu. Þeir hafa verið eins og Malt og Appelsín síðan, góð blanda sem smellur saman, jafnt innan vallar sem utan. Þegar sú hugmynd kom upp að færa sig um set frá Egils- stöðum, þá var ljóst að um pakka- díl yrði að ræða. Tveir fyrir einn ef svo mætti segja. „Það var eiginlega ekki í myndinni að fara í sitthvort liðið,“ segja þeir félagar. Þeir vilja skiljanlega ná sem lengst í bolt- anum en gera sér grein fyrir því að erfitt getur verið að vinna sér inn sæti í sterku úrvalsdeildarliði. Gaman að vinna með hinum íslenska Phil Jackson „Maður hugsaði mér sér að vinna mér inn sæti í liðinu hægt og bít- andi en kannski ekki að fá að spila alveg strax,“ segir Andrés. „Þetta er undir okkur sjálfum komið, þetta gerist ekki bara að sjálfu sér,“ skýtur Eysteinn inn í samtalið. Báðir voru þeir í lykilhlutverki hjá Hetti og því talsvert viðbrigði að spila mun færri mínútur og bera minni ábyrgð. Þeir segjast þó báðir finna fyrir því að þeir séu að bæta sig sem leikmenn með aukinni samkeppni, hörku og hraða. Hér æfa þeir meira en fyrir austan enda aðstaðan betri en þeir eru vanir. Svo ekki sé talað um þjálfarana og þeirra þátt í bættum leik strákana. „Það er ekki leiðinlegt að vera með sigursælasta þjálfara Íslands yfir sér,“ segir Eysteinn. „Maður leit mikið upp til hans. Siggi (Ingi- mundar) er eiginlega hinn íslenski Phil Jackson, “ segir Andrés og hlær. Á Egilsstöðum er nokkuð sterk hefð fyrir körfubolta en lið Hattar hefur verið sterkt undanfarin ár. Karfan er í stöðugri sókn fyrir austan og þá sérstaklega á Egils- stöðum að sögn strákana. Lið Hattar er einmitt í efsta sæti 1. deildar núna og þykir líklegt til afreka á tímabilinu. Báðir voru þeir Eysteinn og Andrés hluti af sterkum árgangi fyrir austan sem m.a. vann bikarmeistaratitill í 10. flokki, en það var fyrsti titilinn í sögu félagsins í körfuboltanum. Höttur var yfirleitt í efsta riðli í þeirra árgangi og léku þeir því á móti sterkustu liðum landsins. Þar á meðal Suðurnesjaliðinum. Þeir þekkja því vel til þeirra ungu og efnilegu leikmanna sem finna má hér á svæðinu. Eins höfðu þeir báðir leikið talsvert með yngri landsliðum Íslands. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvernig þessir ungu og efnilegu leikmenn koma til með að spjara sig en nú þegar hafa þeir látið að sér kveða í Domino’s deildinni. Piltarnir búa saman á Faxabrautinni og gengur sambúðin vel að þeirra sögn. Þeir kunna vel við sig Í Reykjanesbæ en viðkenna að fá stundum heimþrá. Þá helst sakna þeir þess að fá mömmumatinn víðfræga. „Maður verður stundum þreyttur á súrmjólk og hafragraut,“ segja þeir léttir. Eltu drauminn suður Andrés og Eysteinn fóru frá Egilsstöðum til þess að láta að sér kveða í Keflavík Austfirðingarnir eru klárir í slaginn í úrvalsdeildinni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.