Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.2015, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 17.12.2015, Qupperneq 6
6 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR PÁLL KETILSSON RITSTJÓRNARPISTILL Af hverju erum við svona vond á samfélagsmiðlunum? Samfélagsmiðlar hafa verið í umræðunni að undanförnu. Þeir eru magnað fyrirbæri og með svakalegri uppfinningum sögunnar þar sem inter- netið nær hæstu hæðum. En auðvitað eru slæmar hliðar á þeim eins og mörgu öðru. Þar eru gerðar tilraunir til að taka einstaklinga „af lífi“ ef þeir hafa gert eitthvað eða ekki gert eitthvað sem samfélagsmiðlungum þóknast ekki. Ás- mundur Friðriksson, þingmaður Suður- nesjamanna úr Garðinum, fékk að finna fyrir óvæginni gagnrýni og umræðu eftir að hafa greitt atkvæði gegn því að öryrkjar og aldraðir fengju afturvirka hækkun. Aðspurður í viðtali við Víkurfréttir um málið segir hann viðbrögðin við því að hann hafi hafnað hækkuninni að sér hafi liðið eins og landinu eftir veðurhaminn á dögunum. „Veðrið lamdi landið á 70 til 80 kílómetra hraða og lamdi lífið úr því í smástund. Mér líður þannig og er tómur að innan. Það er auðvitað djöfullegt að lenda í því að fólk ráðist á mann með svo miklu offorsi. Það hefur eðlilega áhrif á mann, maður er bara mannlegur. Verst er það auðvitað fyrir fjölskylduna, eiginkonu, börn og aldraðan föður og bræður. Það sem tekur mig þyngst er að fjölskyldan sé bogin yfir þessu. Í þinginu eru þingmenn að skiptast á skoðunum allan daginn. Það er heilbrigt að vera ekki öll með sömu lífs- skoðun. Mér finnst að sú umræða i þinginu sé mjög heiðarleg, nánast undantekningar- laust. Úti í samfélaginu er hins vegar leyfi- legt að drulla yfir menn.“ Ásmundur er einn af mörgum sem hafa vakið athygli á þessari leiðinlegu þróun sem tengist samfélagsmiðlum. Hvað er það sem fær fólk til að vera svona vont? Það er ágæt leið áður en maður skilar einhverju „vondu“ frá sér að setja sig í spor þess sem á að fá skilaboðin. Hér er ekki eingöngu verið að ræða málefni þingmannsins heldur á heildina litið. Þetta verður að breytast. Fólk er ekki vélar. Við erum öll mannleg eins og Ásmundur segir. Í viðtali í blaðinu og eins í sjónvarpsþætti vikunnar kemur þingmaðurinn og fyrrverandi bæjarstjóri í Garði víða við en hann flutti upp á land fyrir rúmum áratug og settist að í Reykja- nesbæ en flutti síðar út í Garð. Ásmundur gefur út bók um Hrekkjalómafélagið fyrir þessi jól en þar segir hann sögur frá þessu sérstaka félagi sem var uppi á sínum tíma í Vestmannaeyjum, þar sem Ási er fæddur og uppalinn en hann var einn af hressum peyjum í félaginu. Í þessu jólablaði VF er mikið af góðu les- efni, fjölmörg viðtöl og frásagnir frá Suður- nesjamönnum sem hafa verið að gera góða og skemmtilega hluti á árinu. Við kíkjum inn í sannkölluð jólahús og spyrjum fólk út í jólin, ræðum við mann sem fann týndar systur sínar og skoðum að margra mati mögnuðustu íþróttasögu síðustu aldar, þegar Víðismenn í Garði gerðu Garðinn frægan á fótboltavellinum. Og margt, margt fleira! Njótið vel á aðventunni! AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 vf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is og kylfingur.is ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN: AUGLÝSINGASTJÓRI: UMBROT OG HÖNNUN: AFGREIÐSLA: PRENTVINNSLA: UPPLAG: DREIFING: DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA: Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug- lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju- dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA ATH! NÝR OG BETRI OPNUNARTÍMI KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ Virka daga Helgar 10:00 – 19:00 10:00 – 18:00 Jólin nálgast, spennan magnast, gleðin skín úr hverju andliti. Á þessum tíma reyna flestir að brosa blíðar og safna fyrir þeim sem minna mega sín því það er svo sannarlega sælla að gefa en að þiggja. Allt þetta besta er allt í kringum okkur, allt það besta sem í mannverunni býr kemur út úr fylgsnum sínum á þessum fallega jólatíma. Við finnum fyrir meiri samkennd fyrir náunganum og erum opnari fyrir því að vera í stakk búin ef einhver skyldi þurfa á hjálp að halda. Ég er jólaálfur í húð og hár, ég elska fátt meira en þennan tíma. Þegar ég settist niður til að ákveða mig hvað ég ætti að skrifa um var margt sem veltist um í huga mér. Þrátt fyrir að vera þeim góðu kostum gædd að vera jákvæð og réttsýn fram í fingurgóma þá hef ég ekki alltaf upplifað gleði- leg jól frekar en svo margir. Sem lítið barn lenti ég í því að missa manneskju sem var mér virkilega kær nokkrum dögum fyrir jól. Það var hræðilegt og tilfinningin sem enn kemur upp við minn- inguna fær magann til að skreppa saman og augun fyllast af tárum. Upp frá þessum missi kom mikil sorg og vanlíðan og þessi fallegi tími breyttist í kvíða. Tilhlökk- unin yfir því að rífa upp pakkana hvarf út í buskann og gráturinn á heimilinu yfirtók allt. Fyrir barn er verulega erfitt að reyna að skilja sorgina, barninu finnst svo eðli- legt að við séum alveg að fara að hittast aftur, þetta sé í raun ekki raunveruleiki. Ég reyndi mitt allra besta að fullorðnast hratt og gerði mínar skyldur og sinnti því sem þurfti að sinna. Ég tók á mig ábyrgð sem enginn bað mig um en ég gerði það engu að síður. Þessi tími er alls ekki gleði fyrir alla því miður, við lifum og lærum og gerum öll okkar besta, alltaf. Þegar þessi sorg okkar dofnaði þá fór skugginn yfir jólaljósunum líka að hverfa, ég fór að finna fyrir þessum jólafiðrildum enn á ný. Það er svo erfitt fyrir okkur full- orðna fólkið að setja okkur í spor barnanna okkar, skiljanlega, sorg fullorðna fólksins er himinhá oft og getur verið kolsvart hyldýpi. En börnin okkar eru að mótast á þessum tíma og allt sem við gerum eða gerum ekki situr eftir í barnsins hjarta, við verðum að vera tilbúin til að setjast niður með þeim og fá að vita hvað er að gerast. Tilfinningar þeirra eru svo brothættar og allt sem við gerum hefur áhrif á þau, við erum þeirra fyrirmyndir. Jólin á mínu heimili í dag eru engu öðru lík, þau eru falleg og innihaldsrík og heimilið ómar af hlátrasköllum eins og ætti að vera. Ég byggi á þessum fallegu minn- ingum sem hlátrasköllin lifðu áður en sorgin bankaði uppá, við eigum alltaf valkosti og þeir geta verið misgóðir en við erum eigin gæfu smiðir. Ég valdi að draga styrk minn frá þessum hamingju- sömu minningum en skildi við þessar sorgmæddu. Jólin eru tími barnanna, þetta er dýrmætur tími sem þau muna alltaf miða sín jól við þegar þau verða full- orðin. Reynum einu sinni á ári að sleppa af okkur fullorðinshömlum samfélagsins og njótum eins og börnin sem við eitt sinn vorum, jólin koma þrátt fyrir allt og fara alveg jafn hratt. Ég vil óska ykkur öllum gleði- legrar hátíðar og þakka fyrir lesturinn á árinu sem er að líða Ást og jólafriður Linda María. Lífið með Lindu Maríu Sorg og gleði á jólum Félagsstarf aldraðra í Miðhúsum í Sand- gerði afhenti í vikunni félagsmálastjóranum í Sandgerði 100.000 krónur í formi inn- eignarkorta í Nettó. Upphæ ðin er ágó ði af kleinubakstri nú í desember. Í tilkynningu frá Miðhúsum eru öllum sem studdu gott málefni færðar kærar þakkir. Kleinur skiluðu 100.000 krónum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.