Víkurfréttir - 17.12.2015, Page 2
2 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Fjárhagsáætlun Reykjanes-bæjar árin 2016-2019 var
samþykkt í seinni umræðu á
bæjarstjórnarfundi í gær. Hún
ber keim af því að ekki er komin
niðurstaða úr viðræðum við
kröfuhafa sem vonast er eftir
að náist á næstunni. Ljóst er að
árangur verður að nást úr þeim
umræðum því skuldir bæjar-
félagsins eru það miklar að ekki
er við ráðið nema skerða grunn-
þjónustu verulega.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri fór yfir fjárhagsáætlunina
en hann sagði að Sóknin, sem
bæjarstjórn kynnti í fyrra gengi
vel og tekist hafi að hagræða í
rekstri bæjarfélagsins en það dugi
skammt. Skuldirnar væru það
háar og nefndi hann sem dæmi að
vaxtagreiðslur væru 3,5 milljónir
króna á dag.
Óvissa vegna kröfuhafa
Í bókun meirihluta bæjarstjórnar
segir m.a.: „Fjárhagsáætlun 2016–
2019 sem nú er lögð fram er háð
mikilli óvissu þar sem Reykjanes-
bær hefur verið í viðræðum við
kröfuhafa bæjarins og er þeim við-
ræðum ekki lokið. Viðræðurnar
hafa snúist um niðurfærslu lána
með það að markmiði að skulda-
viðmið sveitarstjórnarlaga náist
fyrir árslok 2022. Gert var ráð fyrir
að viðræðum við kröfuhafa yrði
lokið fyrir árslok 2015 en hugsan-
legt er að þær munu dragast.Takist
ekki samningar við kröfuhafa er
enn til staðar óleyst fjárþörf sem
finna verður lausn á en sú fjárþörf
liggur fyrst og fremst hjá Reykja-
neshöfn.
Þær aðhaldsaðgerðir sem ráðist var
í á síðasta ári hafa skilað þeim ár-
angri að framlegð frá rekstri hefur
aukist talsvert en vegna mikilla
fjármagnsgjalda er niðurstaðan
óviðunandi. Því er nauðsynlegt að
ásættanleg niðurstaða náist í við-
ræðum við kröfuhafa sem leiði til
þess að hægt sé að halda áfram að
veita þá þjónustu sem sveitarfélagið
veitir nú þegar og íbúar eiga rétt á.
Auknar tekjur skila sér ekki
Úr bókun Sjálfstæðismanna: Fjár-
hagsáætlun Reykjanesbæjar sem
nú er til afgreiðslu sýnir að áfram
eru tekjur sveitarfélagsins of lágar
til að standa undir rekstri og skuld-
bindingum. Barátta síðustu ára um
betur launuð störf, svo sem í Helgu-
vík, hefur ekki skilað sér ennþá og
áhyggjuefni er að aukin þátttaka
fólks á atvinnumarkaði, minnkandi
atvinnuleysi og hærra útsvarshlut-
fall virðist ekki vera að skila sér
nema að litlu leyti sem aukning á
tekjum Reykjanesbæjar. Ljóst er að
greina þarf rækilega hvers vegna
tekjuaukningin er ekki í réttu sam-
hengi við hækkandi útsvar, fjölgun
íbúa og fjölgun starfa. Ljóst er að
gera þarf verulegar breytingar á
fjárhagsáætlun áranna 2017-2019
þegar viðræðunum við kröfuhafa
er lokið, óháð niðurstöðu þeirra. Er
afgreiðsla á fjárhagsáætlun þessara
ára því gerð í þeim tilgangi að upp-
fylla sveitarstjórnarlög um fram-
lagningu áætlunar til næstu 4 ára
þó fyrir liggi að áætlun þessara ára
muni taka verulegum breytingum á
næstu mánuðum.
Fordæmalaus fjárhagsvandi
Úr bókun Framsóknarflokks: „Eins
og kemur fram í greinagerð með
fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar
2016 til 2019 er þessi fjögurra ára
áætlun háð mikilli óvissu. Fjár-
hagsvandi Reykjanesbæjar er for-
dæmalaus. Viðræður við kröfuhafa
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og
Reykjaneshafnar hafa staðið yfir
í 18 mánuði án þess að ná niður-
stöðu. Kröfuhafar og Bæjarstjórn
hafa gert þá sanngjörnu kröfu um
að ríkissjóður komi að málum
vegna Helguvíkur að þar sem fjár-
festingageta bæjarsjóðs er ekki fyrir
hendi. Fordæmin eru hjá ríkissjóði
í öðrum verkefnum tengd stóriðju-
höfnum eins og Grundartanga og
Húsavík.
