Víkurfréttir - 17.12.2015, Page 20
20 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Vinkonurnar þrjár, Margrét Arna Eggertsdóttir, Sigrún
Pétursdóttir og Hólmfríður María
Hjaltadóttir hafa átt þá skemmtilegu
jólahefð í tíu ár að baka saman sörur.
Margrét Arna og Sigrún ólust upp
í Sandgerði og hafa verið vinkonur
um árabil. Þær kynntust Hólmfríði
Maríu frá Keflavík í gegnum störf sín
í flugstöðinni á þeim tíma. Árið 2005
kom Margrét með þá snjöllu hug-
mynd að þær vinkonurnar myndu
baka sörur saman. „Við létum slag
standa þrátt fyrir að vita ekkert hvað
við vorum að fara út í. Nú höfum við
notið þess að baka saman sörur í tíu
ár og um sörubaksturinn okkar má
segja að hið fornkveðna hafi reynst
rétt; að æfingin skapi meistarann,“
segir Hólmfríður.
Í gegnum árin hafa myndast ýmsar
hefðir og siðir í kringum herlegheitin.
Yfirleitt baka þær sexfalda uppskrift
og hefur hver og ein í hópnum sitt
hlutverk. Til að mynda gerir Sigrún
kremið á meðan Margrét og Hólm-
fríður undirbúa og baka botnana.
Allar smyrja þær svo kreminu á botn-
ana og hjúpa með súkkulaði í lokin.
„Í fyrstu skiptin gerðum við allt á
einum degi en komumst fljótt að því
að slík vinnubrögð hentuðu ekki því
við náðum ekki að njóta okkar saman
á aðventunni. Sörubaksturinn tekur
sinn tíma þar sem nostra þarf við
hverja köku. Því þróaðist vinnan við
baksturinn yfir á tvo daga og höfum
við síðustu árin komið saman einn dag
til að baka botnana og hrært kremið.
Næsta dag smyrjum við og hjúpum
sörurnar. Í fyrra ákváðum við að taka
sörubaksturinn skrefinu lengra og
bæta við Dumle sörum samhliða þeim
gömlu góðu,“ segir Margrét.
Vinkonurnar mæla með því að fólk
gefi sér góðan tíma í sörubaksturinn.
Þær segja einnig gott að nota hand-
kvörn við að mala möndlurnar, sigta
flórsykurinn og blanda eggjahvítunum
varlega saman við. Þær segja einnig
mikilvægt að passa að sjóða sírópið
hæfilega lengi og kæla það áður en því
er blandað saman við eggja- og smjör-
blönduna.
Börnin þeirra hafa alla tíð fengið að
taka þátt í bakstrinum og eiga nú þá
hefð að skreyta piparkökur á meðan
mömmurnar vinna að sörugerðinni.
„Á hverju ári fáum við svo innlit frá
yndislegum fastagestum sem taka út
baksturinn og rétta okkur hjálparhönd
ef þörf er á,“ segir Sigrún.
Sörurnar reyna vinkonurnar að
spara eftir fremsta megni fyrir jólin.
Í gegnum árin hafa þær gefið sörur til
vina og ættingja og er nú svo komið að
nokkrir eru í áskrift. Annar smáköku-
bakstur hefur ekki fest sig í sessi hjá
þeim líkt og sörurnar.
Í ár fögnuðu þær tíu ára söruafmæli
og fékk hópurinn svuntur að gjöf af
því tilefni. Þær áttu svo notalega stund
með fjölskyldum allra. Þær ákváðu
líka að halda dagbók þar sem þær
skrá annál, góð ráð við baksturinn og
annað skemmtilegt.
Þrjár vinkonur úr Sandgerði og Keflavík eiga þá skemmtilegu hefð að hittast fyrir hver jól og baka saman sörur. Þær gefa sér góðan tíma í baksturinn enda er nostrað við hverja söru.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
HAFA BAKAÐ SAMAN
sörur í áratug
Meðfylgjandi er uppáhaldsuppskrift hópsins að
Söru Bernhardt. Hana fengu þær árið 2005 frá
myndarlegri húsmóður í Sandgerði sem þær kunna
bestu þakkir fyrir.
600 gr fínmalaðar möndlur með hýði
500 gr flórsykur
10 eggjahvítur
Aðferð
Blandið möluðu möndlunum og flórsykrinum
saman. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim
saman við möndlurnar og flórsykrinn. Úr deginu
eru mótaðar litlar kúlur með teskeiðum. Bakaðar við
180 °C í 15 mín.
Smjörkrem
2 ¼ dl strásykur
2 ¼ dl vatn
10 eggjarauður
500 gr smjör (við stofuhita)
3 tsk. kakó
1 tsk. kaffiduft neskaffi
900 gr dökkir hjúp dropar frá Nóa Sírius
Aðferð við smjörkrem
Sjóðið vatn og sykur í síróp í 8 til 10 mínútur eða
meira, látið bulla alveg stöðugt. Eggjarauður þeyttar
á meðan. Sírópið látið kólna og svo er því hellt í
mjórri bunu út í rauðurnar og hrært. Smjörið er
skorið í teninga og svo er mjúku smjörinu bætt
saman við eggjarauðurnar og sírópið hrært hægt við
á meðan. Síðan er kaffinu og kakóinu bætt saman
við. Smjörkremið er svo geymt í kæli þar til botn-
arnir eru smurðir. Á flötu hliðina á botnunum er
smurður smjör toppur og hann svo hjúpaður með
dökku suðusúkkulaði.
Dumle-krem
2 dl rjómi
18 Dumle-karamellur
100 gr rjómasúkkulaði
6 eggjarauður
8 msk. siróp
400 gr mjúkt smjör
600 gr Nóa Síríus rjómasúkkulaði til að hjúpa með
Aðferð
Rjóminn er hitaður ásamt Dumle-karamellum og
rjómasúkkulaðinu. Eggjarauður þeyttar á meðan.
Smjörið er skorið í teninga og svo er mjúku smjörinu
bætt saman við eggjarauðurnar. Sírópinu bætt út í
ásamt súkkulaðirjómablöndunni og hrært vel.
Sörur Bernhardt
Hólmfríður María Hjaltadóttir, Sigrún Péturs-
dóttir og Margrét Arna Eggertsdóttir með
svunturnar sem hópurinn fékk í tilefni af tíu ára
afmæli sörubakstursins.
EVRÓPA FRÁ 29.900 KR.
eða 25.900 Vildarpunktar og 12.000 kr.*
NORÐUR-AMERÍKA FRÁ 51.900 KR.
eða 42.900 Vildarpunktar og 22.000 kr.*
Ferðatímabil er frá 9. janúar til og með 23. mars 2016 (síðasti ferðadagur).
Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld Icelandair.
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, ein taska til Evrópu, allt að 23 kg, og tvær töskur til N.-Ameríku, allt að 23 kg hvor. Sölu Jólapakka lýkur 24. desember kl 18:00.
Bókunartímabil jólafargjalda er frá 27. desember 2015 til og með 12. janúar 2016. Eftir 12. janúar er jólafargjald ekki í boði.
Ef gjafabréfið er ekki notað fyrir þann tíma, þ.e. ekki er gerð bókun, þá gildir gjafabréfið sem inneign og má nota sem greiðslu upp í önnur fargjöld og skatta.
Ferðatímabilið er frá 9. janúar til og með 23. mars 2016. Síðasti ferðadagur á jólafargjaldi er 23. mars 2016 (lent á Íslandi 24. mars 2016 frá USA).
Vertu með okkur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
77
70
1
2/
15
+ icelandair.is
GEFÐU FRÍ
UM JÓLIN