Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.2015, Side 20

Víkurfréttir - 17.12.2015, Side 20
20 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR Vinkonurnar þrjár, Margrét Arna Eggertsdóttir, Sigrún Pétursdóttir og Hólmfríður María Hjaltadóttir hafa átt þá skemmtilegu jólahefð í tíu ár að baka saman sörur. Margrét Arna og Sigrún ólust upp í Sandgerði og hafa verið vinkonur um árabil. Þær kynntust Hólmfríði Maríu frá Keflavík í gegnum störf sín í flugstöðinni á þeim tíma. Árið 2005 kom Margrét með þá snjöllu hug- mynd að þær vinkonurnar myndu baka sörur saman. „Við létum slag standa þrátt fyrir að vita ekkert hvað við vorum að fara út í. Nú höfum við notið þess að baka saman sörur í tíu ár og um sörubaksturinn okkar má segja að hið fornkveðna hafi reynst rétt; að æfingin skapi meistarann,“ segir Hólmfríður. Í gegnum árin hafa myndast ýmsar hefðir og siðir í kringum herlegheitin. Yfirleitt baka þær sexfalda uppskrift og hefur hver og ein í hópnum sitt hlutverk. Til að mynda gerir Sigrún kremið á meðan Margrét og Hólm- fríður undirbúa og baka botnana. Allar smyrja þær svo kreminu á botn- ana og hjúpa með súkkulaði í lokin. „Í fyrstu skiptin gerðum við allt á einum degi en komumst fljótt að því að slík vinnubrögð hentuðu ekki því við náðum ekki að njóta okkar saman á aðventunni. Sörubaksturinn tekur sinn tíma þar sem nostra þarf við hverja köku. Því þróaðist vinnan við baksturinn yfir á tvo daga og höfum við síðustu árin komið saman einn dag til að baka botnana og hrært kremið. Næsta dag smyrjum við og hjúpum sörurnar. Í fyrra ákváðum við að taka sörubaksturinn skrefinu lengra og bæta við Dumle sörum samhliða þeim gömlu góðu,“ segir Margrét. Vinkonurnar mæla með því að fólk gefi sér góðan tíma í sörubaksturinn. Þær segja einnig gott að nota hand- kvörn við að mala möndlurnar, sigta flórsykurinn og blanda eggjahvítunum varlega saman við. Þær segja einnig mikilvægt að passa að sjóða sírópið hæfilega lengi og kæla það áður en því er blandað saman við eggja- og smjör- blönduna. Börnin þeirra hafa alla tíð fengið að taka þátt í bakstrinum og eiga nú þá hefð að skreyta piparkökur á meðan mömmurnar vinna að sörugerðinni. „Á hverju ári fáum við svo innlit frá yndislegum fastagestum sem taka út baksturinn og rétta okkur hjálparhönd ef þörf er á,“ segir Sigrún. Sörurnar reyna vinkonurnar að spara eftir fremsta megni fyrir jólin. Í gegnum árin hafa þær gefið sörur til vina og ættingja og er nú svo komið að nokkrir eru í áskrift. Annar smáköku- bakstur hefur ekki fest sig í sessi hjá þeim líkt og sörurnar. Í ár fögnuðu þær tíu ára söruafmæli og fékk hópurinn svuntur að gjöf af því tilefni. Þær áttu svo notalega stund með fjölskyldum allra. Þær ákváðu líka að halda dagbók þar sem þær skrá annál, góð ráð við baksturinn og annað skemmtilegt. Þrjár vinkonur úr Sandgerði og Keflavík eiga þá skemmtilegu hefð að hittast fyrir hver jól og baka saman sörur. Þær gefa sér góðan tíma í baksturinn enda er nostrað við hverja söru. -mannlíf pósturu vf@vf.is HAFA BAKAÐ SAMAN sörur í áratug Meðfylgjandi er uppáhaldsuppskrift hópsins að Söru Bernhardt. Hana fengu þær árið 2005 frá myndarlegri húsmóður í Sandgerði sem þær kunna bestu þakkir fyrir. 600 gr fínmalaðar möndlur með hýði 500 gr flórsykur 10 eggjahvítur Aðferð Blandið möluðu möndlunum og flórsykrinum saman. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við möndlurnar og flórsykrinn. Úr deginu eru mótaðar litlar kúlur með teskeiðum. Bakaðar við 180 °C í 15 mín. Smjörkrem 2 ¼ dl strásykur 2 ¼ dl vatn 10 eggjarauður 500 gr smjör (við stofuhita) 3 tsk. kakó 1 tsk. kaffiduft neskaffi 900 gr dökkir hjúp dropar frá Nóa Sírius Aðferð við smjörkrem Sjóðið vatn og sykur í síróp í 8 til 10 mínútur eða meira, látið bulla alveg stöðugt. Eggjarauður þeyttar á meðan. Sírópið látið kólna og svo er því hellt í mjórri bunu út í rauðurnar og hrært. Smjörið er skorið í teninga og svo er mjúku smjörinu bætt saman við eggjarauðurnar og sírópið hrært hægt við á meðan. Síðan er kaffinu og kakóinu bætt saman við. Smjörkremið er svo geymt í kæli þar til botn- arnir eru smurðir. Á flötu hliðina á botnunum er smurður smjör toppur og hann svo hjúpaður með dökku suðusúkkulaði. Dumle-krem 2 dl rjómi 18 Dumle-karamellur 100 gr rjómasúkkulaði 6 eggjarauður 8 msk. siróp 400 gr mjúkt smjör 600 gr Nóa Síríus rjómasúkkulaði til að hjúpa með Aðferð Rjóminn er hitaður ásamt Dumle-karamellum og rjómasúkkulaðinu. Eggjarauður þeyttar á meðan. Smjörið er skorið í teninga og svo er mjúku smjörinu bætt saman við eggjarauðurnar. Sírópinu bætt út í ásamt súkkulaðirjómablöndunni og hrært vel. Sörur Bernhardt Hólmfríður María Hjaltadóttir, Sigrún Péturs- dóttir og Margrét Arna Eggertsdóttir með svunturnar sem hópurinn fékk í tilefni af tíu ára afmæli sörubakstursins. EVRÓPA FRÁ 29.900 KR. eða 25.900 Vildarpunktar og 12.000 kr.* NORÐUR-AMERÍKA FRÁ 51.900 KR. eða 42.900 Vildarpunktar og 22.000 kr.* Ferðatímabil er frá 9. janúar til og með 23. mars 2016 (síðasti ferðadagur). Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld Icelandair. *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, ein taska til Evrópu, allt að 23 kg, og tvær töskur til N.-Ameríku, allt að 23 kg hvor. Sölu Jólapakka lýkur 24. desember kl 18:00. Bókunartímabil jólafargjalda er frá 27. desember 2015 til og með 12. janúar 2016. Eftir 12. janúar er jólafargjald ekki í boði. Ef gjafabréfið er ekki notað fyrir þann tíma, þ.e. ekki er gerð bókun, þá gildir gjafabréfið sem inneign og má nota sem greiðslu upp í önnur fargjöld og skatta. Ferðatímabilið er frá 9. janúar til og með 23. mars 2016. Síðasti ferðadagur á jólafargjaldi er 23. mars 2016 (lent á Íslandi 24. mars 2016 frá USA). Vertu með okkur ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 7 77 70 1 2/ 15 + icelandair.is GEFÐU FRÍ UM JÓLIN

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.