Ljóst er að vandinn er það stór
að hann verður ekki leystur með
auknum álögum á íbúa og tíminn
er að renna frá okkur ef að kröfunni
er ekki mætt um aðkomu ríkis-
sjóðs, þá er einsýnt að skipuð verði
fjárhaldsnefnd af hálfu Innanríkis-
ráðuneytisins yfir rekstur bæjarins
með ófyrirséðum afleiðingum fyrir
kröfuhafana og íbúa. Að mínu mati
er betra að bæjarfélagið nái sjálft
samningum við kröfuhafa frekar
en að láta það verkefni í hendur
fjárhaldsnefndar.“
3,5 millj. kr. í vexti á
dag í Reykjanesbæ
-Fjárhagsáætlun til 4 ára í óvissu vegna viðræðna við kröfuhafa
-fréttir pósturu vf@vf.is
LESBRETTI
TIL ÚTLÁNS
ENDURSKOÐUN
AÐALSKIPULAGS
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR
JÓLALEYFI
ER ÞÍN UNDIRSKRIFT
Á KORTI?
KVENNAVELDIÐ
Í Bókasafni Reykjanesbæjar gefst lánþegum nú
tækifæri til að fá lánuð lesbretti. Í lesbrettunum er
fjöldinn allur af íslenskum og erlendum bókum.
Lánstími lesbrettanna eru 30 dagar eða sami tími og
leyfilegt er að vera með bók í láni.
Kynning á lýsingu verkefnis vegna endurskoðunar á
Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að vinna
að endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Auglýst er lýsing skipulagsverkefnis skv. 1. mgr. 30. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Öll gögn eru aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar
(www.reykjanesbaer.is). Einnig er opið hús kl. 14-16
á bæjarskrifstofum, Tjarnargötu 12, þann 23.desem-
ber n.k. Skipulagsgögn munu liggja frammi og þar er
hægt að koma á framfæri ábendingum og fá svör við
spurningum.
Athugasemdarfrestur eru til 7. janúar 2016. Hægt
verður að senda ábendingar á skipulagsfulltrúa Reykja-
nesbæjar, sveinn.numi.vilhjalmsson@reykjanesbaer.
is eða athugasemdir merktar Aðalskipulag Reykjanes-
bæjar á póstfangið, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbær.
Jólaleyfi hefst mánudaginn 21. desember.
Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 5. janúar 2016.
Skólastjóri
Bréfamaraþoni Amnesty International í Bókasafni
Reykjanesbæjar lýkur á morgun. Láttu þitt ekki eftir
liggja í baráttu samtakanna gegn mannréttindabrotum.
Tilbúin kort á staðnum til undirritunar.
Bókasafnið er opið virka daga frá kl. 9:00 til 18:00.
Í Listasafni Reykjanesbæjar stendur nú yfir sýningin
Kvennaveldið: Konur og kynvitund. Á sýningunni eru
verk eftir tólf listakonur, sem fara ekki í felur með
langanir sínar og ímyndanir. Duus safnahús eru opin alla
daga kl. 12:00 til 17:00.
Verið velkomin.
Frá bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni. VF-mynd/pket.
Troðfullt veski hjá
bæjarstjóranum í
Grindavík
XuÞað virðist vera eitthvað
þægilegra starfið hjá bæjar-
stjóranum í Grindavík en koll-
ega hans í Reykjanesbæ miðað
við tölur í reikningum bæjar-
ins. Bláar tölur eru áberandi.
Á bæjarstjórnarfundi þann 24.
nóvember sl. var fjárhagsáætlun
Grindavíkurbæjar og stofnana
fyrir árin 2016-2019 tekin til
síðari umræðu og var hún
samþykkt samhljóða. Bæjar-
félagið mun samkvæmt áætlun
skila hálfum milljarði króna í
hagnað á næstu fjórum árum.
Helstu niðurstöðutölur áætlunar-
innar eru þessar: Rekstrarniður-
staða A-hluta árið 2016, fyrir fjár-
magnsliði, er áætluð 41,7 millj-
ónir króna í rekstarafgang. Í A- og
B-hluta er rekstrarniðurstaða fyrir
fjármagnsliði 148,5 milljónir í
rekstarafgang.
Ásbrú verði full-
byggð eftir tvö ár
XuÞróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar á nú í viðræðum við er-
lent hugbúnaðarfyrirtæki um
opnun gagnavers á svæðinu.
Þar eru fyrir fimm af sex starf-
andi gagnaverum á Íslandi.
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki
hægt að greina frá nafni fyrir-
tækisins að svo stöddu. Hann
staðfestir þó að félagið muni þurfa
nokkur þúsund fermetra undir
starfsemina og nokkur MW af
raforku til að knýja gagnaverið.
Ef verkefnið verður að veruleika
yrði þetta fjárfesting fyrir nokkra
milljarða króna.
Kjartan Þór segir að aukin um-
svif á svæðinu hafi leitt til þess
að eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði
hefur aukist gríðarlega. „Við erum
með töluvert af íbúðarhúsnæði
sem þarfnast breytinga áður en
hægt er að taka það í notkun. Á
síðustu mánuðum höfum við orð-
ið varir við aukinn áhuga fjárfesta
á íbúðarhúsnæði á svæðinu, þá
meðal annars til sölu til einstakl-
inga sem vilja eignast húsnæði.“
Hann telur að með sama áfram-
haldi verði allt laust húsnæði á
Ásbrú komið í fulla notkun árið
2017, bæði atvinnuhúsnæði og
íbúðarhúsnæði. Gangi það eftir
mun íbúum á Ásbrú fjölga úr um
2.000 í 3.000 til 4.000 á einu til
tveimur árum.