Víkurfréttir - 17.12.2015, Qupperneq 49
49VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015
pósturu vf@vf.is
mikið fjallað um það, lögreglubátar
undir brúnni og fréttaþyrlur fyrir
ofan brúnna, í framhaldinu fórum
við með lestarvögnum á bryggjuna
Pier 39 með Alcatraz í bakgrunn-
inum og heljarinnar hátíðarhöld á
bryggjunni. Og á Union Square í
San Francisco tók 40 manna sin-
fóníuhljómsveit á móti okkur“.
Hvað var eftirminnilegast
frá Kaliforníuferðinni?
„Fyrir mig persónulega voru tvö
eftirminnileg atvik. Annars vegar
þegar mér var afhentur lykill að
borginni Westminster í Kaliforníu
en það atvikaðist þannig að ég hélt
ræðu um Sigga son minn, slysið
sem hann varð fyrir og hvernig
aðstæður leiddu hann til Special
Olympics og hvað Special Olymp-
ics gerði fyrir hann. Það urðu allir
snortnir af sögunni og þegar ég var
að ræða við borgarstjórann eftir
athöfnina tók hann þá ákvörðun
að færa mér lykil að borginni, rauk
inn í þinghúsið, sótti lykil og af-
henti hann mér hann síðan með
viðhöfn. Það var gríðarlegur heiður
sem mér var sýndur með þessu og
er því núna heiðursborgari í West-
minster í Kaliforníu. „Thank you
very much“. Og hins vegar þegar
síðasta athöfnin var á síðasta deg-
inum að ég hljóp með kyndilinn
inn á Santa Monica Pier í Los
Angeles og eiginkona mín og tveir
synir voru þar ásamt fleirum Ís-
lendingum veifandi íslenska fán-
anum og voru vitni að því sem ég
var búinn að vera að gera í 12 daga“.
Guðmundur segir að honum sé
mikið í mun að vekja fólk til um-
hugsunar hvað Special Olympics
er, fyrir hvað það stendur. „Hvaða
áhrif getum við haft til að efla það,
gera það sterkara því það er vissu-
lega þörf fyrir það. Ég á sjálfur tvo
drengi sem eru iðkendur í Special
olympics, ég hef verið með LETR
hlaup á Íslandi meðal íslenskra lög-
reglumanna og margir sem vita
ekki út á hvað þetta brölt gengur, að
hlaupa eitthvað með kyndil en hafa
upplifað hvaða áhrif þetta hefur
fyrir Special Olympics þá er þetta
þess virði. Ef þetta verður til þess
að einhver byrjar í íþróttum hjá
Special Olympics vegna LETR þá
dugar það mér,“ segir Guðmundur
Sigurðsson. Hann var á dögunum
sæmdur Hvataverðlaunum Íþrótta-
sambands fatlaðra fyrir árið 2015
vegna LETR í þágu fatlaðra. Þetta
er í 3. skiptið sem þessi verðlaun
eru afhent, t.d. fékk KSÍ þessi verð-
laun 2014.
Hafnargötu 29, 230 Reykjanesbær - Sími 421 8585
Full búð af fallegum
skóm á alla fjölskylduna
Gleðilega hátíð
og takk fyrir viðskiptin á árinu.
OP
IÐ
T
IL
K
L.
2
2:0
0
TI
L
JÓ
LA
Hópurinn sem tók þátt í kyndilhlaupinu staddur rétt utan við Hollywood.
Í hlaupinu var meðal annars komið við á herstöðvum. Hér er hlaupið framhjá herskipi í höfn einnar flotastöðvarinnar.